Íþróttablaðið - 01.01.1925, Blaðsíða 8

Íþróttablaðið - 01.01.1925, Blaðsíða 8
2 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Fyrsta fimleikaför I. R. til Noröurlandsins. Eftir Bennó. I. Flestir menn hafa einhver hugðastörf (hjáverkastörf). Mjög mikið ríður á því að þessiTáhugastörf séu vel valin, svo þau verði bæði einstaklingnum og þjóðfélaginu til gagns og farsældar. Það eru nú rúm átta ár, síðan fyrst var vakið máls á því í Iþróttafélagi Reykjavíkur (= I. R.), að senda ætti beztu fimleika- menn félagsins kringum land, að sýna fim- leika í öllum helztu kaup- stöðum lands- ins; því það mundi áreið- anlega vera bezta leiðin, til að útbreiða fimleika-listina í okkar strjál- bygða landi. En fimleikar eru af mörg- um taldir vera aðalundirstaða fyrir frekari í- þróttaiðkunum, og keppni í þeim, og ættu íþróttamenn vorir að muna það betur, en þeir hafa gert til þessa. Er enginn efi á því, að t. d. íslenzka glíman yrði ólíkt fallegri og tilþrifameiri, ef glímumenn vorir vildu leggja meiri stund á fimleika, en þeir hafa gert hingað til. En bæði vegna fjárskorts og annara orsaka, hefir aldrei orðið neitt úr þessum fimleikaleiðangri í. R., fyr en á þessu ári (þ. e. 1923), að félagið sendi karlasveit sína norður á Akureyri. Þó hafði, eins og gefur að skilja, oft verið á það minst inn- an félags, og áhuganum fyrir slíkri útbreiðsluför haldið vakandi. I fyrstu var tilætlunin að senda minst 10 manna sveit, en er leið að burtfarardegi, komu ýmsar óvaentar hindranir, er höfðu þau á- hrif að við urðum að eins sex fimleikamennirnir, er norður fóru fyrir félagið að sýna, og voru það þessir: Björn Steffensen, Ósvaldur Knudsen, Sigurliði Kristjánsson, Magnús Þorgeirsson, Tryggvi Magnússon og undirritaður. Auk þess voru með í förinni: Steindór fimleika- kennari Björnsson, frá Gröf, sem var umsjónarmaður áhalda, og Guðm. myndhöggvari Einarsson, frá Mið- dal, er var fánaberi á sýningunum. Fimleikakennari Björn Jakobs- son, frá Narfa- stöðum, stjórn- aði fimleika- sveitinni, og æfði hana sér- staklega undir þessa norður- för, og það á hverjum degi síðasta mán- uðinn. Þótti stjórn íþrótta- félagsins og öðrum áhuga- sömum félags- mönnum, þessi sveit vera vel valin, og ef- uðust ekki um að hún mundi verða félag- inu til sóma, og íþrótta- stefnunni til gagns og framfara. Varð sú og raunin um sýningarsveitina, eins og síðar segir. II. Við lögðum af stað héðan 11. júlí, með e.s. »Ðotníu« áleiðis til Akureyrar. Skipið átti að fara héðan kvöldið áður, en vegna bilunar á gufupípu gat það ekki farið fyrr en daginn eftir. Vegna þessarar tafar gat ekki orðið úr fimleikasýningu á Skutulseyri (— Isafirði), eins og til stóð; því þang- að kom skipið daginn eftir (kl. 5 árdegis), eftir beztu sjóferð. Skipstjórinn var ófáanlegur til að Frá vinstri: Guðm. Einarsson (fánaberi). Björn Jakoksson (fimleikakennari). Ben. G. Waage (fararstjóri). Björn Steffensen (gjaldkeri fararinnar'. Ósvaldur Knudsen. Sigurliði Kristjánsson. Magnús Þorgeirsson. Trvaavi Magnússon og Steindór Björnsson (umsjónarmaður áhalda).

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.