Austurland - 09.05.1985, Blaðsíða 1
Austurland
35. árgangur. Neskaupstað, 9. mai 1985. 19. tölublað.
Bílasala - Bílaskipti
Vantar bíla á söluskrá
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
Helgi Seljan:
Um ranga orðnotkun
og áróðursóhróður
Fyrirgreiðslupólitík er orðið eitt lakasta skammaryrði,
sem haft er um stjórnmálamenn.
Alhæfing þessa er orðin undarlega algeng og nœr jafnt
yfir eðlilega aðstoð og þjónustu tengda lifandi sambandi
við fólk og einhverja óskilgreinda undirheima - og mold-
vörpustarfsemi, eitthvað sem er í senn andstyggilegt og
óheiðarlegt. Og sú er nú orðin merkingin, þegar menn taka
stórt upp í sig, jafnvel heilir flokkar setja upp heilagsanda-
svip og bæta þá gjarnan við kjördœmapoti sem hámarki
viðbjóðsins. Hér er orðin full ástœða til að staldra við og
gaumgœfa mál af skynsemi.
Fyrst um kjördæmapotið
Þar er niðrandi merking á
ferð. en að baki orðsins Iiggur
það einfaldlega, þegar grannt er
að gáð, að þingmaður vinni sínu
kjördæmi vel. Vissulega þarf
saman að fara hagkvæmni og
heildarstoð fyrir þjóðfélagið í
heild, en flest mál, sem að er
unnið fyrir einstakt kjördæmi
eru hlekkir í heildarvelferð
þjóðarinnar. Auk þess er lands-
Vopnafjörður:
Kviknaði
Að morgni sumardagsins
fyrsta kviknaði í vélasal frysti-
húss Tanga hf. og sláturhúss
Kaupfélags Vopnfirðinga.
Kviknað mun hafa í gömlum
vinnubekk, sem brann alveg,
Raflagnir í salnum svo og raf-
magnstafla brunnu og eru það
mestu skemmdirnar, sem urðu,
en aðrar skemmdir urðu einnig
nokkrar af sóti og reyk. Vélarn-
ar sluppu við skemmdir.
Reykur komst í kjötgeymsl-
ur, en enn er ekki ljóst, hvort
skemmdir hafa orðið á kjötinu.
Kindakjötið sem var í plastpok-
um er talið hafa sloppið, nauta-
og hrossakjöt var geymt í grisju-
pokum og gæti eitthvað af því
verið skemmt. Reykur komst
ekki í fiskgeymslur, enda eru
þær í öðru húsi.
byggðin svo afskipt í mörgu, að
það þarf vissulega að taka á í
þágu einstakra byggða í at-
vinnulegu og þjónustulegu tilliti
og í raun vinna fyrir landsbyggð-
arfólk sérstaklega á velflestum
sviðum. Og vel að merkja:
Skylda þingmanns af lands-
byggðinni er ekki síður í þessu
fólgin en því að setja langa laga-
bálka um hvaðeina, þó margir
séu þarfir og réttmætir. Kjör-
dæmapot er nefnilega orð sem
í vélasal
Slökkvistarf gekk vel og
hreinsun og endurbætur hófust
strax. Vinna í frystihúsinu féll
niður í tvo daga, en hófst með
eðlilegum hætti mánudaginn á
eftir.
Heildartjón af brunanum
liggur ekki fyrir enn, en talað
hefir verið um 2 millj. kr. tjón
hjá Tanga hf. og gæti það verið
annað eins hjá Kaupfélaginu.
Mikil vinna er á Vopnafirði.
Brettingur kom inn sl. laugar-
dag með 140 tn og og unnið var
bæði laugardag og sunnudag.
Grásleppuvertíð er í fullum
gangi, en þær veiðar stunda 6 -
8 trillur. Tangi hf. tekur nú í
fyrsta skipti á móti hrognum og
verkar þau. Ó. K. Á. / B. S.
síðdegispressan og andbyggða-
öfl hafa tekið upp til að skensa
og gera tortryggilega baráttu
landsbyggðarþingmanna fyrir
umbjóðendur sína. Hér er
nefnilega um eina aðalskyldu
þingmanns að ræða og samfé-
lagsleg skylda um leið að sinna
sínu kjördæmi vel án þess að
halla á önnur.
Og þá er það
fyrirgreiðslan margfræga
Þá fara menn fyrst að tala um
spillingu og annað ámóta
þokkalegt. En hver er þessi
fyrirgreiðsla, hvar liggur spill-
ingin, hvar er óheiðarleikinn
sem óvandaðir fréttasnápar og
fallkandidatar m. a. smjatta
gjarnan á?
