Eining - 01.08.1949, Blaðsíða 1

Eining - 01.08.1949, Blaðsíða 1
1 I 4 ð F orsetinn embættinu í Þrátt fyrir margháttaða stjómmála-, viðskipta- og siðferðilega ófarsæld þjóðar- innar hin síðari árin, hefur þó sú gæfa fallið henni í skaut, að eiga í forsetasætinu mann svo vinsælan, að hann hefur nú tví- vegis, við lok kjörtímabilsins, tekið við embættinu á ný, án atkvæðagreiðslu. Með þessu hefur þjóðinni sparast kostnaður og mikil fyrirhöfn, einnig allt það rót og óhollt ofurkapp, sem jafnan fylgir öllum kosning- um, en hróður hennar aukizt út á við. Hinir fyrstu kristnu söfnuðir, sem nutu postullegrar forustu, treystu bezt leiðsögn „öldunga“. Lífsreynslan kennir flestum mönnum gætni og hyggindi, en á slíku er flestu fremur þörf í vandrötuðu mannlífi. Þrátt fyrir allt ágæti æskumanna, vitum við, sem höfum hlaupið ýms gönuskeið æskuáranna og horfum nú iðrandi til baka, að Homer mælir mikinn sannleika, er hann segir: „Æskumenn skortir alltaf hyggindi" — vísdóm. Heimurinn hefur líka sannar- lega fengið að kenna á sliku. Afturhald getur verið geigvænlegt, en hlaup fyrir björg er þó enn meiri vá. Dagblöðin hafa skýrt allýtarlega frá hinni virðulegu athöfn við embættisendurtöku forsetans, herra Sveins Björnssonar, 1. ágúst s. 1. og birt einnig ræðu hans við þetta tækifæri. Forsetinn bar í bæn land og lýð fram fyrir hásæti náðarinnar, og við biðjum honum allrar guðs blessunar og þess, að bæn hans og von, þjóðinni til handa, verði að veruleik, honum til mikills fagn- aðar og komandi kynslóðum til varanlegr- ar blessunar. 1 niðurlagi ræðunnar kemst forsetinn svo að orði: Vér Islendingar ættum að standa vel að vígi. Vér höfum engan verulegan ófriðarkostnað, og hér var svo sem ekkert lagt í rústir, nema máske heil- brigð hugsun ýmissa út af stríðsgróða- vímunni Og enn er fjárhagslíf vort tekur við þriðja sinn Forsetinn, Herra Sveinn Björnsson. ekki lagt i rústir. En hættan vofir yfir. Eg vil óska þess, að íslenzka þjóð- in megi sýna oss sjálfum og öllum heiminum, að vér getum bjargað oss engu síður en nágrannaþjóðir vorar. Það er einlæg von mín að á komandi fjórum árum komist í framkvæmd sú endurreisn, sem ní. þarf. Að íslenzka þjóðin við næstu kosningar, er fram eiga að fara á þessu fyrsta ári kjör- tímabils míns, gefi þingi og stjóm nægilega skýrt umboð til þess að gera þær ráðstafanir, sem þarf til þess að sigrast á örðugleikunum, þótt það komi hart við ýmsa og vér þurfum að slaka á lífsvenjum vorum á sama hátt, sem nágrannaþjóðirnar hafa gert og gera ennþá. Með þessum óskum og vonum lýsi ég yfir því, að ég mun enn sem fyrr skoða starf mitt sem þjónustu, þjónustu við þjóðarheildina, þjónustu við ættjörð- ina. Eg bið guð að gefa mér heilsu og styrk, kjark og auðmýkt til þessa. Og framar öllu bið ég guð að halda vemd- arhendi sinni hér eftir sem hingað til yfir íslenzku þjóðinni og yfir fóstur- jörðu vorri. Alaska og Áfengið Fyrir nokkru ræddu menn á tíu daga ráðstefnu í Bandaríkjunum áfengissjúk- dóminn sem eitt mesta vandamál Alaska. Þar voru sérfróðir menn í þjónustu rík- isstjórnarinnar, en ekki nein illa séð bindindisskoðun. Þessir fundarmenn kenndu hvítum mönnum sérstaklega um, hversu áfengisneyzlan næði tökum á hinum innfæddu. Það væru hinir fyrr- nefndu, sem hefðu drykkinn á boðstól- um og hefðu gaman af að tæla Eskimóa og Indíána til að drekka og gera þá alveg brjálaða. Hinir innfæddu eru sagðir vænsta fólk, en áfengið sé mikil hætta og bölvun á vegum þeirra. Meira en helftin allra hjónaskilnaða meðal þeirra er áfenginu að kenna, og sjúkdómar fara í vöxt meðal barnanna, sökum drykkjuskapar foreldranna, segir þar. Ráðstefna þessi lagði ýmislegt til mál- anna, þar á meðal að fækka útsölustöð- um áfengra drykkja. GRIPU GÆSINA Sumum hefur þótt kvenþjóðin nota frelsi sitt um of til þess að leika eftir karlmönnunum ýmsa slæma siði þeirra, svo sem reykingar og drykkjuskap. — Gamansamur og greindur embættis- maður lét Einingu hafa eftirfarandi vísu: Konur fengu fullveldið. Fljótar um að söðla til að rækja sóðasið sinna fornu böðla.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.