Eining - 01.08.1949, Page 17
>
EINING
17
%
V
I
son, Stefán Stefánsson og Þorsteinn
Þorsteinsson.
Fjarverandi voru: Bernharð Stefáns-
son, sem var veikur, Gylfi Þ. Gíslason
og Jónas Jónsson.
Allmargir þingmannanna gerðu grein
fyrir atkvæði sínu. En bindindismenn
hafa hér aðeins eitt sjónarmið: Hvað er
til fyrirmyndar og samboðið öllu rétt-
læti.
Til kaupenda blaðsins
Kceru kaupendur Einingar.
Það er ánægjulegt að leggja hönd að
hvaða verki sem er, ef samvinna er góð
með mönnum. Ef hugur ykkar er góður
til blaðsins og ykkur þykir vænt um að
fá það, þá er ánægjulegt að vinna að því
og senda það út, annars ekki.
Verið nú góðir kaupendur og sam-
starfsmenn og sendið blaðinu, ef þið
getið komið því við, árgjaldið 1949, sé
það ógreitt, en það er nú 20 kr. Slíkt
léttir blaðinu störfin, sparar því inn-
heimtugjald og fyrirhöfn og tryggir til-
veru þess. Utvegið blaðinu svo nýja
kaupendur, ef tækifæri gefst.
Beztu þakkir fyrir samvinnu fram að
þessu.
Virðingarfyllst.
Pétur Sigurðsson.
Nýjasti skólinn
Kæruleysi og trassaskapur eru, ef til vill, heimsins stærstu
syndir.
I skjóli kæruleysis og andvaraleysis, eru drýgðir hinir verstu
glæpir og styrjöldum oft hrundið af stað.
Flest slys eru einnig kæruleysinu að kenna.
Eins og aðrir sjúkdómar á kæruleysið sín sjúkdómsein-
kenni. Þau eru auðvitað mörg, en eitt þeirra er meðferð
móðurmálsins. Flestir erum við þar eitthvað sekir, en þó
nokkuð misjafnlega.
Þótt ekki sé það á valdi allra, að nota málfræðilega rétt
mál, geta flestir lagt stund á fegurð tungunnar.
Einhver trassi skrifaði í eitt víðlesnasta blað landsins:
„Fyrstu blóðgjöfina borgaði Englendingurinn 100 pund
fyrir“.
Hér þarf aðeins að hafa endaskipti á setningunni og byrja
á síðasta orðinu. Sama er að segja um venjulegt tal manna
eins og þetta:
,,Hvað ertu að glápa á?“ í stað þess að segja: Á hvað
ertu að glápa eða á hvað ertu að horfa.
Afreksmaður verður helzt enginn í listum eða íþróttum
nema með mikilli þjálfun og ástundun.
Orðsins list er fögur íþrótt. Við getum flest vandað með-
ferð móðurmálsins fram yfir það, sem venjulegt er. Slæm
meðferð tungunnar er glöggt kæruleysiseinkenni, en sá, sem
iðkar hirðusemi í einu, verður hirðumaður á fleiri sviðum, og
hirðusemin er meira en gullvæg dyggð.
Kirkj ublaðið er málgagn íslenzku kirkjunnar. Útgefandi og ábyrgSar- Rúllu- og hleragerð Reykjavíkur Klapparstíg 8.
maður Sigurgeir Sigurðsson biskup. Kemur út bálfsmánaðarlega og auk þess sérlega vandað og stórt jólahefti. Árgangurinn kostar aðeins 15 hrónur. Nýir áskrifendur fá jólahefti blaðsins 1944—1946 ókeyp- is, meðan upplag endist. Kirkjublaðið þarf að komast inn á hvert heimili á land- inu. Utanáskriftin er: KIRK J UB LAÐIÐ, pósthólf 532, Reykjavík. FLOSI SIGURÐSSON Smí'ðum að nýju og gerum við trollhlera, troll- baujur og annað til veiðarfæra og togara. — Allar trévi'Sger'Sir til skipa fljótt og vel af hendi leystar.
Fjölbreytt úrval af hvers konar
pr jóna vörum
Verzlun Ennfremur alls konar
vefnaðarvara
Benónýs Benónýssonar og smávara.
Hafnarstrœti 19. — Sími: 3964. \Jeáta h.j'.
Laugavegi 40 . Sími 4197.
*