Eining - 01.08.1949, Blaðsíða 4
4
EINING
i
Margir góðir menn hafa heitið F. í. fjár-
hagslegum stuðningi sínum, enda nokkrir
þegar styrkt stofnunina af sjálfsdáðum með
fjárframlögum, og hafa með því skapað
möguleikana til framkvæmdanna. — Fyrir-
heit hafa verið gefin um styrk frá ríkis-
sjóði og bæjarsjóði Reykjavíkur.
F. f. mun snúa sér með alhug að fjár-
öflun til fyrirtækisins, þegar hjá eru liðin
mestu störfin vegna aðkallandi mála, sem
hafa verið svo mörg og fyrirhafnarsöm
fyrstu starfsmánuðina. —
í lok þessa árs mun F. í. gefa út sérstaka
ýtarlega skýrslu um störf sín og árangur
þeirra,
Oscar Clausen.
Um íangahjálpina segir stórtemplar,
m. a.:
„Hygg eg, að þessi starfsemi og stofn-
un fangahjálparinnar sé eitt hið fegursta,
sem hafizt hefur verið handa um innan
Regulnnar mörg hin síðari ár“.
. . „Ferðafélag templara starfaði af mikl-
um dugnaði", segir í skýrslu stórtempl-
ara. „Efndi það alls til 9 hópferða og
voru þátttakendur um 200.... For-
maður Ferðafélags templara er Stein-
berg Jónsson og hefur hann sýnt frábær-
an dugnað í starfi sínu“.
Um húsmál segir meðal annars, að
verið sé að reisa í Vestmannaeyjum
,,eitt glæsilegasta félagsheimili, sem
Reglan hefur látið reisa hér á landi til
þessa“. I Ólafsvík er félagsheimilið að
mestu fullgert. í Bolungarvík er fyrir-
huguð mikil bygging í samstarfi við önn-
ur félög á staðnum. Akranes er að koma
sér upp fundarhúsi, og mikill hugur er
í templurum á Selfossi í þá átt. Akur-
eyringar hafa sett sér mjög hátt mark í
þessum efnum og ætla að koma upp
miklu félagsheimili, er einnig verði kvik-
myndahús.
í skýrslu sinni minnist stórtemplar á
starfið að Jaðri, sem er í alla staði mjög
til fyrirmyndar, og þá ekki síður starf
stúkunnar Framsóknar á Siglufirði, þar
á meðal starfræksla Sjómanna- og gesta-
heimilisins. Páll Jónsson, erindreki Stór-
stúku Islands, hefur veitt heimilinu for-
stöðu undanfarin þrjú sumur og einnig
yfirstandandi, en Páll rækir öll sín störf
af áhuga og mestu samvizkusemi.
Skýrslan minnist á fjármál einnar
stúku, sem er mjög til fyrirmyndar. Það
er stúkan Frón. En þar á umboðsmaður
hennar, Ludvig C. Magnússon ekki sízt
hlut að máli. A síðastliðnum 5 árum
hafa eignir stúkunnar aukizt um kr.
51,967,75. Stúkusjóður er nú kr.
41,262,11. Styrktarsjóður kr. 14,034,-
000,69. Fræðslu- og skemmtanasjóður
kr. 7,121,93. Tekjur yfirstandandi árs
eru áætlaðar kr. 8,000,00. Til trygging-
ar hag stúkunnar í framtíðinni eru nú
í Söfnunarsjóði á vöxtum 26 þús. kr. úr
stúkusjóði, en 12 þús. úr styrktarsjóði.
I lið skýrslunnar, er fjallar um út-
breiðslustarfið, segir stórtemplar: ,,Sú
skoðun mín er hins vegar óbreytt frá
því í síðustu skýrslu minni, að stórstúk-
an eigi að fá því framgengt, að ríkið
launi nokkra erindreka, enda starfi þeir
undir stjórn stórstúkunnar og á vegum
hennar. Fyrr en erindrekastarfið verður
gert að tryggu framtíðarstarfi, fást ekki,
eða tæplega, hæfir menn til að takast
það á hendur. Um þetta mál var fjárveit-
inganefnd Alþingis ritað í vetur, en án
árangurs að því sinni“.
Þessu máli þarf að fá framgengt og
koma góðu skipulagi á fræðslu- og út-
breiðslu bindindis í landinu.
Þá ræðir í skýrslunni um drykkju-
mannahæli og nýja áfengislöggjöf, en
hana birtir blaðið sérstaklega.
Nokkrar umræður urðu á þinginu um
blaðið Einingu og styrkinn til þess. Átti
það þar góða formælendur og var vitnis-
burður stórtemplars og annarra ágætra
manna á þinginu, betri en það sjálfsagt
á skilið. Styrkurinn var ákveðinn átta
þúsund krónur, og mun ekki af veita, því
að til þess að geta lifað þarf það 40—50
þús. kr. á ári, þótt það greiði engin rit-
laun og enga vinnu.
í niðurlagi skýrslunnar segir:
„Félagar í undirstúkum eru nú taldir
vera 5162 og hefur þeim fjölgað um 50
á árinu, en samtals teljast félagar, eldri
og yngri, 10948 miðað við áramót. Síð-
an hafa nokkrar stúkur verið í mikilli
sókn, og eru templarar því miklu fleiri
í dag en skýrslur sýna. Mannúðarstarf-
semi Reglunnar og menningarstarfi mið-
ar stöðugt áfram. Á þeim vettvangi er
alltaf um nýtt og nýtt landnám að ræða.
