Íþróttablaðið - 01.01.1925, Blaðsíða 12

Íþróttablaðið - 01.01.1925, Blaðsíða 12
6 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Þennan skúr ætti að byggja svo að færa mætti hann úr stað, og taka í burtu þegar skautasvell væri ekki. Þá ætti bæjarstjórnin að láta einhverja af hinum föstu starfsmönnum á slökkviliðsstöðinni hjálpa til við útbúnað skautasvæðisins og lána á- höld til þess (t. d. vatnsslöngur og skófiur). Ef þessu yrði komið í framkvæmd, þá er víst að Skautafélagi Rvíkur mundi ekki verða skotaskuld úr því að láta einnig búa til skeiðhring fyrir hrað- hlaupara, og sérstakt svæði fyrir þá, er listhlaup iðka. Á skautasvæðinu ætti jafnan að vera skauta- kennari, til að leiðbeina efnilegum unglingum. Þá þarf að verja skautasvæðið fyrir ágangi, og væri heppilegast að lögregluþjónar bæjarins gerðu það. Eg tel sjálfsagt að bæjarstjórn Rvíkur veiti ein- hvern fjárstyrk til þessara umbóta, t. d. með því skilyrði, að öll skólabörn fengju ókeypis að vera á skautasvæðinu og einnig tilsögn í skautahlaupi hjá Skautafélaginu. Það eru vitanlega fleiri umbæt- ur, sem gera þyrfti við tjörnina, en þetta sem hér hefir verið drepið á, er það sem mestu máli skiftir fyrir skautafólkið. B. Til skautamanna. Hinn heimsfrægi skautamaður Norðmanna — Oscar Mathisen, — sem nú er orðinn atvinnu- maður, hefir gefið eftirfarandi ráð og leiðbeiningar til allra skautamanna, en einkanlega þeirra, sem hraðhlaup iðka. »Ef menn ætla sér að vera góðir skautamenn, þá er það fyrsta sem menn eiga að gera, að hætta algerlega að neyta tóbaks og áfengis, og það nokkrum mánuðum áður en skautaæfingar byrja. Það er nauðsynlegt, til þess að hjartað og lungun séu undir það búin, að þola hina erfiðu áreynslu. Fara skulu menn sér hægt í fyrstu, með- an þeir eru að ná réttum andardrætti, og eru að fá stirðleikann úr bakinu; en síðan auka og herða á æfingunum, smátt og smátt. Eftir 8 daga er mátulegt að fara 5 til 6 hringi, en þó rólega. Næsfa dag mega menn fara 8 hringi, og síðan auka við á hverjum degi. Á þennan hátt æfast allir vöðvar líkamans, og verða færir að þola hin erfið- ustu kapphlaup. Rétt er að láta nudda sig eftir hverja æfingu, því það heldur vöðvunum mjúkum. Munið að láta skerpa skautana, því ófært er að æfa á ryðguðum skautum. Verið vel klæddir, og dveljið ekki lengur á svellinu en nauðsyn krefur (æfingatímann). Verið komnir í rúmið kl. 10 að kveldi. Þegar menn eru orðnir vel æfðir, skulu þeir æfa í skautabúningi (tricot), a. m. k. tvisvar í viku, svo að þeir venjist vel búningnum, áður en kept er«. Er rétt að skautamenn vorir hafi þessi ráð og leiðbeiningar í huga þegar tækifæri gefst. Bennó. Frá Jóhannesi jósefssyni. Flestir munu vita, að )óhannes glímukappi ]ó- sefsson hefir dvalið í Norður-Ameríku um nokk- urra ára bil, ferðast þar borg úr borg og leikið listir sínar og íþróttir. Hingað fréttist, því miður, sjaldan af ferðum Jóhannesar, og væri þó gaman að heyra um afrek hans í Vesturvegi, sem eru vafalaust mörg og frækileg. En ]óhannes er meira en afburða íþróttamaður. Hann er fyrst og fremst Islendingur. Starf hans hnígur ekki að því einu að afla sér fjár og frægð- ar, heldur og að hinu að beina athygli rnanna að Islandi. En um það er þorri manna þar vestra alls ófróður. Nýlega hefir borist hingað grein um ]óhannes, úr blaði einu í St. Louis. I niðurlagi greinarinnar segir svo: »En ]óhannes kýs þó fremur að tala um ísland og íslenzk efni. »Gæti ég með starfi mínu vakið eftirtekt manna á ættlandi mínu«, segir hann, »þá er ég ánægður. Þar, og hvergi annarstaðar í heiminum, búa menn, er enn í dag, jafnt sem fyrir mörgum hundruðum ára, halda uppi hugsjónum frelsis, gestrisni og góðs hugar, þeim hinum sömu, sem þér, Ameríkumenn, höfðuð fyrir 200 árum — og hafið glatað«. Ollum Islendingum, en þó einkum íþróttamönn- um, er skylt að þakka ]óhannesi. Viljum vér árna honum allra heilla og farsældar fyrir starf hans, og þess, að hann megi innan skamms eiga aftur- kvæmt heim og setjast hér að, svo sem gerðu

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.