Vel mega vera finnanleg
dæmi, þar sem á einhverju slíku
örlar en þau eru hverfandi fá.
Það fullyrði ég af nokkrum
kunnugleika. Meginfyrir-
greiðslan felst í aðstoð og þjón-
ustu við fólk. sem er að leita
réttar síns og veit ekki. hversu
að skal farið, aðstoð við fólk
sem farið hefur halloka. misst
starfsorku sína eða lent í fjár-
hagslegum ógöngum af ýmsum
ástæðum m. a. óreglu. Þing-
maður sem ekki leitar eðlilegra
leiða til aðstoðar þessu fólki,
leiðbeinir því og hjálpar því til
að ná rétti sínum, sá þingmaður
er einfaldlega ekki starfi sínu
vaxinn. Svo einfalt er það.
Fyrirgreiðsla í bönkum er oft
nefnd sem höfuðsynd. Vissu-
Hið nýja hús frœðsluskrifstofunnar á Reyðarfirði („Hermes").
Fræðsluskrifstofa
Austurlands
flutt í Hermes
Fræðsluskrifstofa Austur-
lands hefir frá upphafi verið í
þröngum húsakynnum í kjallara
íbúðarhússins að Mánagötu Í4
á Reyðarfirði. Skömmu fyrir
síðustu jól varð á þessu breyt-
ing, en þá flutti fræðsluskrifstof-
an í rúmgott húsnæði að Búðar-
eyri 4 á Reyðarfirði, en það er
húsið Hermes, sem áður fyrr var
bústaður kaupfélagsstjóra KHB
á Reyðarfirði og um nokkurra
ára skeið dagheimili fyrir börn.
SSA keypti húsið til afnota
fyrir starfsemi fræðsluskrifstof-
unnar og eru möguleikar á frek-
ari byggingum í framtíðinni á
lóðinni, sem fylgir, en hún er
stór og góð. Húsið er 90 m2,
kjallari, hæð og ris.
Á hæðinni er skrifstofa
fræðslustjóra, almenn skrif-
stofa, kaffistofa og snyrting, en
í risinu er aðsetur ráðgjafar- og
sálfræðiþjónustunnar og vænt-
anlegrar kennslugagnamið-
stöðvar.
Ekki er að fullu lokið þeim
endurbótum, sem gera þurfti á
húsinu, en vonir standa til, að
haldið verði áfram við þær síðar
á þessu ári.
Byggt á grein í Einingu. -B. S.
lega er hún til, en hún er nær
eingöngu fyrirgreiðsla við fólk,
sem á þarf að halda, illa sett fólk
í erfiðleikum, sem mannleg
skylda er að aðstoða og gera
léttara fyrir að leysa sín mál.
Einhver hugsanleg undantekn-
ingartilvik breyta engu um þessa
meginreglu.
Fólk má ekki láta blekkjast
Nú gæti einhver haldið að
þessar línur væru skrifaðar af
hörundssárri viðkvæmni þess,
sem 'sakaður hefði verið um
kjördæmapot og fyrirgreiðslu-
pólitík. Löngu er undirritaður
orðinn brynjaður fyrir slíku og
samviskan er í þessu með allra
besta móti. En ég vek hér at-
hygli fólks á rangri notkun hug-
taka, á hinni niðrandi merkingu
sem lögð er í sjálfsögðustu og
ágætustu hluti. Gegn þessum
snápum og kenningum þeirra og
klisjukenndu frösum, sem jafn-
vel formenn flokka taka sér í
munn og verða guðræknislegir í
framan, þó flátt sé hugsað -
gegn þessu þarf fólk að snúast
og það þarf aðeins að nota sína
eigin dómgreind og heilbrigðu
skynsemi til að sjá í gegnum
blekkingarvefinn. Vitaskalfólk
það að tilgangur er hér að baki,
sem helga á meðalið - að draga
úr baráttuvilja landsbyggðar-
fólks og fulltrúa þess, að vinna
með auðmagnskerfinu gegn
fólkinu og láta peningavaldið
sitja yfir hlut þess óáreitt.
í þeim tilgangi eru oröin
notuð, til þess sett fram og haldi
því hver vöku sinni og óbrjáluð-
um sönsum í þessu áróðurs-
moldviðri. sem afturhaldið þarf
á að halda til að þjóna sér, og
þó liðsmennirnir heiti Jón
Baldvin eða Stefán Ben, að
ógleymdum öðrum snillingum.
Fólk á ekki og má ekki láta
blekkjast þó fagurt sé mælt, því
ærinn fláttskapur býr undir. Til
þess eru þessar línur festar á
blað.