Eining - 01.08.1949, Side 7

Eining - 01.08.1949, Side 7
E 1 N 1 N G 7 Eining hefur undanfarið birt smávegis um Abraham Lincoln. Þessa fögru byggingu, sem myndin sýnir, reisti Bandaríkja• þjóSin fyrir skömmu til minnis um þenna ástsœla forseta sinn. Húsiö er úr hvítum marmara og gert eftir fyrirmynd grískra mustera. Hornsteinninn var lagöur 1915, en húsiö vígt 30. maí 1922. Þrír þjóökunnir listamenn lögöu hönd á verkið. Uppdráttinn gerSi Henry Bacon, en skreytinguna Jules Guerin. HiS mikla líkan af forsetanum, sem er i mið- álmu hússins, gerði Daníel Chester French. Á vegg í suður- álmu hússins er grafin hin frœga Gettysburg-rœða forsetans, en önnur innsetningarrceða hans er grafin á vegg í norður- álmunni. Gáruðu súlurnar, 36 að tölu, eru látnar tákna ríkja- fjöldan eir.s og hann var, er Lincoln féll frá, og honum hafði tekizt að varðveita sameinuð. íslendingar í Vesturheimi Á fyrstu blaðsíðu Lögbergs, 31. marz 1949, eru fjórar frásagnir af íslending- um vestan hafs, sem hafa á einn eða annan hátt unnið sér frægðarorð. Fyrst er þar sagt frá hinum dugmikla verk- lýðsforingja Frederick H. Fljozdal. Hann er heiðursforseti Bandalags járnbraut- armanna í Detroit, Michigan. I tilefni 79 ára afmælis hans var honum þá fyr- ir skömmu haldið veglegt samsæti í Chicago, en þá höfðu þau hjónin einnig átt nýlega 55 ára hjúskaparafmæli. Lög- berg birtir úr allsherjarmálgagni verka- manna í Ameríku, blaðinu Labor, þenna vitnisburð þess um Fljozdal: „Afrek félagsbróður vors Flozdals, ' sem forseta bandalags vors á erfiðu ár- unum 1922—40, standa óhögguð. Er hann nú nálgast ævikvöldið, nýtur hann ríkrar aðdáunar vegna virðulegrar fram- komu sinnar, festu og skilnings á vanda- málum vorum“. Önnur greinin á þessari blaðsíðu Lög- bergs, heitir: ,,Merkur vísindamaður lætur af embætti“. Þar er sagt frá dr. • Thorbergi Thorvaldssyni, sem „veitt hefur forustu um 35 ára skeið efnavís- indadeild háskólans í Saskatoon, Sa- skactchewan. Dr. Thorvaldsson lætur nú af em- bætti við háskólann ,og í tilefni þess, var þeim hjónum haldið veglegt samsæti og þar var tilkynnt, að þeim til heiðurs hafi verið stofnaður sjóður, er heita skal: Thorvaldson Scholarship Fund, og skal sjóðurinn styrkja vísindalegar rann- sóknir við háskólann. Hann er þegar hálft áttunda þúsund dollarar. Fyrrver- andi prófessor við efnavísindadeild- ina, dr. B. K. Lamor, sagði: ,,að sú deild væri fegursta og varanlegasta minnismerkið, sem unnt væri að reisa um forustu og vísindalega hæfni dr. Thorvaldssonar, enda væri þessi deild nú viðurkennd sem ein hin allra full- komnasta slíkrar tegundar í Canada“ Forseti háskólans, dr. J. S. Thomson, sagði um Thorvaldsson, að ,,hann væri sérstæður maður. Áhrif hans hefðu eigi verið einskorðuð við efnavísindadeild- ina, heldur hefðu þau náð til allra deilda háskólans“. Þriðja greinin segir frá stofnun þeirri, er læknirinn dr. P. T. H. Thor- Iáksson, stofnaði í Winnipeg fyrir nokkr- um árum. Dr. Thorláksson er sonur séra Steingríms Thorlákssonar, sem lengi var prestur í Selkirk, prúðmenni hið mesta. Frásögn Lögbergs er á þessa lund: ,,Hin mikilvæga og sívaxandi lækn- ingastofnun, er gengur undir nafninu V/innipeg Clinic, og dr. P. H. T. Thor- láksson stofnaði fyrir nokkrum árum af eigin rammleik, hefur nú nýverið hlot- ið löggildingu fylkisþingsins í Manti- toba. Dr. Thorláksson er framsýnn hug- sjónamaður, en það er ekki oft sem hug- sjónir og athafnir haldast jafn fagurlega í hendur eins og fram kemur í ævistarfi þessa sérstæða áhrifamanns. Að löggildingu áminnstrar stofnunar standa tuttugu merkir læknar með dr. Thorláksson í fararbroddi. The Winnipeg Clinic hefur þegar get- ið sér frægðarorð um allt þetta mikla meginland og jafnast væntanlega á sín- um tíma við hina frægu Mayo Brothers Clininc í Minnesotaríkinu, því að traust- ur grundvöllur hefur verið lagður að framtíð stofnunarinnar og skilyrðum til þróunar“. Skaparinn hefur svo til hagað.málum tilverunnar, að mitt á meðal gagnsem- innar skuli fegurðin standa til þess að hrífa hjörtu manna. Fjórða frásögnin á þessari einu blaðsíðu Lögbergs er um fegurðardrottningu Winnipegborgar. — Myndin, sem fylgir frásögninni, sýnir borgarstjórann afhenda hinni fögru meyju veglegan verðlaunagrip. Stúlkan heitir Gloria Gray og virðist standa vel undir skírnarnafni sínu (Gloría = dýrð). Hún var valin úr 24 fegurðardísum og „þótti bera af þeim öllum að fegurð og glæsimennsku“. Móðir stúlkunnar er ís- lenzk og heitir Guðrún Jónsdóttir, á ís- lenzku, en í Ameríku heitir hún auðvit- að frú Gray Þessar ánægjulegu frásagnir um ágæti íslendinga í Vesturheimi, er ör- Iítið brot í hinni miklu sögu þeirra, sem öll er skreytt meira og minna slíkum gullnum þráðum, vitnisburði um afrek við nám og störf, um manndóm, glæsi- mennsku og ágæti. Allt þeim sjálfum til verðugs hróss og þjóðinni þeirra heima fyrir til mikillar sæmdar. Þar hefur farið fram hin mesta og bezta landkynning, sem saga íslenzku þjóðar- innar geymir. Ef okkur hér heima fyrir tekst að standa jafn vel vörð um heill þjóðar- innar, eins og íslendingum vestan hafs hefur tekizt að halda uppi heiðri hennar í því mikla landi, þá er íslenzka þjóðin gæfunnar barn. P. S. Hvað segja heimsblöðin Ekki verður því neitað, að sé litið yfir fréttadálka blaðanna, ekki síður hinna erlendu, eru þar oft sagðar ljótar fréttir. Þar eru skemmdarverk, rán, þjófnaður, morð, alls konar ofbeldi, uppreisnir og styrjaldir, og svo urmull af minni hátt- ar óþrifum. I tiltölulega litlu blaði frá Noregi, er ein fyrirsögnin: „Drukknir hermenn aka með ofsahraða og kútvelt- ast í bílnum“. Önnur: „Eksportölið veldur drykkjuskaparóreglu á Nesodda- bátunum. Bindindissamtök verkamann- anna kvarta yfir þessu við ríkisstójrn- ina“. Þriðja: „Tvær flöskur nægja til \

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.