Ekkert sýnir betur, að Reglan er lífrænn
félagsskapur, sem hefur miklu hlutverki
að gegna með þjóðinni. Björgunarstarfi
Reglunnar er eðlilega þann veg farið,
að um það verða aldrei gerðar fullnægj-
andi skýrslur. En þess er gott að minn-
ast, að það er metið af hugsandi mönn-
um, þingi og ríkisstjórn. — Og þegar
litið er til framtíðarinnar er ekkert að
óttast fyrir Regluna, ef allt fer með
felldu. Ef við stöndum saman, neytum
samtakamáttar okkar, verðum við sigur-
sælir. — Sanna templara skortir aldrei
verkefni, þeir skapa sér þau sjálfir, þá
þarf ekki að hvetja til dáða. Áfram því
heilir og heitir í baráttu og sókn gegn
áfengisneyzlu og drykkjusiðum, en fyrir
menningu og farsæld þjóðarinnar. —
Áfram, bræður og systur, á þeim grund-
velli, sem Reglan starfar á og lagður
var í öndverðu, grundvelli trúar, vonar
og kærleika“.
Þingið gerði Jóhann Ögm. Oddsson
að heiðursfélaga Stórstúku íslands, og
er hann vel að þeim heiðri kominn. —
Hann hefur verið ritari stórstúkunnar
um áratugi, er nú kominn á áttunda ára-
tuginn og hefur verið mikilvirkur í Reglu
Góðtemplara.
Á framkvæmdanefnd stórstúkunnar
varð lítil breyting og eru nefndarmenn-
irnir þessir:
Stórtemplar, séra Kristinn Stefáns-
son.
S-kanzlar, séra Björn Magnússon
prófessor.
S-varatempIar, frú Sigþrúður Péturs-
dóttir,
S- ritari, Jóhann Ögm. Oddsson,
S gjaldkeri, Bjarni Pétursson forstj.,
S-gæzlumaður unglingastarfs, frú
Þóra Jónsdóttir, Siglufirði,
S-gæzlumaður Löggjafarstarfs, Har-
aldur Norðdahl tollþjónn,
S-fræðslustjóri, Indriði Indriðason
rithöf.,
S-Kapilan, Sigfús Sigurhjartarson,
alþm.,
S-fregnritari, Gísli Sigurgeirsson verk-
stjóri, Hafnarfirði,
Fyrrv. stórtemplar, Friðrik Á. Brekk-
an, rithöfundur.
Þing ungtemplara hófst nokkru fyrir
stórstúkuþingið og stóð í tvo daga. Farið
var þó annan daginn í skemmtiför, um
Krísuvíkurveg að Sogsvirkjuninni og
víðar.
Helztu tillögur, sem stórstúkuþingið
samþykkti, voru þessar:
Samþykkt var að skora á Alþingi hið
næsta að samþykkja þjóðaratkvæða-
greiðslu um bann.
ítrekuð voru fyrri andmæli gegn því,
að leyfa að brugga eða selja sterkan
bjór, gegn vínveitingum á kostnað al-
mennings, gegn sérréttindum í áfengis-
kaupum og gegn allri rýmkun á áfengis-
veitingum. Taldi þingið, að allar slíkar
undanþágur og sérréttindi veiktu heil-
brigt almenningsálit og spillti áliti á
áfengislöggjöfinni í heild. Undraðist það
stórlega afstöðu síðasta Alþingis til þess-
ara mála.
Sömuleiðis voru ítrekaðar kröfur um
að Iögin um héraðabönn tækju gildi.
Þá var skorað á framkvæmdanefnd
Stórstúkunnar að láta semja frumvarp
til laga um ýtarlega skýrslugerð um á-
fengismál (Alkóhólstatistik), er nái til
alls landsins, og fá það frumvarp flutt
á Alþingi.
Ennfremur að vinna að bættu eftirliti
með umferðareglubrotum og leynivín-
sölu og var heitið á allan almenning
að vera vel á verði og krefjast eftirlits
og réttarfars í þessum málum.
Þingið hvatti stórstúkuna og umdæm-
isstúkurnar að halda uppi öflugri reglu-
boðun um land allt og taldi nauðsynlegt,
að ráðinn yrði sérstakur regluboði hluta
úr árinu. Jafnframt var skorað á ríkis-
stjómina að framlag til bindindisstarfs-
ins yrði aukið svo að 5 menn gætu stöð-
ugt unnið að bindindisboðun.
Þingið lýsti ánægju sinni yfir löggjöf
um meðferð ölvaðra manna og drykkju-
sjúkra, og samþykkti að vinna að því,
að fjárframlög samkvæmt þeim lögum
yrðu færð í það horf, sem ákveðið var í
frumvarpinu, eins og það var lagt fyrir
Alþingi.
Ennfremur var samþykkt að vinna að
því, að skipaður yrði að lögum sérstak-
ur yfirmaður áfengisvarna, læknir, sér-
A
t
I
♦
i
6