Eining - 01.08.1949, Qupperneq 15

Eining - 01.08.1949, Qupperneq 15
unar og ef til vill til tortímingar mann- anna. Þegar mannkynið hefur náð ákveðnum vitsmunaþroska, þá hefur það, einmitt vegna hans, skilyrði til þess að dæma um stefnu sína, ákveða hina réttu stefnu, að snúa við og taka rétta stefnu, ef þess er þörf. Þetta verður menningin nú að gera, að því er bezt verður séð. Hún verður að breyta upp- eldinu, bœði í skólum og utan ]>eirra. Hún má ekki Iíta eingöngu á það, sem er auðveldast og þægilegast og láta æskulýðinn ganga á snið við áreynslu og vinnu. Hún verður að leggja áherzlu á samræmið í þroskun allra mannlegra hæfileika, aga og sjálfsafneitun, sem því hlýtur að vera samfara. Fræðendur og uppalendur verða að gera betur en áSur og snúa jafnvel alveg viS blaSinu að sumu leyti. Þetta á ekki eingöngu við um heimili og kirkju, lcegri og œSri skóla, heldur og um blöS og útvarp, rit- höfunda og listamenn, leikhús og kvik- myndahús og yfirleitt alla þá, sem tak- ast það hlutverk á hendur, að ala þjóð- irnar upp og mennta þær“. (Leturbr. mínar, P. S.). Þessi hóflega og viturlega kenning er ekki flutt hér af presti eða prédikara, heldur vel menntuðum lækni, sem valið hefur sálu sinni þar tjaldstað, er hafa má mikla og góða yfirsýn út yfir hinar mörgu hliðar mannlífsins, og öðlast þannig góðan skilning á vandamálum mannkynsins. Ekki aðeins þessi stutti kafli, sem hér var vitnað í, heldur og það, sem á undan og eftir fer í bók lækn- isins, sýnir glöggt, að þar er á ferðinni gætinn, ábyrgur, hygginn, vel mennt- aður og miklu meira en sérfróður mað- ur í einni grein nútímaþekkingar. Þökk sé honum fyrir svo holla, greind- arlega og markvissa leiðbeiningu. Sem betur fer, hafa þjóðirnar átt, og eiga nú, allmarga slíka ágætismenn, sem glöggt sjá, hver rót mannfélags- meinanna er, sem hafa skrifað um það heilar bækur, miklar og merkilegar og bent á hina einu, margreyndu gæfu- braut. En heimur blindaður af efnis- hyggju, nautnasýki og öllu því mold- viðri, sem óábyrgir menn þyrla í augu manna til þess að geta hnýtt þá á sitt band, áttar sig, því miður illa, eða alls ekki, á slíku bjargráði. Vilji menn, að mannlífsakurinn standi með blóma, verða þeir að nenna að rækta hið góða og guðlega, en upp- ræta illgresið með rótum. Og það er hið eina, sem gefur hinn þráða ávöxt hundraðfaldan. Við skulum fara að ráði læknisins, og að ráði spámanna allra alda, snúa viS. Snúa við frá sinnuleysinu, andleys- inu, efnishyggjunni, nautnasýkinni, kæruleysniu og letinni, og víkja inn á braut gæfunnar og ala upp kynslóðirnar í guðselsku og góðum siðum. HIÐ SAMEIGINLEGA Til þín, ó, GuS, frá höll og hreysi, hrópar allt um vernd og náS. Börn þín kvíSa, óttast, efa, oft af raunum mcedd og hrjáS, hungrar, þyrstir, hrópa, biSja, hjörtu margra nístir kvöl, mannkyns ásýnd augum starir út r tómiS, bleik og föl; hrcedd viS myrkriS, hrcedd viS kuldann, hrcedd viS þetta mikla tóm, hrcedd viS þjóSa böl og blindni, beiskan lífsins skapadóm. Lít í þinni líkn og mildi, lífsins herra, á meinin vor. Auk oss trúartraust og djörfung, trú og von og guSlegt þor. Pétur Sigurðsson. Cflen4at BINDINDISFRÉTTIR Krafa er uppi um það í Noregi, að ríkið beri allan kostnað við áfengis- varnanefndirnar. ★ Lögreglufulltrúi í Kristiansand segir að EksportöliS valdi mikilli óreglu. Það sé ódýrara en brennivín og auðveldara að afla sér. Flaskan kosti kr. 