Eining - 01.08.1949, Blaðsíða 11

Eining - 01.08.1949, Blaðsíða 11
E I N I N G 11 \ \ ♦ ♦ » 4 Og það skal verða á hinum síðustu dögum, að fjall það, er hús drottins stendur á, mun grundvallað verða á fjallstindi og gnæfa upp yfir hæðirnar, og þangað munu lýðirnir streyma. Og margar þjóðir munu búast til ferðar og segja: Komið, förum upp á fjall drottins og til húss Jakobs Guðs, svo að hann kenni oss sína vegu og vér megum ganga á hans stigum, því að frá Zion mun kenning út ganga og orð drottins írá Jerúsalem. Og hann mun dæma meðal margra lýða og skera úr málum voldugia þjóða langt í burtu. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sín- um. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar. Hver mun búa undir sínu víntré og fíkjutré, og enginn hræða. Því að munnur dorttins hefur talað það. Míka, 4, 1—4. Fær áfengisvarnar- nefnd Reykjavíkur ekki starfsfé Samkvæmt upplýsingum frá féhirði Áfengisvarnanefndar Reykjavikur, Gísla Sigurbjörnssyni forstjóra, hefur nefndin enn ekki fengið einn eyri greiddan hjá dómsmálaráðherra af þeim 50 þúsund kr., sem veittar eru í fjárlögunum til starfsemi slíkra nefnda. Þrátt fyrir margítrekaða um- sókn, hefur þetta enn ekki fengist, hverju sem sætir, en sjálfsagt mjög hagalegt fyrir nefndina, sem hefur þegar unnið allmikið starf og kostað töluverðu til. Vegur lífs og dauða I Heilagri ritningu eru dregnar mjög skýrar línur milli helstefnu og lífsstefnu. Ráðandi öflin þar eru kölluð holdið og andinn. Annað er efnishyggjan, neikvæð og banvæn. Hitt er hyggja andans, já- kvæð og lífgefandi. Verk efnishyggjunn- ar, eða holdsins, eins og ritningin orð- ar það, eru þessi, segir hún: „Frillulífi, óhreinleikur, saurlífi, af- guðadýrkun, fjölkynngi, fjandskapur, deilur, metingur, reiði, eigingimi, tví- drægni, flokkadráttur, öfund, ofdrykkja, svall og annað þessu líkt“. ,,En ávöxtur andans er: kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæzka, góðvild, trúmennska, hógværð, bindindi“. Menn taki nú vel eftir og líti svo út í heiminn. Hve mikið verður þar fyrir okkur af fjandskap, deilum, flokka- drætti, öfund, ofdrykkju, eigingirni, svalli og ólifnaði? Ekki þarf að ræða þetta frekar. En hvernig mundi það þjóðfélag líta út, sem væri auðugast af kærleika, gleði, friði, langlyndi, gæzku, góðvild, trúmensku, hógværð og bind- indi? Vildum við ekki allir eiga heima þar? Því þá ekki að reyna að skapa slíkt þjóðfélag. Á helstefnubrautinni er meðal annars ofdrykkja, í hinum flokknum er hámark- ið bindindi. Hve raunalega fer þó ekki fyrir þeim heimi, sem stjórnast af nei- kvæða aflinu, vilja holdsins og efnis- hyggjunnar. Maðurinn, sem kallast guðsmaður, brýtur stundum svo hinar einföldustu heilbrigðisreglur og gefur sig á vald eit- urnautnum, vökum og óheppilegum lifn- aðarvenjum, svo að heilsa hans bilar um aldur fram og hann getur ekki gengið óstuddur til guðshúss og fellur frá verki sínu. Læknirinn, sem veit allra manna bezt, hvað hollt er eða skaðlegt heilsu manna, lætur stjórnast af neikvæðu stefnunni og gefur sig á vald þess, er eyðileggur heilsu hans, svo að hann fellur í valinn ungur eða á bezta aldri. Hvorttveggja þetta er mjög raunalegt og átakanlegt, hvérsu hætt maðurinn stendur, ef hann stjórnast ekki af hyggju andans, sem til lífsins leiðir, en lætur um of eftir kröfu þeirra hvata, oftast sjálfskapaðra hvata, sem gengið hafa í þjónustu dauðans. Bindindissemin á hæsta stigi — full- komin sjálfstjórn, er hámark hinna kristilegu dyggða og er hornsteinn allr- ar mannlegrar velferðar, farsældar jafnt einstaklings sem þjóðar. Ein af mörgum á flótta í Kína með lít- inn bróöur sinn á bakinu. Hnígur niður uppgefin. Heimur, sem býr börnum sínum slík Jcjör og þessu flóttafólJci, á elcJci miJcið Jirós sicilið. Ólýsanleg þjáning er upp- máluð í andliti milljóna manna. Styrj- öldin sJcildi eftir 20 milljónir hungr- aðra, þjáðra og munaðarlausra barna, segja hinir fróðu menn, og 20 milljónir manna deyja árlega úr næringarsJcorti og hungri, segir John Boyd Orr lávarð- ur, heimsJcunnur næringarfræðingur og forstjóri þeirrar stofnunar Sameinuðu þjóðanna, er fjallar um matvælaöflun og landbúnað. — Það er afvegaleidd bjart- sýni, sem telur slíJct ástand viðundandi. >

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.