Eining - 01.01.1948, Blaðsíða 13

Eining - 01.01.1948, Blaðsíða 13
E I N I N G 13 Mdl er þeim að sjd að sér „Bi'egst Amerika æskulýð sínum?“ spyr norskt blað, og hefur svo eftir Philly Wylie í amerískm blaði þessar setningar: „Fræðslu- og skólakerfi Bandaríkj- anna hefur brugðizt gersamlega, (spill- et fallit). Því hefur ekki tekizt að ala upp menn til þess að verða þroskaðir, menntaðir og vel upplýstir þjóðfélags- þegnar með ábyrgðartilfinningu. Þeir eiga því ekki til nægilegt siðgæðisþrek og andlegan styrkleika. Hjónaskilnuð- um fjölgar, ungir menn eiga ekki sál- arlegt jafnvægi og geðró, og yfirfullt er í fangelsum og geðveikrasjúkrahús- um. Hinn mest áberandi galli fræðslu- k kerfis okkar er sá, að unglingarnir þroskast ekki til að geta tjáð sig greini- lega. Orðaforði þeirra, sem koma frá þessum skólum, er svo lítill, að sýni- lega hafa þeir ekki fengið þá upp- fræðslu, sem þarf til þess, að menn geti hugsað skýrt og komið orðum vel og skynsamlega að hugsun sinni. Við eigum aðgang að betri þroskalindum, en þeim, sem hér um ræðir, en helzt lítur út fyrir, að fjöldinn allur vilji ekki sinna öðru en hégómlegum kvik- \ myndum og léttúðugu útvarpsrausi". Svo segist þessum blaðamanni í nóv- ember 1947. En ekki er það glæsilegra, sem sagt er í Reader’s Digest, október sama ár. Þar segir: „Spurningapróf í gagnfræðaskólum um öll Bandaríkin, hafa leitt í ljós þá alvarlegu staðreynd að mikill hluti nem- endanna er ekki sæmilega læs“. Þar segir svo, að þessi æskulýður geti fært sér í nyt myndablöð og ýmis- legt fánýtt léttmeti, einkum skólabæk- ur. En öðru máli gegni um fullkomn- ara lesmál. Lestrarkunnátta sé þó mjög nauðsynleg nú um stundir, og sökum skorts á henni, geti þessi æskulýður ekki notið sín til fulls menningarlega, félagslega eða við almenn störf. I 31 ríki Bandaríkjanna hafa kenn- arar lýst yfir því, að „í 96 prósent af bekkjum móðurmálskennslu gagnfræða- skólanna sé skortur á lestrarkunnáttu nemendanna ýmist yfirgnæfandi eða mjög áberandi tálmun. Meiri hluti þess- ara kennara fullyrða, að nemendur þeirra lesi minna, að fráteknum skóla- bókum, en tíðkaðist fyrir 10 árum“. Engum dettur víst í hug, að þessir unglingar séu ver gerðir né gefnir, en unglingar voru áður. Hitt er að verða augljóst, að þjóðaruppeldi margra þjóða hefur verið á hinum verstu refilstig- um. Fróðleikshrafl vegur ekki upp á móti öllu æsimáli og áfengi nautnalífs og fánýtra skemmtana, sem ágjarnir aðilar selja til siðspillingar og afmennt- unar kynslóðinni. Má hér nefna kvik- myndir, reyfara, hasarðblöð, margvís- legar lélegar skemmtanir, áfengi og sígarettur. Allt er þetta gróðavegur mikill fyrir seljandann, en mismunandi skaðræði fyrir kaupandann. Hér við bætist svo hin sorglega stað- reynd, að mikill fjöldi þeirra manna, sem fást við uppeldi æskulýðsins í skól- um, á heimilum og jafnvel innan kirkj- unnar, á enga þá lífsskoðun til, sem hægt er að segja um, að grundvölluð sé óhagganleg á bjargi mannkærleika og guðshyggju. En án þeirrar undir- stöðu siðgæðis og andlegs þroska, verð- ur allt uppeldi rótslitið, losaralegt og léttvægt. Fróðleikshrafl má sín þar lít- ils. Logheitar stjórnmálaskoðanir, sem hafa asklokið fyrir himinn og „magann fyrir sinn Guð“, bæta heldur ekki úr slíkum vanda, jafnvel ekki guðfræði- þynka eða harðsoðinn „rétttrúnaður“, án þeirrar auðlegðar og rótfestu, sem að- eins fæst við þann vizku- og heilsu- brunn, sem aldrei hefur brugðizt þeim, er svölunar og næringar hafa leitað sér þar, bæði þeim sjálfum og öldum og óbornum til varanlegrar velferðar og blessunar. Eigi fræðarar æskulýðsins að geta auðgað hann þeirri þekkingu, siðgæðis- þreki og manndómi, sem stenzt hverja raun, þá verða þeir að hafa kaíað djúpt eftir sannleiksperlunni dýru. Pétur Sigurðsson. Kaupið timbur og ýmsar aðrar byggingavörur bjá sfærstu timburverzlun landsins Timburverzlunin VÖLUNDUR h.í Reykjavík Búnaðarbanki Islands Höfum áuallt fyrirliggjandi allskonar Stofna'ður með lögum 14. júní 1929. hjúkrunargögn og umbúðir. Útbúum með stuitum fyriruara meðala- kassa uið allra hcefi í stutt og löng ferðalög. Bankinn er sjálfstæð stofnun undir scrstakri stjórn og er eign ríkisins. — Trygging fyrir innstæðufé er ábyrgð ríkissjóðs auk eigna bankans sjálfs. Bankinn annast öll innleml bankaviðskipti, tekur fé á vöxtu í sparisjóði, hlaupareikningi og viðtöku- skirteinum. — GreiBir iiœstu innlánsvexti. INGÓLFS APÓTEK i Aðalaðsetur í Reykjavík: Austurstræti 9. Útibú á Akureyri.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.