1,90, og af tveimur flöskum finni menn töluvert á sér. Margir hinna kærðu fyrir áfengis- lagabrot hafi drukkið aðeins þetta öl. Dag einn hafi hann tekið menn, sem hafi haft með sér heilan kassa. Umsjónarmennirnir á járnbrautunum kvarta um aukna óreglu síðan þetta öl kom til sögunnar. Yfirmaður þeirra, Kristiansen, segir: „Síðustu tvær vikurnar hefur þetta verið mjög slæmt, og það er áreiðanlega að kenna eksportölinu". Þetta Eksportöl í Noregi á tilveru sína því að þakka, að það átti að vera útflutningsvara fyrst og fremst. Það átti að græða erlendan gjaldeyri. Þannig eru alltaf einhverjar tálbeitur, þegar auka skal á veg og gróða þeirra, sem framleiða og selja áfengi og þóknast þeim, er þurfa að svala þorsta sínum, allt þó auðvitað öðrum til óbætanlegs tjóns. En niðurstaðan hefur orðið sú í Noregi, að af Eksportölinu er flutt út 4%, en 96% drekkur þjóðin sjálf. Mikil óánægja er með þetta í landinu. Bind- indissamtökin berjast gegn því, einnig sterkir menn í Stórþingi Norðmanna og er forsætisráðherrann þar í sveit. Fyrir utan hina skipulögðu bindindis- starfsemi æskumanna í Noregi eru mörg æskulýðssamtök, sem efla bindindis- semi. Hin helztu eru þessi: Nöfn Félagafjöldi: íþróttasambandið .......... 270,000 Kristilegt samband ungmenna 62,000 Samband drengjaskáta .... 22,000 Samband stúlknaskáta .... 15,000 Ungmennasamband sveitanna 15,000 Ungmennafélag Noregs .... 55,000 Æskulýðsfylking verkamanna 52,000 Ungmennasamb. Kommúnista 17,000 Ungir vinstrimenn........... 10,000 Framfylkingin .............. 10,000 Norges Ungdomsherberger . . 11,000 Samtals: 529,000 I fangelsi einu í Noregi var rannsak- að á hvaða aldri 223 fangar hefðu byrj- að að neyta áfengis og hver var helzta orsökin, yfir 80% höfðu byrjað á aldr- inum 15—25. Upphafið sögðu 2 vera fordæmi föðursins, 4 höfðu fengið að kynnast áfenginu á barnsaldri, einn tók það samkvæmt læknisráði, 10 sóttu það fyrir verkamenn og fengu bragð um leið. 6 unnu að meðhöndlun áfeng- is, 30 kendu um drykkjuvenju yfirmanna sinna, 135 félögum sínum, 6 vondum félagsskap og iðjuleysi, 11 kendu það ástarsorg, slæmu hjúskaparlífi og gá- leysi. ★ I byrjun júlí kom stjórn alþjóðahá- stúkunnar saman í London og ræddi mörg mikilsvarðandi mál. Alls hafði fé- lögum reglunnar fjölgað um 7000 árið 1948. í ráði er að kaupa eign í Eng- landi, sem verið getur miðstöð fyrir nám og fræðslustarfsemi æskulýðshreyfingar- innar. Búist er við, að á næsta fundi f ramkvæmdanefndar alþj óðastúkunnar verði allveruleg breyting á henni. Eru þar sennilega einhverjir, sem aldurs vegna gefa ekki kost á sér framvegis, þar á meðal ritarinn, hinn kunni ritstjóri og atkvæðamaður, Larsen Ledet. ★ Vaxandi áfengissýki í Frakklandi. Finnska blaðið, Hembygden, segir: ,,Því meir sem hömlurnar á áfengissöl- unni eru afnumdar í Frakklandi, versn- ar mjög heilsufar manna. Þessu til sönn- unar er nóg að nefna nokkrar staðreynd- ir, er framkomu á 28. heilsuverndarráð- stefnunni í París. Dr. Derobert benti þar á, að á einu sérstöku sjúkrahúsi hafi verið lagðir inn 33 áfengissjúklingar árið 1944, en 50 árið 1945, 87 árið 1946 og 1947 urðu þeir 145. Á aðeins hálfu árinu 1948 voru þeir orðnir 134“. Frakkland er eitt af þessum löndum, sem andbanningar telja til fyrirmyndar í meðferð áfengis. En bölið sverfur þar að engu síður en hjá okkur og víðar um heim. ★

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.