Eining - 01.01.1948, Qupperneq 10

Eining - 01.01.1948, Qupperneq 10
10 E I N I N G snjóar og frost (8. des. 14°) og síð- ustu vikur ársins urðu mjög hrakviðra- samar. — Aflabrögð voru með bezta móti framan af vetrarvertíð, en er á leið, hamlaði gæftaleysi sjósókn tilfinnin- lega. Aftur gaf haustvertíð góðan afla. Hinn 1. okt. var Þórður yfirdómari Jónassen kosinn bæjarfulltrúi í stað Jóns yfirdómara Johnsen, sem fór aftur utan um haustið til vetrardvalar ytra. Jónassen var einnig kosinn oddviti full- trúanna. — í niðurjöfnunarnefnd var kosinn Edvard Siemsen í stað M. W. Bjerings. Um vorið barst hingað svar stjórnar- innar við málaleitun stiftamtmanns Hoppe um upptöku Reykjavíkur í sam- band dönsku kaupstaðanna um bruna- mál og vátryggingu gegn eldsvoða. Taldi stjórnin enn meðteknar upplýsingar ó- fulinægjandi, en lýsti því yfir, að ef Reykvíkingar vildu stofna með sér vá- tryggingafélag gegn eldsvoða, mundi stjórnin fús til að styðja það, með því að tryggja í því félagi húseignir hins opinbera hér í bæ með fullu virðingar- verði þeirra og takast á hendur ábyrgð á allt að 10 þús. ríkisdölum, ef eldsvoða bæri að höndum, þó þannig, að einn þriðji hluti virðingarverðs húsanna væri ávallt í ábyrgð eiganda. Um haustið var borgaarafundur haldinn um málið og þessu boði stjórnarinnar hafnað, því að tryggingin væri of lítil til þess að hús- eigendur gætu fengið lán gegn veði í húsum þeirra. Kgl. tilskipun mælti svo fyrir, að stækka skyldi og umbæta dómkirkjuna samkvæmt tillögum og uppdrætti L A. Winstrups húsameistara. Kostnaður var áætlaður 30 þús. rdl. Skal byggja aðra hæð úr múrsteini ofan á kirkjuna alla, kórstúku austur úr henni og forkirkju fram úr, hvorttveggja úr múrsteini. — Einnig var ákveðið að gera skuli nýja altaristöflu og setja sigurverk í turninn. Jafnframt var í annarri kgl. tilskipun mælt svo fyrir, að dómkirkjuprestur skuli leystur frá þeirri skyldu að flytja messur í Viðeyjar-bænhúsi, en sú þjón- usta falin prestinum að Mosfelli og Gufu nesi, sem embætti þar 10. hvern helgan dag. — Hin stækkaða dómkirkja var komin undir þak í lok ágústmánaðar um sumarið. Sá hét Schytte, danskur timb- urmeistari, er stjórnaði verkinu. — Með- an á endurbyggingu dómkirkjunnar stóð, fór messuflutningur fram í lík- húsinu í nýja kirkjugarðinum, en tvö prestsefni voru um sumarið vígð af biskupi í Viðeyjar-bænahúsi. Þessi tvö prestsefni voru Magnús Hallgrímsson Thorlacius, aðstoðarprestur að Hrafna- gili og Páll Jónsson aðstoðarprestur til Miklabæjar í Skagafirði. Fjáraðskilnaður Reykjavíkurkaup- staðar og Seltjarnarnesshrepps var loks, með kansellíbréfi 7. sept. um haustið, endanlega fastmælum bundinn. Meira. r Aíengið sigraði Evrópumeistarann Huseby I dönsku íþróttablaði, sem gefið er út á vegum „Politiken“, birtist grein um íslenzka íþróttamenn þann 26. ágúst í sumar. Þar er yfirleitt farið mjög lofsam- legum orðum um íslenzka íþróttastarf- semi og einstaklinga innan íþróttahreyf- ingarinnar og það er hrífandi að sjá, hve greinarhöfundur virðist hafa fylgst vel með íþróttaafrekum okkur íslend- inga. En það er sérstaklega einn kafli í þessari grein, sem vekur eftirtekt, en það er frásögn af okkar fyrsta Evrópu- meistara, Gunnari Huseby. Hann er þarna talinn „sorgarþátturinn í ís- lenzkri íþróttasögu". Eitt af stærstu vandamálum okkar þjóðfélags hefur verið baráttan við á- fengisbölið. Þessi barátta hefur sótzt mjög misjafnlega á hinum ýmsu stöð- um í þjóðfélaginu og hafa sumar af okk- ar æðstu menntastofnunum verið sak- aðar um að leggja þar lítið að mörkum, er til framfara megi telja. Og svo hafa limirnir oft viljað dansa eftir höfðinu. í rauninni er sama sagan í þessu máli, innan íþróttahreyfingarinnar. Til forustu íþróttamálanna hafa að vísu oft og víða valizt góðir og gegnir menn, en því miður vilja þetta stund- um verða misjafnir náungar, sem hvergi annars staðar hafa átt þess kost að koma nafninu sínu á prent. Stundum eru þeir vel þekktir fyrir ölvun á opin- berum skemmtistöðum og jafnvel á samkomum, sem þeirra eigin íþrótta- félög standa fyrir. Ég hef