Austurland - 07.11.1985, Qupperneq 4
Austurland
Neskaupstað, 7. nóvember 1985.
Austfjarðaleið hf. ® 4250 og 7713 y ^ ATHUGIÐ - ÁÆTLUNAR- l-jjQ Ný bílaleiga Á) /Éjfc SPARISJÓÐURINN S 2
Bílaleiga Benna SÉR UM SÍNA
FERÐIR Á SUNNUDÖGUM S 7476 & 7420 Sparisjóður Norðfjarðar
Breytingar
í Nesbæ
Nýlega hafa átt sér staö mikl-
ar breytingar í tískuversluninni
Nesbæ. Skipt hefur verið um all-
ar innréttingar sem að sögn eig-
anda voru alltaf hugsaðar til
bráðabirgða. Jafnframt þessu
nýtist húsnæðið til muna betur
og hefur verið tekið upp mikið
af vörum nú fyrir veturinn. Jafn-
framt eru til húsa umboð fyrir
DAS, SÍBS og Happdrætti HÍ
hjá Nesbæ. Eigandi er Sigur-
björg Eiríksdóttir. Meðfylgj-
andi mynd er tekin eftir að nýju
innréttingarnar voru teknar í
notkun. A henni er eigandinn
Sigurbjörg Eiríksdóttir.
Blak
Nú er keppnistímabilið hafið
í blakinu. Æfingar hófust hjá
Þrótti strax í byrjun september.
Iðkendum fjölgar hratt og áhugi
virðist mjög mikill. Um það bil
70 stunda æfingar reglulega og
af miklum móð. Þrjár æfinga-
ferðir hafa þegar verið farnar;
til Reykjavíkur, til Akureyrar
Viðtal við Stellu Steinþórsdóttur:
Yinnuvernd varðar allt starfsumhverfið
Á vinnuverndarráðstefnunni
á Iðavöllum í haust náði
AUSTURLAND tali af Stellu
Steinþórsdóttur, verkakonu,
sem er bónustrúnaðarmaður í
frystihúsi Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað og stjórnarmaður
í Verkalýðsfélagi Norðfirðinga.
□ Hún var fyrst spurð, hvers
vegna hún hafifarið á þessa ráð-
stefnu.
■ Eg er í fyrsta lagi send af
verkalýðsfélaginu og fyrirtæk-
inu og ég er hérna vegna þess,
að í Síldarvinnslunni er enginn
öryggistrúnaðarmaður í frysti-
húsinu það ég veit og ég held
ekki heldur í saltfiskinum.
Það kemur líka fram hér, að
í þeim 33 fyrirtækjum, sem skil-
uðu inn spurningalistum, eru 11
öryggistrúnaðarmenn og 4 ör-
yggisverðir, sem er náttúrlega
alltof lítið. Málið er það, að
þessi nýju vinnuverndarlög hafa
raunverulega aldrei komist í
gagnið, vegna þess að fólk hefur
bara hreinlega ekki vitað nógu
mikið um þessi mál.
□ Og öryggismannatrúnaðar-
kerfið virkar sem sagt ekki?
■ Nei, það eru t. d. margir sem
vilja ekki vera öryggistrúnaðar-
menn. Eg hef heyrt það fyrir
sunnan t. d. í viðræðum við fólk,
að öryggistrúnaðarmenn væru
illa séðir og menn sæju þá hverfa
af vinnustöðunum með skjótum
hætti, þeim væri gert ókleift að
starfa og erfitt fyrir og þeir
hreinlega gæfust upp.
En það sem fyrst og fremst
vantar er það, að þeir hafi eiri-
hvern stuðning, einhvern
bakhjarl. Við vitum hvernig
ástandið er hér, Skúli er eini
starfsmaður eftirlitsins fyrir allt
Austurland og það sjá náttúr-
lega allir, að hann annar því
ekki að vera verulegur bakhjarl
á öllu þessu svæði.
□ Pessari ráðstefnu er þá ætlað
að frœða fólk um vinnuverndar-
málin?
■ Já, hún er haldin fyrst og
fremst til að kynna fólki réttindi
og skyldur og líka til að kynna
þá könnun sem gerð var á
ástandi vinnustaða á Austur-
og til Egilsstaða og verður vænt-
anlega fjallað um þær síðar hér.
