Eining - 01.01.1948, Blaðsíða 11

Eining - 01.01.1948, Blaðsíða 11
E I N I N G 11 # Afeitgisniáliii á Alþingi \ s s Á Alþingi því, sem nú situr, hefur verið rætt um áfengismál og bindindis- starfsemi meira en oft áður á því virðu- lega þingi, og hafa þingskjöl um þessi mál, ýmist í formi þingsályktanatillagna eða lagafrumvarpa orðið fleiri í haust, síðan þingið hófst, en nokkru sinni fyrr á svo skömmum tíma. Þá verður ekki annað sagt, en að umbjóðendur alþing- ismanna, kjósendurnir í landinu, hafi fylgzt nokkuð með því, sem fram hefur farið í þessum málum í Alþingi. Er það vel farið, að þeir láti sig nokkru skipta þingmál, enda getur það verið styrkur alþingismönnunum í vanda- sömu starfi þeirra. Áfengismálin eru vissulega í flokki hinna vandasömu mála. Hvort sem þau eru rædd á Alþingi eða annars staðar, virðist mönnum bera saman um brýna nauðsyn þess, að eitthvað sé gert, sem bæta mætti núverandi ástand. En skipt- ar skoðanir eru um, hvað gera skal, og er það ekki undarlegt í svo alvarlegu máli. Um eitt virðast menn þó sammála, að auka beri bindindisfræðslu, og er nýjasta framkomna frumvarpið einmitt um það, að hækka verulega framlag ríkisins til bindindisfræðslunnar. Flyt- ur það Bjarni Benediktsson dómsmála- ráðherra. Það ætti að vera sameiginleg ósk allra Islendinga, að Alþingi mætti takast að leysa þessi mál á sem beztan hátt og að vilja sem flestra landsmanna. Til fróðleiks skal getið hér á eftir erinda þeirra, sem Alþingi hefur í haust borizt um áfengismálin. Stórstúka íslands skorar á Alþingi, að samþykkja tillögu til þál., um ráð- stafanir til að draga úr áfengiskaupum. Stjórn áfengisvarnanefndar kvenfé- laga í Reykjavík og Hafnarfirði sendir ályktun áfengisvarnar kvenna í Árnes- sýslu um sama efni. Sama nefnd 1) skorar á Alþingi, a) að vinna gegn aukinni áfengisneyzlu, b) að sjá um að áfengislög landsins gildi á Keflavíkurflugvelli. 2) mómælir a) framkomu frv. um ölgerð og sölu öls, b) hömlulausri sölu áfengis og tóbaks, meðan nauðsynjavörur eru skammtaðar. Samvinnunefnd bindindismanna skor- ar á Alþingi að samþykkja tillögu til þál. um: 1) ráðstafanir til að draga úr áfengisnautn, 2) afnám vínveitinga á kostnað ríkisins, og 3) afnám sérrétt- inda í áfengiskaupum. Ennfremur skor- ar nefndin á ríkisstjórnina og Alþingi að auka bindindisfræðslu og koma góðu skipulagi á allt bindindisstai’f í landinu. Stúkan Framtíðin i Reykjavík skor- ar á Alþingi að samþykkja sömu tillögu til þál. Héraðssamband U. M. F. Vestfjaróa skorar á Alþingi og ríkisstjórn 1) að láta lögin um héraðabönn koma til fram- kvæmda sem allra fyrst, 2) að afnema vínveitingar í opinberum veizlum á kostnað ríkisins, 3) að láta bindindis- menn ganga fyrir við embættaveitingar. Mótmæli gegn lagafrumvarpi um öl- gerð og sölumeðferð öls í landinu: Frá Stjórn áfengisvarnanefnd kvenfélaga í Reykjavík og Hafnarfirði. — Stórstúku íslands. — Stúkunni Hörpu í Bolungavík. — Verkakvennafé). Framsókn í Reykjavík. (vill algert aðflutningsbann). — Afengisvarnanefnd kvenfélaga á Siglu- firði. — Stúkunni Verðandi í Reykjavík. — Samvinnunefnd bindindismanna. — Umdæmisstúkunni nr. 1. — Stúkunni Víkingur í Reykjavík. — Hinum almenna kirkjufundi í Reykjavik. — Þingstúku Reykjavíkur (3 skjöl). — Stúkunni Borg í Borgarnesi. — Stúkunni Framtíðin í Reykjavík. — Afengisvarnanefnd kvenna í Vestmanna- eyjum. — Stúkunni Freyju í Reykjavík. — íþróttasambandi íslands. — Stúkunni Daníelsher í Hafnarfirði. ■—• 20. þingi Alþýðusambands íslands í Reykjavík. — Áfengisvarnanefnd kvenfélaga á Akur- eyri. — Stjórn kvenfélags Eyrarbakka. — Áfengisvarnanefnd kvenfélags