Eining - 01.08.1949, Blaðsíða 14

Eining - 01.08.1949, Blaðsíða 14
14 E I N I N G Þetta vitnar Það er jafn óviturlegt, að einblína í bölsýni á mannfélagsmeinin og að loka augunum fyrir þeim. Góður garðyrkju- maður þolir helzt ekki að sjá illgresi í garði sínum. í þjóðlífsakri okkar eru margir verka- menn: ríkisstjórn og Alþingismenn og hin fjölmenna embættismannastétt landsins, kennarar, prestar, læknar, lög- regla, sýslumenn, öll sú fríða sveit, margir aðrir og svo auðvitað allir for- eldrar og leiðtogar uppvaxandi kyn- slóðar. Þó er illgresið áberandi í garði okk- ar. Það vitnar gegn okkur. Við hljótum að vera lélegir verkc rienn eða kæru- lausir. Óþrifin þrífast ekki á vegum hirðumanna. Ofí benda blöðin á meinsemdirnar. ,,Átta þjófar handteknir“, segir Morgun- blaðið 12. janúar þ. á. Sjö af þessum átta voru piltar á aldrinum 15—17, uppvísir að 20 þjófnuðum. Þá er ófögur tveggja dálka grein í Morgunblaðinu 25. janúar s. I. um syndaregistur Nonna litla. Átta ára er hann orðinn þjófur. Svo ,,brýzt hann inn í hús hvað eftir annað, hann hnupl- ar peningum, stundum talsverðum upp- hæðum, hann stelur reiðhjólum, arm- bandsúri, jafnvel 22 grammófónsplöt- um. Skýrsla lögreglunnar lengist árlega: 1943 — innbrot, reiðhjólsþjófnaður, innbrot á ný: 1944 — reiðhjólastuld- ur, margir þjófnaðir, innbrot. . . . “. I þessari Ijótu frásögn er skýrt frá fleiri ungum þjófum. Svo kemur annað blað, Landvörn, 24. jan. 1949 og seg- ir, að próf ýmissa skólamanna víðsveg- ar um land, eða á unglingum frá ýms- um stöðum á landinu, hafi leitt í ljós, að fjórir fimmtu hlutar þessara prófuðu unglinga, innan við tvítugt og um þann aldur, hafi ekki kunnað Faðirvorið eða vitað nein deili á ýmsum þekktustu mönnum þjóðarinnar, sem fyrir skömmu eru gengnir til grafar. 1 hvaða heimi lifa þessir unglingar og hvað læra þeir, og hjá hverjum? Þessar spurningar er vert að íhuga. Þeir lifa í heimi kvikmynda, danshúsa, mynda- blaða, skemmtana, í heimi fyrirhafnar- leysisins og jafnvel nautnanna. Skóla- námið er oftast létt og misjafnlega vel stundað. Þar eru tíndir upp fróðleiks- molar, en miklu minna af því sem auðg- ar, þroskar skapgerð og knýr fram hið bezta í manninum. Skólamenntun er ágæt öllum, sem kunna að færa sér hana í nyt, en vafa- laust stunda fleiri skólanám, en vel eru gegn okkur til þess fallnir. Vinna mundi henta mörg- um betur. Hvar um lönd sem farið er, má til dæmis sjá fullvaxnar, holdugar, mjaðmabreiðar vinnukonutýpur trítla með skólatöskur sínar eða rogast með bókabyrði á brjóstum sér áleiðis til skólanna. Og á skólabekkjunum sitja þær mánuðum og árum saman með hug- ann og alla eðlishneigð sína á allt öðru sviði, hlusta á tilsögn og fróðleik, sem gleymist jafnóðum eða stagla eitthvað, sem aldrei festir rætur í sálarlífi þeirra. Líf þeirra er á allt annarri bylgjulengd. Á heimilunum eru menn svo alls staðar ráðþrota ef á heimilishjálp þarf að halda. Þessar ungu stúlkur eyða oft ár- um sínum í gagnslaust námsstagl, og eru svo miklu ver hæfar til þess að taka að sér heimilisstörf, þegar þær loks ná þráðu marki, en ef þær hefði vanizt þeim um tveggja til þriggja ára skeið. Það er hringavitleysa hin mesta, að vera stöðugt að bögglast við að gera eitt og hið sama úr öllum. Ekkert spillir mönnum fremur en iðjuleysi og múglíf, en vinnan er göfgandi og áreynslan stælir menn til dáða. Bendir ekki ýmislegt á fullkomna uppgjöf hjá okkur á vissum sviðum. Hví er fólki ekki kenndir mannasiðir, hinir einföldustu. Þegar sendisveinar koma inn á skrifstofu til mín, ber það, held ég, aldrei við að þeir drepi á dyr eða bjóði góðan dag, eða kveðji. Þegj- andi er