Eining - 01.08.1949, Qupperneq 8
þess að skapa áhrif. Bindindissamtök
jámbrautarmanna senda ríkisstjórninni
umkvörtun út af ölinu“. Þetta er nú að-
eins minniháttar fréttir á einni blaðsíðu,
en eftirtektarvert er það, hve Norðmenn
kvarta nú yfir áhrifum ölsins. Kemur þar
í ljós, að við, sem börðumst fastast gegn
ölfrumvarpinu hér í landi, höfðum fulla
ástæðu til þess. Æskulýðssamtök í
Noregi hafa sent til yfirvaldanna í
landinu sterk mótmæli gegn þeirri
óreglu, sem öldrykkjan skapar. Þeir
segja, að öldrykkjan sé hin lævísasta
ginning út á braut ofdrykkjunnar.
Arsþing
íþróttasambands ísl.
Þingið var háð hér í Reykjavík, dag-
ana 25.—28. júní s. 1. Er forseti sam-
bandsins hafði minnst tveggja látinna
íþróttafrömuða, þeirra dr. Matthíasar
Einarssonar og dr. Helga Péturssonar,
voru lagðar fram skýrslur forseta og
gjaldkera. f sambandinu eru nú 22 hér-
aðasambönd og 4 sérsambönd og eru
félagsmenn alls 23 þúsund. Niðurstöðu-
tölur rekstursreiknings eru rúml. 178,5
þús. kr. en eignir ÍSf eru taldar 155
þús. kr.
Miklar lagabreytingar lágu fyrir þing-
inu og verður nú myndað sérstakt sam-
bandsráð, skipað framkvæmdanefnd
sambandsins, formönnum sérsamband-
anna og fulltrúum landsfjórðunganna,
afls 13. Reikningsárinu var breytt og
miðast nú framvegis við áramót, er það
snjallræði og ekki síður það, að hafa árs-
þingið aðeins annað hvort ár, eins og
samþykkt var á þinginu. Gæti slíkt verið
öðrum til fyrirmyndar.
A þessu 38. ársþingi fSf var forseti
þess, Benedikt G. Waage endurkosinn
og tekur nú sæti í framkvæmdanefndinni
í 35 sinni. Varaforseti er Erlingur Páls-
son, féhirðir Þorgils Guðmundsson, rit-
ari Frímann Helgason, og fundarritari
Hermann Guðmundsson, sem kemur í
stjórn sambandsins sem varamaður Sig-
urjóns Péturssonar, er ekki getur tekið
sæti í stjórninni sökum vanheilsu.
f sambandsráðið voru kosnir þessir:
Sigurður Greipsson, fyrir Sunnlend-
ingafjórðung. Til vara, Gísli Sigurðsson,
Hafnarfirði. Jón Hjartar, Flateyri, fyrir
Vestfirðingafjórðung. Til vara, Þorgeir
Ibesn, Stykkishólmi, Hermann Stefáns-
son, Akureyri, fyrir Norðlendingafjórð-
ung. Til vara: Tryggvi Þorsteinsson, Ak-
ureyri. Þórarinn Sveinsson, Eiðum, fyrir
Austfirðingafjórðung. Til vara: Jóhannes
Stefánsson, Norðfirði.
Benedikt G. Waage,
Ársskýrsla ÍSf 1948—1949 er all-
mikið rit, 87 blaðsíður, flytur margvís-
legan fróðleik um íþróttalífið í landinu,
og einnig út á við. Ritið er prýtt fjölda
mynda.
STAKAN
Hvað er stakan? Hjartaslag,
. harmakvak og tregi,
fjaðrablak og feginstak,
fótatak á vegi.
Kristmundur Þorleifsson.
ÆSKULÝÐSÞÁTTUR
SJÁLFSUPPELDI
Sæll er sá maður, sem öðlast liefur
speki. Hún er dýrmætari en perlur.
Langir lífdagar eru í hægri liendi
hennar, auður og mannvirðing í vinstri
hendi hennar. Vegir hennar eru yndis-
legir vegir og allar götur hennar vel-
gengni. Hún er lífstré þeim, er grípa
hana.
Vitrirmenn munu heiður hljóta, en
heimskingjar bera smán úr býtum.
Synja eigi góðs, þeim er þarfnast
þess, ef það er á valdi þínu að gera
það.
Deil ekki við neinn að ástæðulausu.
Upphaf vizkunnar er: afla þér vizku.
Vitur sonur gfeður föður sinn, en
heimskur maður fyrirfítur móður sína.
Sveinninn þekkist þegar á verkvun
sínum, hvort athafnir hans eru hreinar
og einlægar.
OrSskv.
Vér erum eins og skordýrin, sem fá
sama lit á sig og jurtir þær og bföð,
er þau nærast á, því að fyrr eða síðar
verðum vér eins og næring sú, er vér
bjóðum sál vorri, og eins og verur þær,
er byggja hjarta vort. Á kjarna sálar
vorrar er ritað með eldstöfum hvert
orð vort og allar framkvæmdir vorar.
Dr. O. S. Marden — Áfram.
Það er þjálfunin, sem gerir íþrótta-
manninn að frægum methafa og af-
burða manni í sinni list. Án þjálfunar
verður heldur enginn snillingur í öðr-
um listum, þótt hann sé fæddur með
snilligáfu. Og það er aðeins fyrir iðkun
mannkosta, fagurra dyggða og ágætra
lifnaðarvenja að maðurinn verður liinn
ákjósanlegi heiðursmaður.
SÆLA EÐA KVÖL
Löngum hafa menn trúað á sæluvist
og kvalastað — himnaríki og helvíti. —
Kjör manna í heiminum nálgast nú oft
í seinni tíð að vera þetta annaðhvort.
Ymist búa menn við góð kjör, ómetan-
leg þægindi og alls nægtir ,tryggingar
og alls konar aðhlynningu, ef eitthvað
bjátar á, að þetta nálgast mjög að geta
heitið gæðalíf eða sæluvist á jörðu hér.
En svo hafa milljónir manna verið hrakt-
ar út í hin yztu myrkur fátæktar og
eymdar, kvalalífs og hörmunga, að slíkt
má sannarlega kallast hel-víti.
Þannig gera menn trú sína að veru-
leika, einnig hér á jörðu og á mjög
áþreyfanlegan hátt.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ og framkvæmdastjóri.