Eyrar- bakka. — Kvenfélagi Alþýðuflokksins í Reykjavík. — Stúkunni Mínervu í Reykjavík. -—• Stjórn íþróttasambands Akureyrar. ■—• Kvenfélags Hraungerðishrepps. -—• Stúkunni Einingunni í Reykjavík. — Kvenfélagi Grindavíkur. — Áfengisvarnanefnd Ólafsfjarðar. — Stúkunni Hlíðin í Fljótshlíð. — Stúkunni íþöku í Reykjavík. — Stúkunni Hörpu í Bolungavík. — Kvenfélaginu Bergþóra í Vestur-Land- eyjum. — Stjórn Ungmennafélags Islands. — Ungmennasambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu. — Stúkunni Dröfn í Reykjavík. — Sjálfstæðiskvennafélaginu Varboða í Hafnarfirði. — Áfengisvarnanefnd Bólstaðahlíðarhrepps í Austur-Húnavatnssýslu. — Áfengisvarnanefnd kvenna á Stokkseyri. — Stúkunni Frón í Reykjavík. — Almennum borgarafundi á Akureyri 25. nóvember. — Stúkunni Framför í Garði. — Stúkunni Vík í Keflavík. — Verkalýðsfélaginu Skjöldur á Flateyri. — Stúkunni Straumhvörf á Flateyri. — Fundi í Neskaupstað, sem haldinn var að tilhlutan kvenfélagsins Nanna og slysavarnafélagsins þar. —- Stjórn hins skagfirzka kvenfélags. — Barnastúkunni Fyrirmyndin. — Stúkunni Dagsbrún á ísafirði. — Fjórum kvenfélögum í Barðastrandar- sýslu. — 686 alþingiskjósendum á Akureyri. — Stúkunni ísfirðingur. — Sambandi sunnlenzkra kvenna. — Stúkunni Akurblóm á Akranesi. — Kvenfélagi Gaulverjabæjarhrepps. — Kvenfélaginu Sigurvon í Staðarsveit á Snæfellsnesi. — Kvenfélagi Húsavíkur, stúkunni Pól- stjarnan og verkakvennafélaginu Von á Húsavík. — Náttúrulækningafélagi íslands. — Stúkunni Framsókn á Siglufirði. — Stúkunni Hörpu í Bolungavík. (undir- skrift 282 kjósenda). — Mæðrafélaginu í Reykjavík. — íþróttabandalagi Hafnarfjarðar. — Áfengisvarnanefnd kvenna á ísafirði. — Sameiginiegum fundi stúknanna Isafold- ar og Brynju á Akureyri. — Umdæmisstúku Vestfjarða. — Kvenfélagið Neisti í Barðastrandahreppi. Alls eru þetta 75 erindi send Alþingi varð- andi áfengismálin. Samvinnunefnd bindindismanna. Glæpir og áfengi ,,Eigi sigur að vinnast á glæpalífinu, verður að sigra áfengisbölið", segir í norska blaðinu, Follcet. Þar er hryggileg saga ungs manns. Hann er 24 ára, sýnir þrítugri konu giftri líkamlegt ofbeldi, er dæmdur í tveggja ára fangelsi, þótt hann væri drukkinn, er hann framdi ofbeldisverk- ið. Hann sækir um náðun, um 100 kon- ur og karlar styðja með undirskriftum náðunarbeiðni hans, og hann fær hinn bezta vitnisburð hjá öllum, sem eru honum handgengnastir. Náðunarbeiðni hans er vísað á bug og hann situr í fangelsi í tvö ár. í desember 1946 er hann aftur frjáls maður, en í marz 1947 er hann tekinn fastur á ný og þá fyrir enn alvarlegra ofbeldisverk. Einn- ig þá var hann drukkinn. Við réttarhaldið kom í ljós, að nokkru áður en hann beitti konuna ofbeldi, hafði hann haft í frammi nauðgunar- tilraun við ungling. Einnig þá var hann drukkinn. Læknar geta ekki fundið neitt ónor- malt við unga manninn. Um slæma erfð er ekki að ræða, hann er frá góðu heirn- ili og hafði aldrei orðið fyrir neinu ó- heppilegu á bernskudögum sínum. ,,Það er áfengið, sem hefur gert hann að glæpamanni“, segir norska blaðið, og undirstrikar þá setningu. Bætir svo við fleiri hryggilegum sögum um drykkjuskap og lagabrot. Sumar og vetur Gaman er í sumarsælu sveima um blómgan skógarrunn. En í vetrar aftankælu er mér líka fegurð kunn: Þegar jörðu mildur máninn munargeislum blíðum vefur, og í friði undir snjánum anganrósin ljúfa sefur. Hákon. Hafir þú verið í samkvæmi, þar sem þér hefur fundizt þú þurfa að skamm- ast þín fyrir grófar hendur og sprungn- ar af erfiði, þá hefur þú verið í slæmu samkvæmi. — Björnstjerne Björnson.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.