Austurland


Austurland - 09.05.1985, Síða 2

Austurland - 09.05.1985, Síða 2
1 FIMMTUDAGUR, 9. MAI 1985. ---------Austurland------------------ MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS Ritnefnd: Elma Guömundsdóttir, Guðmundur Bjarnason, Einar Már Sigurðarson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson. Ritstjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) S7750 og 7756. Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir - Pósthólf 31 - 740 Neskaupstað - 257756. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað S7750 og 7756. Prentun: Nesprent. ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS Á AUSTURLANDI Framhaldsnám á Austurlandi Eitt af því sem fólk veltir fyrir sér og telur mjög þýðingarmikiö, þegar það velur sér búsetu, er hvernig framhaldsnámi er háttað á viðkomandi stað. Framtíð byggðarlaga og heilla landsfjórðunga er því ekki síst undir því komin, hvernig staðið er að framhalds- námi og uppbyggingu þess. Það að geta stundað framhaldsnám í heimabyggð er einn þáttur í jöfnun lífskjara bæði samfélagslega og fjárhagslega séð. Petta er mönnum orðið miklu ljósara nú en áður var og er það vel. Þróun framhaldsskólamenntunar í landinu á síðustu árum hefir gert mönnum þetta ljóst öðru fremur. Nú stunda mörgum sinnum fleiri ungmenni framhaldsnám en var fyrir tæpum áratug t. d. Ástæðurnar fyrir því eru eflaust margar, en ein sú veigamesta er tvímælalaust sú, að nú er unnt að stunda framhaldsnám miklu víðar en þá. Samræming á námsefni og námskröfum hefir einnig átt sér stað, svo að auðvelt er að skipta um skóla hvenær sem er á námsferlinum. Á Austurlandi hefir orðið bylting í framhaldsmenntun á þessu tímabili. Fyrir átta árum stunduðu örfáir tugir Austfirðinga fram- haldsnám heima í fjórðungi, en nú eru þeir hátt á fimmta hundrað. Þetta er jákvæð þróun, að henni þarf að hlynna og efla fram- haldsnámið enn frekar. Starfandi er Stjórnunarnefnd framhaldsnáms á Austurlandi, sem í eiga sæti skólastjórar allra framhaldsskólanna, sem eru sex, og einnig fræðslustjóri Austurlands og áfangastjóri framhalds- námsins. Stjórnunarnefndin gaf fyrir stuttu út blað um framhalds- nám á Austurlandi og heitir það Eining. Þar kemur fram, að framhaldsnám á Austurlandi er þegar mjög fjölbreytt og unnið er að enn meiri fjölbreytni í námskostum. Námið er byggt á eininga- og áfangakerfi og er samvinna skólanna sérstaklega góð og mun vera til fyrirmyndar. í Einingu eru nefnd þrenn sterk rök fyrir áframhaldandi upp- byggingu framhaldsnáms á Austurlandi eins fljótt og kostur er: ,,a) Það er mun ódýrara að stunda nám í heimafjórðungi en í öðrum landshlutum og því styður uppbygging framhaldsnáms á Austurlandi efnahagslegt jafnrétti til náms. b) Ýmsar kannanir hafa sýnt að nálægð skóla hefur mikil áhrif á það hvort nemendur halda áfram námi eftir grunnskólanám eða ekki. Því nær sem skólarnir eru því meiri líkur eru á að ungt fólk notfæri sér þá menntunarmöguleika, sem þeir bjóða upp á. c) Með uppbyggingu framhaldsnáms í fjórðungnum erum við Austfirðingar að hamla á móti þeim atgervisflótta, sem átt hefur sér stað frá landsbyggðinni til Reykjavíkursvæðisins á undanförnum áratugum. Það hefur því miður löngum viljað brenna við, að ungt fólk hefur skilað sér illa til baka eftir námsdvöl í Reykjavík.“ Undir þessi rök skal tekið og skorað á alla Austfirðinga að standa áfram einhuga að eflingu vandaðs og fjölbreytts framhalds- náms sem víðast á Austurlandi. B. S. Frá Sjúkrasamlagi Neskaupstaðar Samlagsmenn vitji nýrra samlagsskírteina Eldri skírteini eru fallin úr gildi DANSLEIKUR verður haldinn í Egilsbúð laugardaginn 11. maí kl. 23-3 Hinn landskunni Magnús Ólafsson skemmtir Austurlandsmeistarar í free style dansi sýna Tískusýning frá Nesbæ Hinar frábæru Bumbur sjá um tónlistina Mætum öll Lionsklúbbur Norðfjarðar Aðalfundur Skógræktarfélags Neskaupstaðar verður í safnaðarheimilinu þriðjudaginn 14. maí kl. 2030 Stjórnin Skíðaiðkendur Sunnudaginn 12. maí kl. 20 lýkur skíðádi Þróttar vetrarstarfinu í safnaðarheimilínu með veitingum og verðlaunaafhendingu Skíðaráð Þróttar Frá Tónskóla Neskaupstaðar Vortónleikar skólans verða í Egilsbúð laugardaginn 11. maí kl. 1400 Fjölbreytt efnisskrá Allir velkomnir Aðgangur ókeypis Skólastjóri Norðfirðingar athugið Þeir einstaklingar fæddir 1969 og fyrr, sem óska eftir vinnu í frystihúsi Síldarvinnslunnar hf. í sumar, vinsamlegast hafið samband við verkstjóra g 7505 Síldarvinnslan hf. Neskaupstað Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 85 ára afmæli mínu 18. apríl sl. Guð blessi ykkur öll Magnea Guðmundsdóttir _____j_____________ ÁRNAÐ HEILLA Afmæli ÓJöf Stefánsdóttir, húsmóðir, Miðstræti 7 (Svalbarði), Nes- kaupstað, varð 70 ára 6. maí sl. Hún er fædd í Neskaupstað og h'éfir alltaf átt hér heima. Sumarbúðir Undanfarin ár hefur Landssamband íslenskra samvinnustarfsmanna staðið fyrir sumarbúðum fyrir börn samvinnustarfsmanna að Bi- fröst í Borgarfirði. Á hverju sumri hafa 40 til 50 börn dvalið þar við íþróttir, leiki, störf og náttúruskoðun og alltaf hefur eftirspurn verið meiri en hægt hefur verið að anna. Nú hefur stjórn LÍS ákveðið að auka þetta starf og verða sumarbúðir nú star- fræktar í orlofshúsum samvinnustarfsmanna að Bifröst í Borgarfirði dagana 1. til 14. júní nk. og að Skúlagarði í Kelduhverfi dagana 9. til 21. júní nk. Á báðum stöðum verður boðið upp á viku dvöl í senn fyrir börn á aldrinum 9 til 12 ára og viðfangsefnin verða svip- uð og áður. Fyrir vikudvöl er gjald aðeins 1700 krónur. enda greiðir Landssamband- ið stóran hluta af dvalar- kostnaði úr sameiginlegum sjóði. Tekið verður á móti þátt- tökutilkynningum næstu daga í símum 91-50643 (Ann Marí Hansen), og 96-21900 / 210 (Erla Helga Guðfinns- dóttir). Einnig munu formenn viðkomandi starfsmannafé- laga taka við tilkynningum um þátttöku. Það er von stjórnar LÍS að þessar sumarbúðir verði vel sóttar og öllum til ánægju. Landssamband íslenskru samvinnustarfsmanna.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.