vaðið inn og kastað einhverju í mann eða sagt: reikningur, og öll ber framkoman vott um fullkomna uppgjöf á því sviði, sem kalla mætti prúðmann- lega framkomu. Nýlega var ég staddur í bókabúð. Inn komu 4 ungar stúlkur, á að gizka 14 eða 15 ára, allar snjóugar upp á haus, en ekki varð þeim að vegi, að stappa snjóinn af fótum sér við búðar- dyrnar eða dusta neitt af sér. Þær óðu frekjulega inn að borði, og jafnvel á milli borðanna. Þar var ekki verið að hugsa um, þótt eitthvað kynni að blotna af snjónum. Ein þeirra fleygir bók á borð- ið og segir: ,,Eg ætla að skipta þessari bók“. Búðarstúlkan var hógværðin ein, tók við bókinni, þótt ekki væri hún þann- ig afhent eða um hana búið, að stúlkan ætti það skilið. Eg starði á ungu stúlk- urnar, stillti mig og sagði ekki neitt. Eg var þarna gestur. En frekjan og hinn fullkomni skortur á öllu, sem kallazt gæti prúðmannleg framkomu og kurt- eisi, var áberandi. Og þetta voru þó ungar stúlkur. Hvað veldur þessari framkomu, að menn hvorki nenna að drepa á dyr, held- ur vaða inn, eða heilsa og kveðja, og þjösnast þannig áfram eins og þeir hafi aldrei lært neitt eða kynnzt neinum kurteisisreglum? Þetta er fólkið, sem lifir í heimi reyf- aranna, kvikmyndanna, danssalanna, myndablaðanna, jazzins, sígarettunnar, iðjuleysis og andvaraleysis. Fræði þess heims lærir það, þau eru auðlærð og fræðararnir eru margir og vinna ekki fyrir gýg. Þeir þjóna guði sínum trú- lega, en hinir fræðararnir eru oft hálf- volgir og hikandi menn, sem ef til vill vita ekki, fremur en María forðum, hvað búið er að gera við drottin þeirra. Eld- ur áhugans er kulnaður, vonarljósin döpruð, og trúin á Guð og menn, á menningu og þenna heim og annan, orðin vænglaus og lömuð, og enginn getur gefið það, sem hann á ekki til. Við erum þjakaðir menn undan tveimur ægilegum heimsstyrjöldum. Krossinn hefur ekki orðið okkur öllum himnastigi. Við erum latir menn. Við nennum ekki að sækja auðlegð and- ans í hinar eilífu uppsprettur guðlegs kraftar og góðleika. Og hvernig getum við þá alið upp æskulýð á Guðs vegum, en ef hann er ekki á Guðs vegum, þá er hann á glapstigum. Er ekki þetta meinið? Enskur rithöf- undur hefur eftir vísindamanni þessi orð: ,,Ef uppfræðslan (the education) verð- ur eingöngu sérfræði í þjónustu embætta og atvinnu, er hætt við að hún muni ala upp unga siðleysingja (barbarians), sem bera ekkert skyn á okkar dýrmæta menningararf og sjá ekkert út fyrir sinn þrönga verkahring“. Mannkynssagan sýnir það öll og sannar, að hægt er að breyta villimanni í siðfágaðan og dyggðugan mann, drykkjurút og slarkara í reglumann og prúðmenni, glæpamanni í guðsmann og grimmdarsegg í líknaranda, og ómenni í mannkostamann. En slíkri breytingu veldur ekki einhver þur og andlaus fróð- leikur. Öll sagan ber því vitni, hvað það er, sem helzt veldur slíkri breytingu. Það er guðshyggjan og sá mannkær- leiki, sem hún vekur og glæðir. I hinni hollu og góðu bók dr. Árna Árnasonar læknis, Þjóðíeiðin til ham- ingju og heilla, er á blaðsíðu 68 og 69 komizt svo að orði: „Menningunni hefur orðið það fyrst fyrir, að þroska vitsmuni og auka þekk- inguna og að njóta ávaxtanna af hvoru- tveggja. Þetta er að sumu leyti eðlilegt. Það eru vitsmunir og þekking, sem hæg- ast er að auka með kennslu. Það er líka auðveldast, að vekja áhuga á þeim þroska, því að hann gefur áþreifanleg laun í aðra hönd, aukin verðmæti og lífsþægindi. En þessi þroski má ekki verða einhliða. Þroski mannsandans má ekki verða af handahófi, hann má ekki verða nokkurs konar blind fram- þróun, sem leiðir ef til vill til fullkomn-

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.