Austurland


Austurland - 26.09.1985, Page 1

Austurland - 26.09.1985, Page 1
Austurland 35. árgangur. Neskaupstað, 26. september 1985. LJÓSA- STILLINGAR Benni & Svenni S 6399 & 6499 34. tölublað. Síldarsöltun á Mánasumarið 1965. Ljósm. Hjörleifur Guttormsson. Á síðustu vertíð var saltað hjá Mána í um 5000 tunnur, þar af var flakað í um 600. Þar standa nú yfir miklar endurbæt- ur á húsakosti, verið er að byggja geymsluhúsnæði fyrir síldina vestan við söltunarað- stöðuna og til austurs er byrjað Norðfjarðarflug þrisvar í viku Vetraráætlun Flugleiða er nýlega gengin í gildi og gerir hún ráð fyrir áætlunarflugi til Norð- fjarðar þrisvar í viku: á mánu- dögum, fimmtudögum og laug- ardögum. Millilent er á Egils- stöðum alla dagana. Brottför frá Reykjavík er kl. 1015, komið til Egilsstaða kl. 1125, farið þaðan kl. 1150, komið til Norðfjarðar kl. 1210, farið frá Norðfirði kl. 1235 og komið til Reykjavíkur kl. 1355. Ef fiug fellur niður til Norð- fjarðar, en flogið er til Egils- staða, fer rúta með farþega þangað og er fargjald ókeypis fyrir þá, sem keypt hafa flug- miða til og frá Norðfirði. Haraldur Jörgensen. frá mjölgeymslunni. Þarna verða nú settar upp nýjar flökunar- og flokkunarvélar. Hjá SVN eru 40 söltunarpláss og eru um 80 - 100 manns þar við vinnu þegar hæst ber. Bæði Haraldur og Jón Gunnar sögðust bjartsýnir á að nógu margar konur fengjust til söltun- ar, en hins vegar væri fyrirsjáan- legt að karlmenn vantaði. Báðir eru þeir nýkomnir af fundi hjá Síldarútvegsnefnd þar sem ræddar voru horfur á kom- andi vertíð. Alls má veiða í ár 55 þúsund lestir af síld og hefst vertíð 29. sept. Yfir 130 skip hafa leyfi, en vitað er að síldar- Síldin er sérstök Þessi yfirskrift er á nýútkom- inni skýrslu frá Ríkismati sjáv- arafurða um ástand söltunar- stöðva. Af hálfu matsins eru nú gerð- ar meiri kröfur en nokkru sinni fyrr um betri aðstöðu til söltun- ar, t. d. er skilyrði að síldin sé geymd inni í húsi og helst í kæli- geymslu. Saltmagn í síldar- tunnu er nú aðeins 6 kg í stað 25 kg áður fyrr. Þá má geta þess að strangar kröfur eru gerðar til umhverfis, lýsingar, loftræst- ingar og lofthita og svona mætti lengi telja. En nóg um það, því að síldin er sérstök. Bara að heyra orðið síld og söltun hefur komið af stað fiðringi hjá mörg- um og þá að ég held, helst hjá þeim sem stóðu í síldarævintýr- inu svonefnda. Þó að söltunar- hættir séu breyttir síðan þá er a. m. k. í mínum huga síldin alltaf sérstök. Hér í bæ eru starfræktar tvær söltunarstöðvar, Máni og söltun SVN. Ég hitti að máli á dögun- um þá menn sem segja má að beri hitann og þungann af sölt- uninni meðan hún stendur yfir, þá Harald Jörgensen hjá Síldar- vinnslunni og Jón Gunnar Sig- urjónsson hjá Mána. kvótar ganga kaupum og sölum, talað er um 500 þús. fyrir kvótann, og heyrst hefur af ein- um sem keypt hefur síldarkvóta fyrir 2 milljónir. Aðalkaupendur saltsíldarinn- ar eru nú sem fyrr Rússar, og kaupa þeir af þessari vertíð um 200 þúsund tunnur, en á 13% lægra verði en í fyrra. Söltuðu síldarflökin fara að mestu á markað í Svíþjóð og vilja Svíar fá strax 2000 tunnur til þess að hægt sé að skaffa öll- um Svíum síld á jólaborðið. Frystu flökin eru svo aftur á móti seld til Þýskalands. Of langt mál er að segja frá öllu sem bar á góma í viðræðun- um við þá félaga, en báðir voru greinilega komnir í söltunar- stuð. Vitað er að talsvert er af síld í Reyðarfirði og Mjóafirði og er hún allt að 19% feit. Vonandi er að næg síld berist hingað og að nægilegt vinnuafl verði til staðar því að ekki er það svo lítill kostnaður sem þessi fyrirtæki hafa lagt í vegna þessa. Haraldi og Jóni Gunnari þakka ég spjallið og við vorum öll hjartanlega sammála um það að svo sannarlega væri síldin sérstök. E. G. Aðalfundur kjördæmisráðs AB Frá aðalfundi kjördœmisráðs AB 1984. á nýju húsi fyrir móttöku og flokkunaraðstöðu. Söltunar- Jón Gunnar Sigurjónsson. pláss eru 20, en alls vinna þar um 40 manns þegar allt er í full- um gangi. Hjá SVN var saltað í um 7000 tunnur og var aðalsöltunin um mánaðamótin október - nóvem- ber. Aðstaðan sem er í húsi bræðslunnar hefur verið bætt frá því í fyrra, m. a. hefur sölt- unarsvæðið alveg verið lokað Eins og auglýst var í síðasta blaði og boðað hefir verið til flokksfélaga, verður aðalfundur kjördæmisráðs AB á Austur- landi haldinn í Félagslundi á Reyðarfirði um helgina og hefst fundurinnkl. 13 á laugardaginn, 28. sept. Síðdegis þann dag verða tekin fyrir tvö mál sér- staklega auk hinna hefðbundnu aðalfundarstarfa. Það er annars vegar kjaramál fiskverkunar- fólks, þar sem framsögumenn verða Bryndís Þórhallsdóttir og Sigfinnur Karlsson og hins vegar byggðamál, þar sem framsögu- menn verða Hjörleifur Gutt- ormsson og Ásgeir Magnússon. Umræður verða um báða þessa málaflokka. Seinni fundardaginn, þ. e. sunnudaginn 29. sept., fara fram nefndastörf, álit nefnda af- greidd og kosið verður í trúnað- arstörf kjördæmisráðsins. Svavar Gestsson. Annað kvöld efnir Alþýðu- bandalagið til opins stjórnmála- fundar í Félagslundi á Reyðar- firði, þar sem Svavar (iestsson, formaður AB verður aðalræðu- maður, en einnig verða par al- þingismennirnir Helgi Seljan og Ljósm. B. S. HjörleifurGuttormsson. B.S.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.