Eining - 01.01.1948, Page 5

Eining - 01.01.1948, Page 5
E I N I N G 5 V. I nýjar og merkilegar niðurstöður frá læknunum, rökstuddu bindindissemi, skýrðu frá sjónarmiðum sálfræðinga í áfengismálunum, bentu á, hvernig við eigum að ná unga fólkinu inn í bind- indishreyfiriguna, og loks lögðu vorir beztu menn niður fyrir sér, hvernig löggjöfinni um afhendingu og sölu á- fengis yrði heppilegast fyrir komið. í því máli var ein allsherjar norræn skoö- un ríkjandi, eftir því sem fram kom í umræðunum: Burt með skömmtunina! Það kom fram hörð gagnrýni á skömmtunarkerfi Svía (áfengisbókun- um), en hins vegar voru menn almennt fylgjandi danska kerfinu: hásköttum á áfengi og háu söluverði. — Ég hlakka til að fá Kongress-tíðind- in. Á þeim er áreiðanlega mikið að græða fyrir okkur, sem höfum áhuga á bindindismálinu. B. T. Stefnuskrd norrænu bindindishreyfingarinnar I sambandi við norræna bindindis- þingið í Stokkhólmi s. 1. sumar kom þar saman 17. júlí aðalnefnd þess og sam- þykkti eftirfarandi stai-fsreglur og stefnuskrá. Markmið: Afengisneyzlan upprætt á Norð- urlöndum. Leiðin: Dregið skal úr áfengisneyzlunni stig af stigi. Mismunandi starfsreglur: I. Vísindaleg rannsókn á áhrifum og skaðsemi áfengisneyzlunnar og hvernig hægt er að draga úr henni. II. 1. Aukin bindindisfræðsla í háskólum og öðr- um æðri skólum, einnig barnaskólum. 2. Oflug fræðslu- og upplýsingarstarfsemi með útgáfu slíkra bóka, blaða og rita, fræðsluerindum, kvikmyndum og útvarpi. Skal ríkið styrkja þá starfsemi. III. Bindindisstarfið sé styrkt af ríki og bæjar- félögum. IV. Afengir drykkir skattlagðir hátt. V. Dregið skal úr ofnautn áfengis, eftir því sem frekast er unnt með því að setja þá menn, er hafa sterka áfengishneigð, undir umsjón og læknisaðgerð um tíma, öllu fremur en hei'ða stöðugt meira á hömlum, er gildi jafnt fyrir alla. VI. 1. Algerlega sé fyrirbyggt að einstakir menn geti hagnast á áfengisframleiðslu og áfengissölu. 2. Hlynt verði sem bezt að starfrækslu veit- ingahúsa án allra vínveitinga. 3. Aukin framleiðsla og neyzla góðra óá- fengra drykkja. VII. 1. Ekkert áfengi sé um hönd haft í veizlum, sem kostaðar eru af almannafé. 2. Áfengisveitingar séu bannaðar í sambandi við dansskemmtanir, íþróttaiðkanir, úti- samkomur, í lystigörðum og við allt skemmtanalíf. VIII. 1. Áfengislöggjöf skal miða að því, bæði við- víkjandi framleiðslu og sölu, að neyzla áfengis verði sem minnst og skaðlausust. 2. Hverju héraði (borg og byggð) skal gef- inn ákvörðunarréttur um, hvort þar skuli vera áfengissala eða ekki. 3. Bannað sé að opna áfengissölur í bústaða- hverfum borganna. 4. Stuttur útsölutími áfengisverzlana. IX. Heimta skal fullkomið bindindi af öllum þeim, sem einhver störf hafa á hendi í sam- bandi við umferð og herþjónustu, einnig við öll önnur störf, þar sem áfengisneyzlan getur verið sérstaklega hættuleg. X. Engir þeir milliríkjasamningar skulu gerð- ir, er leggi hömlur á frjálsa bindindisstarf- semi. XI. 1. í áfengislöggjöfinni skulu refsiákvæði sett þann veg, að sem sterkust vörn sé gegn afbrotahneigð manna á því sviði, og létti sem bezt framkvæmd laganna og alla lög- gæzlu. 