Eining - 01.01.1948, Blaðsíða 8

Eining - 01.01.1948, Blaðsíða 8
8 E I N I N G + Einlng Mánatinrbla® nm bindlndi»- o& menningarmál. UitNtjdri <>•? ábyrgrðnrmntSur: Pétur Sigurðsson, pósthólf 982, Reykjavík. Sími: 5956. Heimili: Bergþórugata 53. Blaðiö kostar 1 kr. í lausasölu, 10 kr. árgangurinn. Afgreiðslan hjá ritstjóranum. Illnfiifi er gefiÖ fit nti tilhlutun: Samvinnunefndar um lyindindis- mál. með fjárstyrk frá Stórstúku íslands, íþróttasambandi íslands, Sanvhandi bindindisfélaga í skólum og Ungmennafélagi íslands. í nefndinni eígr;‘ fiilltn'in einnig: Prestafélag íslands, Áfengis- varnanefnd lcvenna. Allíýðusamband íslands og Samband íslenzkra liarnakennara. \ efiidarmenn: Pétur Sigurðsson, formaður, Gísli Sigurbjörnsson. f'-hirðir, Jón Gunnlaugsson, ritari, frú Sigríður Björnsdóttir. s«'ra Jaknb Jónsson, lngimar Jóhannesson. yfirkennari, Hermann Guð- mundsson, forseti Alþ.samb. ísl., Stefán Jónsson, kennari, Stefán ltunólfsson frá Hólmi. Aramót Þegar maöurinn fœðist, er þaö að mestu leyti fullkomin ráögáta, hvort liann kann aö verða bööull manna eða bless- un kynslóöinni. Svo er og um livert nýtt ár, sem upp rennur. Á íslandi kvaddi áriö 1947 meö afturhvarfi ríkisstjórnar og Alþingis frá stöðugt vaxandi dýrtíö að viöleitni til bjarg- ar atvinnuvegum landsmanna og niöurfœrslu dýrtíðarinnar. En einnig þetta viröist œtla að verða ófriðarefni. Eftir sóun og fjárbruöl stríðsáranna stóö þjóöin andspœn- is óvenjulega kröppum gjaldeyrisvandrœöum. Tekin var upp skömmtun á flestri erlendri vöru, fyrirskipuö og undir- búin eignakönnun. Þetta raunalega neyöarúrrœöi í við- skiptalífi þjóöa, þar sem hinn lieiöarlegi maöur er settur á bekk meö f járdráttarmönnum og svikurum. Hekla hélt uppi gosi rúmlega hálft áriö og hefur aldrei áöur oröiö jafnmikill Ijómi um Heklugos sem aö þessu sinni. Múgur og margmenni streymdi í lieimsókn til Heklu, kvikmyndir voru teknar og vísindalegar rannsóknir iökaöar. Hvalf jaröarsíldin kom mönnum á óvart og skákaöi for- sjálni og búhyggindum nútíma atvinnulífs, en hún bœtti nokkuö fyrir brot sinnar norðlenzku systur, sem aö þessu sinni brást aö miklu leyti. Sunnanlands brást sól og þurrk- ur. Heyfengur bœnda varö ýmist rýr éöa enginn. Varla kom sólskinsdagur allt sumariö, en um Noröurlönd og víöar voru hitar og þurrkar svo miklir að tjóni ollu. í vesturhluta Evrópu voru þurrkarnir hinir mestu, sem komiö liöföu í 50 ár. Sums staöar lirundu skepnur niöur í haganum. í Svisslandi segja sérfróöir menn, aö þrjú ár muni þurfa til aö bœta upp allt búpeningsdrápiö þar, sök- um þurrka og uppskerubrests. Talið var, aö hveitiuppskera Englands mundi veröa 30% minni, en í meöalárum. En flóö og snjóþingsli vetrarins ollu þar stórtjóni, svo aö nœstum er einstakt í sögu þeirrar þjóöar. Alls fórust yfir ein milljón sauöfjár, í einum landshluta 200,000. Útflutningur kinda- kjöts frá Welsh.. sem hefði getaö oröiö 400,000 kroppar, varö aðeins 40,000. í Indlandi hafa milljónir manna verið rifnir upp frá heimilum sínum og störfum. Matvara er þar nú ekki meiri, e.i hún var 1943, er hungursneyöin geysaöi í Bengal og ein milljón manna dóu úr hungri. / Suðurhluta Asíu lifir 90% íbúanna á hrísgrjónum, en lirísgrjónaforðinn er nú aöeins ein:z þriöji af því, sem þarf tii þess aö fullnœgja þörfinni. í Bcndaríkjunum varö maísuppskeran svo rýr, aö þaö mun draga að mun úr útflutningi kornvöru. Hveitiuppskera Frakka varö 50% minni en áriö áöur, og þjóöin liefur nú staðið á þröskuldi borgarastyrjaldar, átt aö stríöa viö hat- römni verkíöll cg vandrœöi, aem valdiö hafa henni stór- tjóni. Á Italíu geröi ein milljón