Austurland - 26.09.1985, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR, 26. SEPTEMBER 1985.
---------Austurland--------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason, Einar
Már Sigurðarson, Sigrún Þormóðsdóttir og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) S7750 og 7756.
Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir-Pósthólf 31
- 740 Neskaupstað - @7756.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
@7750 og 7756.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Ostjórnin gagnvart sjáyarútveginum
Málefni sjávarútvegsins eru í brennidepli nú á haustmánuðum
og kemur það ekki til af góðu. Prátt fyrir mikla fiskgengd þrengir
meira að þessum undirstöðuatvinnuvegi en dæmi eru til um langt
árabil. Pessu veldur fyrst og fremst stefna ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum og málefnum sjávarútvegsins sérstaklega, eins
og hér verða nefnd dæmi um.
1. Rekstrarskilyrði sjávarútvegsins hafa sjaldan verið eins bág
og í tíð ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar. A sama
tíma og gengi er bundið fast æðir verðbólgan innanlands áfram
og er nú nálægt 40%. Pað segir sína sögu að fjármagns-
kostnaður sjávarútvegsfyrirtækja er víða svipaður eða hærri
en útborguð laun.
2. Fólk vantar til starfa í frystihúsum í áður óþekktum mæli.
Víða á Austurlandi eru vinnslustöðvarnar aðeins hálfmannað-
ar til ómælds tjóns fyrir þjóðarbúið og viðkomandi fyrirtæki.
Þessu veldur launastefna ríkisstjórnarinnar og Vinnuveit-
. endasambandsins, sem hrekur fólk frá þessum undirstöðuat-
vinnuvegi.
3. Margir annmarkarhafa komið fram á þeirri fiskveiðistjórnun,
sem Halldór Ásgrímsson lét lögfesta haustið 1983 og fylgt
hefur verið um tveggja ára skeið. Augljósasta ranglætið blasir
við gagnvart smábátum, en marga aðra þætti þarf að endur-
skoða og leiðrétta í ljósi fenginnar reynslu. Hins vegar ber
þeim sem afnema vilja kvótakerfið í heild sinni að benda á,
hvað við skuli taka.
4. Tengslin milli veiða og vinnslu hafa víða þróast í öfuga átt
og rofnað vegna kröfu banka og stjórnvalda um endurskipu-
lagningu fyrirtækja undir merki hagræðingar. Þannig hafa
útgerðarfyrirtæki verið skilin frá fiskverkunarstöðvum, sem
hafa síðan enga tryggingu fyrir að fá hráefni. Stjórnlaus fjár-
festing í frystitogurum er á sama hátt afleiðing af efnahags-
stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart útgerðinni en talið er að
vinnslugeta frystitogara verði um 100 þúsund tonn eða sem
svarar þriðjungi þorskaflans í lok næsta árs.
5. Gæðamál sjávarútvegsins eru í miklum ólestri og alltof mikill
hluti af takmörkuðum afla verður að verðminni vöru en vera
þyrfti af þeim sökum. Þessu veldur m. a. landburður af afla
á stuttum tíma umfram vinnslugetu, of lítill verðmunur á
góðu og lélegu hráefni og ónóg eftirlit.
Allir þessir þættir og fleiri ótaldir vitna um óstjórnina á mál-
efnum þessa aðalatvinnuvegar landsmanna. Þar ræður Fram-
sóknarflokkurinn ferðinni með sjávarútvegsráðherrann og for-
sætisráðherrann í fararbroddi, en Sjálfstæðisflokkurinn leggur
til hugmyndafræðina og atkvæðin sem þurft hefur til að knýja
fram ólögin gagnvart sjávarútveginum á Alþingi.
Það er hins vegar landsbyggðin sem að meginhluta er þolandi
þessarar óstjómar og fólkið sem skapar verðmætin í fiskvinnslunni,
sem nema nú nær 80% af útflutningsframleiðslu íslendinga. Þessari
óstjórn verður að linna áður en landsbyggðinni blæðir út. H. G.
Alyktanir fjórðungsþings
Fiskifélagsdeilda á Austfjörðum
Ferskfiskmat og gæði afla
Fjórðungsþing Fiskifélags-
deilda á Austfjörðum haldið í
Neskaupstað 13. - 14. septem-
ber 1985 samþykkir að beina
eftirfarandi til Fiskiþings:
1. Að teknar verði upp að nýju
þær aðferðir við ferskfisk-
mat, sem nefndar hafa verið
punktakerfi, þær aðferðir
verði reyndar betur og unnið
að endurbótum á þeim.