komið á skemmtun hjá íþróttafélagi, þar sem forustumaðurinn var að þvælast blind- fullur, sjálfum sér og öðrum til skamm- ar og leiðinda. Hver getur ætlast til, að undir slíkri forustu geti alizt upp reglusamir og dugandi íþróttamenn. — Svo vitna þess- ir forvígismenn í Huseby og segja: — „Sjáið Huseby. Enginn drekkur meira en hann, sjáið árangurinn". Já, sjáið árangurinn. Og nú skulum við gefa þessu danska íþróttablaði orðið: Áfengið sigraði Huseby. Og svo kom- um við að hinum sorglega kafla í í- þróttasögu Islands, sem heitir Gunnar Huseby. Þessi ungi maður, (sem aðeins er 24 ára, en lítur út fyrir að vera 40) hefur meðfædda íþróttahæfileika og auk þess sjaldgæfa hæfileika til árangurs í kúluvarpi og kringlukasti. En hættu- legasti óvinur íþróttanna, áfengið, hef- ur náð valdi á honum. Það var einnig á góðri leið með það fyrir einu ári, en framúrskarandi þjálfarar hjálpuðu hon- um í þeirri baráttu. Árangurslaus til- raun var einnig gerð í ár, en Huseby hefur misnotað öll þau ágætu tækifæri, sem honum hafa verið gefin, og nú er hann glataður íslenzkum íþróttum. Hryggilegt að íþróttirnar skyldu tapa í þessari baráttu við áfengið. (Idrætsbladet 26. ágúst 1947) Ég geri ráð fyrir, að flestir geti tek- ið undir með danska blaðinu, að það sé hryggilegt, að íþróttirnar skuli þurfa að bíða ósigur fyrir áfenginu. En svo hefur oft farið og mun fara enn, ef við tökum ekki upp miklu strangari bar- áttu gegn áfenginu innan íþróttastarf- seminnar, en við höfum gert hingað til, því vægast sagt höfum við flotið sof- andi að feigðarósi í þeim efnum. Guttormur Sigurbjörnsson. Höfðinglegar gjafir. Bæjarstjórn Siglufjarðar hefur gefið stúk- unni Framsókn á Siglufirði 10 þúsund krónur í afmælisgjöf á 25 ára starfsafmæli stúk- unnar. Skal upphæð þessi renna í nýbygg- ingarsjóð sjómannaheimilisins. Á síðastliðnu ári færði frú Svafa Mathiesen barnastúkunni Kærleiksbandið í Hafnarfirði 12 þúsund króna gjöf frá sér og nokkrum mönnum, til minningar um mann hennar, Árna Mathiesen, sem lézt á liðnu ári. Skal stofna sjóð með þessari fjárupphæð er verja skal til bindindisstarfsemi, og er tilhögun og framkvæmd þess lögð í vald stúkunnar. I. O. G. T. Stúkan Daníelsher í Hafnarfirði fékk mynd- arlega heimsókn á fund sinn þriðjudaginn 3. des. s. 1. Það var stúkan Vík í Keflavík, sem heimsótti, og fjölmennti mjög. Félagar henn- ar voru næstum 50, en auk þess var hátt á annan tug úr Reykjavík og Hafnarfirði. Stúkusalurinn var þéttsetinn og meiri hlut- inn var ungt fólk. Stúkan Daníelsher fagnaði gestum vel og veitti myndarlega kaffi, smurt brauð og kökur. Ræðuhöldum var í hóf stillt, en á eftir var lífgað upp með dansinum. Stúkan Vík í Keflavík var stofnuð í fyrra, og áttu þau hjónin, Gissur Pálsson rafvirkja- meistari og frú Sigþrúður Pétursdóttir, drjúg- an þátt í að vekja hana til lífsins, en þar hefur vel tekizt, því að nú telur stúkan 140 félaga. Unga fólkið er í meiri hluta, en traust- ir og reyndir eldri félagar þar á meðal. Meira áfengi, fleiri drykkjumannahæli. Ráðgert er að reisa í Stokkhólmi mikið sjúkrahús handa áfengissjúklingum. Á hvaða leið er sú heimsmenning, sem eitr- ar fyrir börn sín með áfengi og margs konar skaðnautnum, en kostar svo óhemju fé til að annast um afbrotamenn og sjúklinga, sem slíkt nautnalíf framleiðir? Matvara eyðilögð. Menn sveltir. England vantar vinnukraft, en 400,000 manna eyða öllum tíma sínum og starfskröft- um við áfengisgerð. England skortir brauð og í nágrenni þess deyr fólk úr hungri, samt notar þessi þjóð níu hundruö þúsund lestir af korni til áfeng- isgerðar. Væri þetta korn notað til skepnu- fóðurs, mætti -hafa upp úr því 100,000 til 125,000 lestir af kjöti og 1,000,000,000 -— einn milljarð eggja. Þessar tölur eru birtar hér samkvæmt hin- um beztu heimildum. Getur þjóðum verið sjálfrátt, sem breytir matvöru hungraðra manna í skaðlegan eiturdrykk, sem veldur fjárhagslegu, siðferðilegu, menningarlegu og heilsufarslegu böli, slysum, glæpum, úrkynj- un og niðurlægingu í öllum myndum?

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.