2. Reglur þær, sem settar eru eftirliti ríkis og bæja- eða sveitafélaga um áfengissölu, séu þannig gerðar, að sem auðveldastar verði í framkvæmd, og dragi sem mest úr áfengisneyzlunni. XII. Ríkisvaldinu ber að taka framfyrir höndur þeirra manna, sem með starfrækslu skemmt- analífs reyna að hagnýta sér skemmtanaþörf æskulýðsins, þannig að til skaða sé almennri reglusemi og velferð manna. Sveita- og bæjarfélög skulu einnig hafa vald til þess, að banna slíkar skemmtanir. Og yfirleitt ber að leggjast gegn öllu því fé- lagslífi og þeim siðvenjum, sem örfa áfengis- neyzluna og auka á hættur, sem eru henni samfara. Aftur á móti skal hlúð sem bezt að slíku þjóðaruppeldi, menningarstarfi og frí- stunda- og skemmtanalífi, sem miðar að því, að fullnægja athafna- og skemmtanaþörf manna og leiðir sem bezt í ljós, að áfengis- neyzla samræmist ekki vaxandi menningu. Tóbaksreykingar eru: 1. óþarfar og óhollar, 2. kostnaðarsamar og óþrifalegar, 3. eitra andrúmsloftið, 4. eru tálsnara unglingum, 5. valda lélegum vinnuafköstum og sviksemi við vinnu. 6. valda oft stórslysum og elds- voða. Látum tóbaksneyzluna deyja út með eldri kynslóðinni. Björgum æskulýðnum. Bindindisfréttir. Á bindindisþingi kvenna í Ameríku settu konur sér nýlega það markmið, að vinna til fylgis við algert bindindi eina milljón manna. Sterkustu samtök bindindismanna í brezka heimsveldinu er, The United Kingdom Alliance. Nýlega hélt sá félagskapur ársþing sitt í Manchester. Það var 95. þing þeirra. Þar upplýsti einn fundarmanna, að samkvæmt skoðanakönnun í Ameríku væri nú þegar einn þriðji hluti landsmanna Bandaríkjanna fylgj- andi algeru áfengisbanni. Stúkan Frón 20 ára Stúkan Frón nr. 227 varð 20 ára 10. des. s. 1. Sló hún þá upp myndarlegri afmælisveizlu í Góðtemplarahúsinu í Reyk.javík og bauð þar til allmörgum gestum. Samsætjnu stjórnaði Gunnar E. Benediktsson lögfræðingur, flutti stutt ávarp og bauð gesti velkomna. Minni stúkunnar flutti Lúðvig C. Magn- ússon skrifstofust.jóri, minni reglunn- ar: Guðmundur Illugason lögreglu- þjónn, minni Islands: Sveinn Sæmunds- son yfirlögregluþ.jónn, minni kvenna: Jón Hafliðason fulltrúi. Af gestum flutti fyrstur ræðu stór- templar, séra Kristinn Stefánsson, en margir aðrir tóku til máls, og sungið var milli ræðanna. Sérstök skemmtiatriði voru: Fiðlu- sóló: Óskar Cortes, með undirleik Haf- liða Jónssonar, Píanósóló: Hafliði Jóns- son, og síðast Heklukvikmynd, sem Kjartan Ó. Bjarnason sýndi og út- skýrði. Veitingar voru rausnarlegar og borð fagurlega búin. Stúkan Frón á sér allmerka sögu, þótt ekki sé hún eldri en 20 ára, og hefur oft látið mikið til sín taka. Hófdrykkja og áfengisreikningur Ritstjórnargrein í Free Press. ,,Þegar fólkið í Canada samþykkti það með atkvæðagreiðslu, hvað eftir annað. eftir fyrra stríðið, að fela stjórnunum umsjá áfengissölunnar, var því haldið fram að það yrði til þess að minna yrði drukkið. Síðustu skýrslur um áfengis- nautn í Canada sýna það að afleiðing- arnar hafa orðið ofdrykkja í stað hóf- drykkju. Árið 1946 eyddi Canadiska þjóðin 400.000.000 — fjögur hundruð milljón- um dollara — fyrir áfengi, samkvæmt þeim skýrslum. Þetta er svo að segja jafn mikið og öll útgjöld Sambands- stjórnarinnar fyrir síðasta stríð. Það eru 33.00 dollarar fyrir hvern mann, hverja konu og hvert barn í Canada. Eftir því að dæma eyðir hver einasta fjölskylda í landinu 130.00 doll- urum á ári fyrir áfengi, eða hér um bil 11.00 dollurum á mánuði. Fyrir þessa upphæð mætti kaupa býsna mikið af öðrum drykk — mjólk. Og það er stöðug ráðgáta fyrir margar húsmæður, hvern- ig þær eiga að haga svo fjárhag sínum, að geta keypt nóg af þeim drykk. Frá fjárhagslegu sjónarmiði er l:að næsta alvarlegt að þjóðin skuli eyða nálægt hálfri billjón dollara fyrir áfengi, en hitt er þó ennþá alvarlegra, að það sýnir aukinn áfengisþorsta, aukna á- fengiseitrun, aukna tölu drukkinna bíl- stjóra, og allt það annað illt. sem fylgir áfengisnautninni. Þessar nýju skýrslur eru í hæsta máta alvarlegar. Eftir heilan

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.