2. Að yfirmatsmenn vinni ötul-
lega að samræmingu fersk-
fiskmatsins milli staða og
svæða og sæki árlega sameig-
inieg námskeið í þeim til-
gangi.
3. Að við næstu verðákvörðun
á fiski verði lögð rík áhersla
á mjög aukinn verðmun á 1.
og 2. flokks fiski.
4. Að útivistartími skipa verði
takmarkaður eins og þurfa
þykir til að fiskurinn komist
ferskur í vinnslustöðvar.
5. Að allur fiskur komi ísaður
að landi.
6. Að tekið verði til athugunar,
hvort til greina kæmi að skip,
sem lengi hafa komið með
afla með yfir vissri prósentu
í fyrsta flokk. fái sérstakan
gæðastimpil eins og tíðkast
á mörkuðum erlendis.
Öryggismál sjómanna
Fjórðungsþing Fiskifélags-
deilda á Austfjörðum haldið f
Neskaupstað 13. - 14. septem-
ber 1985 beinir eftirfarandi til
Fiskiþings:
1. Að tekin verði upp skyldu-
trygging þeirra, er stunda
sjósókn á smábátum, og séu
þær í samræmi við sjómanna-
lög.
2. Að lögð verði þung áhersla
á, að landhelgisgæslunni
verði gert kleift að reka þrjú
skip, að minnsta kosti í
október til desember og í
janúar til apríl ár hvert.
3. Að þar sem nú er að verða
skylt að hafa gúmmfbjörgun-
arbáta á opnum bátum, verði
séð svo um, að á markaðnum
verði gúmmíbátar af hent-
ugri stærð, viðurkenndir af
Siglingamálastofnun.
4. Að vakin verði athygli á
mjög slæmu fjarskiptasam-
bandi innantil í Berufirði.
5. Að hafnar verði rannsóknir
á innsiglingarbótum við
Hornafjarðarós.
6. Að settur verði upp radar-
skermur á Hlöðu.
Kynning sjávarútvegsins
Fjórðungsþing Fiskifélags-
deilda á Austfjörðum haldið í
Neskaupstað 13. - 14. septem-
ber 1985 ítrekar tillögu sína frá
síðasta Fiskiþingi um kynningu
sjávarútvegs í fjölmiðlum og
leggur jafnframt til, að stjórn
Fiskifélagsins vinni að því við
stjórnvöld, að ráðinn verði
fræðslu- og kynningarfulltrúi
(áróðursmeistari) til að annast
þetta starf.
Greinargerð
Nú koma á hverju ári hundruð
nemenda út úr grunnskólum
landsins. Það hlýtur að vera hverj-
um hugsandi manni mikið
áhyggjuefni, hversu fáir þeirra
velja sér starf í þessum mikilvæg-
asta atvinnuvegi þjóðarinnar.
Orðið hefur að grípa til þeirra ráða
í síauknum mæli að ráða erlent
verkafólk til starfa í fiskvinnslunni.
Þessari þróun þarf að snúa við
og gera þessi störf það aðlað-
andi, að fólk kjósi að vinna þau
og þau skipi þann virðingarsess,
sem þeim með réttu ber sem
lífæð íslensku þjóðarinnar, sem
öllum öðrum fremur ber uppi
það velferðarþjóðfélag, sem við
lifum í, með sköpun um 75%
gjaldeyristeknanna.
Verði ekkert að gert, er vá
fyrir dyrum.
Möskvastærð í botnvörpu
Fjórðungsþing Fiskifélags-
deilda á Austfjörðum haldið í
Neskaupstað 13. - 14. september
1985 beinir því til Fiskiþings, að
leyft verði að nota 135 mm
möskva í poka við grálúðuveiðar
á þeim stöðum, sem vitað er, að
ekki er um annan afla að ræða.
Þingið óskar eftir því, að fram
verði haldið rannsóknum á áhrif-
um möskvastærðar við ýsuveiðar.
Flokksstjóra vantar við ýmis störf í reykiðjuna
Getum einnig bætt við fólki á sama stað
Upplýsingar hjá verkstjóra © 7734
ATHUGIÐ
Vantar fólk við alla almenna fiskvinnu og væntanlega
síldarflökun og frystingu
Útlit fyrir mikla vinnu
Upplýsingar hjá verkstjóra © 7505
Síldarvinnslan hf.
Neskaupstað