bœnda verkfall um tíma. í Grjkklandi eyðilagðist einn þriöji hluti hveitiuppsker- unnar, og yfir 300 þúsundir manna liafa oröið að yfirgefa heimili sín og flýja myröandi og rœnandi herflokka. Tjón af eldsvoöa, bœöi um öll Noröurlönd og víðar, hefur oröið miklu meiri en mörg undanfarin ár. Gjaldeyrisvand- rœöi kreppa víöa aö þjóöum og brezka heimsveldiö liefur staöiö andspœnis liiiium mestu fjárhagserfiöleikum, sem sögur fara af hjá þeirri þjóö. Stríö liefur veriö í Indónesíu, í Indlandi og borgarastyrj- óld í Grikklandi, einnig í Kína, og í Palestínu hafa verið ^ r stöðug manndráp og skemmdarverk, og í lok ársins dregur þar upp ófriöarbliku. Segja má, aö enn logi í rústum styrjaldarinnar víðsvegar um heim. Alls staöar er ókyrrð, uppþot, œsingar, verkföll, skcmmdarverk og hatrömm stétta- og flokkabarátta. Millj- ónir manna búa viö hungursneyð. Börn eru vansköpuð af nœringarskorti og mikill fjöldi manna deyr úr hungri, en aðrir lifa í ofáti og ofdrykkju. Á íslandi drukku menn áfengi fyrir 40—50 milljónir króna, í Englandi fyrir nœstum 700 milljónir stpd., í Banda- ríkjunum fyrir 7 milljaröa eöa miklu meira. Enginn veit um þá sóun til fulls. í Svíþjóð drukku menn áfengi fyrir tœpar 800 milljónir sœnskra króna, í Danmörku fyrir 5— 600 millj. kr., í Noregi fyrir 4—500 millj. kr., í Canada fyrir 4—500 milljónir dollara. Ógrynni af matvöru, sem nœgt heföi til fóöurs milljón- um hungraöra manna, hefur veriö snúiö í áfengi, sem veld- ur meira tjóni en allt annað, á eignum manna, mannslíf- um, menningu, verömœtum, siöferöi og öllu dyggöugu og lofsveröu, en veldur liruni lieimila, slysum, glœpum, ofheld- isverkum, úrkynjun, eymd, fátœkt og ólýsanlegu böli í öll- um myndum. Slíkar eru sárabœtur þjóðanna. i Sé það satt, aö liver og einn uppskeri samkvœmt því er hann sáir, þá hefur illa veriö sáö. Ef hinar svo kölluöu kristnu þjóöir heföu ástundaö á 17. og 18. öld kristilegar dyggöir, sanngirni, jöfnuö og réttlœti í viöskiptum, atvinnumálum og aðbúö manna á öllum sviö- um, þá heföi aldrei neinn efniskyggju-Marxismi stungið upp höföinu, engin frelsisstyrjöld áti sér staö í Ameríku, engin stjórnarbylting í Frakklandi, engin bylting í Rúss- landi, enginn facismi eöa Hitlerismi oröiö til, og engar tvœr heimsstyrjaldir með öllum þeirra. ógnum og manndrápum. j Þá þyrfti nú enginn aö stara ógnþrungnum augum á at.óm- sprengju liangandi í loftinu rjfir höföum ógcefusamra þjóöa. Allt þaö blóö, sem runniö hefur í þessum hamförum kyn- slóöanna, munu komandi aldir krefja af liinum ótrúu og sviksömu þjónum, sem fyrir miklu var trúaö, en brugöust köllun sinni og létu meinsemdirnar þróast og dafna í skjóli andvaraleysis, eigingirni og makinda, og þeirrar skynhelgi, sem játar Guö meö vörunum en afneitar honum í verki. Aöeins þar, sem kristindómur þjóöa hefur brugöizt, getur efnishyggjan brotizt til valda, ræktaö guöleysi, stundað J skemmdarverk og steypt mannkyni í glötun. Hvaö fœrir svo áriö 1948 þjáöu mannkyni? Þaö er ekki allt komiö undir alþjóöaráöstefnum og lög- gjafarþingum þjóöa. Sá ófriöarandi, sem stööugt veitir mannkyni dýpstu sárin, er aö verki í fjölskyldulífi manna um allan heim og í brjósti lwers einstaklings. Vilji menn fá betri heim og bjartari tíma, en veriö hafa, þá veröur hver og einn aö stunda sjálfsbeírun og þegnskap í hvívetna. Þá veröur jafnvel eignakönnun óþörf, og ekki aöeins grœdd sár þjóöanna, heldur og þvegin af þeim marg- ur smánarblettur. MeÖ slíkum ásetningi skulum við stíga inn fyrir þröskuld liins ókomna og bjóöa hver öðrum: GLEÐILEGT NÝÁR.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.