Meistaraflokkur karla hefur
þegar leikið sinn fyrsta leik í
hinni nýju 1. deild. Var það
gegn KA á Akureyri og tapaði
Próttur 3 : 2. í þeim leik, eins
og verða mun í þeim næsta vant-
aði tvo af máttarstólpum liðsins
sl. ár, þar sem þeir eru við æf-
ingar og leiki með unglinga-
landsliðinu í knattspyrnu.
Næsti leikur verður hér heima
á laugardaginn nk. Mótherjarn-
ir eru íslandsmeistarar Þróttar
frá Reykjavík. Okkar menn eru
staðráðnir í því að standa sig vel
og sýna góðan leik og vænta
mikils stuðnings áhorfenda.
Síðast þegar þessi lið áttust við
voru pallarnir þétt skipaðir og
stemmning mikil. Leikurinn
hefst klukkan 1700.
Áfram Þróttur! G. M.
landi og niðurstöður hennar. í
þeirri könnun voru of fáir vinnu-
staðir til að könnunin væri
marktæk, þetta var aðeins
„stikkprufa“. En hún sýnir það,
að það er ýmislegt, sem er ábóta-
vant. Öryggismál og vinnuvernd-
armál eru í hugum margra ekkert
annað en það, að vélar séu í lagi
og vinnustaðurinn sé ekki hættu-
legur, en þetta kemur inn á allt
starfsumhverfið: aðbúnað, holl-
ustuhætti, aðstöðu, kaffistofur,
snyrtingar og alla aðra aðstöðu á
vinnustaðnum, lýsingu, hita,
kulda og hávaða.
□ Nú ert þú allvel kunnug þess-
um málum, en finnst þér, að þú
hafirgrœtt eitthvað áþessari ráð-
stefnu?
■ Ég tel, að maður sem ekki
hefur verið í trúnaðarmanns-
starfi eða ekki kynnt sér þessi
mál sérstaklega, græði mikið á
þessari ráðstefnu. Og þó að ég
sé lengi búin að vera bónustrún-
aðarmaður, fæ ég samt upplýs-
ingar á svona ráðstefnu, sem
maður hefur gagn af og bara það
að vita, til hverra maður getur
snúið sér, hvaða menn á að tala
við hjá Vinnueftirlitinu eða
okkar mann hér, hvaða gögn
maður getur fengið, er allt mjög
gagnlegt.
□ Lengra varð samtal okkar
ekki um vinnuverndarmálin og
AUSTURLAND þakkar Stellu
viðtalið. B. S.
Getur
einhver
aðstoðað?
Þessi mynd er af Ármanni
Bjarnasyni frá Viðfirði. Frum-
myndin er töluvert skemmd.
Jóhann Rafnsson í Stykkishólmi
hefur beðið blaðið að grennslast
fyrir um, hvort einhver af les-
endum eigi eða viti um ógallað
eintak af þessari eða öðrum
myndum af Ármanni, sem hægt
væri að fá lánað til að taka eftir
því. Þeir sem kynnu að geta
leyst úr þessum vanda eða veitt
upplýsingar sem leiddu til
lausnar á honum eru vinsamlega
beðnir að hafa samband við Jó-
hann eða ritstjóra AUSTUR-
LANDS.
Skák:
Deildarkeppni SÍ
Gæðamat á þorski
Hér á eftir fer tafla yfir gæðamat á þorski í austfirsku togurunum. Heimildir eru unnar upp úr
skýrslu Fiskifélags íslands og nær yfir landanir innanlands frá 1. janúar til 31. maí.
Skip
Magn(tonn) 2. fl. (%) 3.fl.(%) Ófl.(%)
Brettingur NS-50 .... 913 95.7 4.3
Bjartur NK-121 .... 926 94.9 5.1
Hólmatindur SU-220 . . 760 94.9 5.1
Hoffell SU-80 618 93.5 6.5
Ljósafell SU-70 .... 897 93.1 6.9
Krossanes SU-4 .... 364 93.0 6.9
Hólmanes SU-1 .... 671 92.8 7.2
Sunnutindur SU-79 . . . 937 92.6 7.4
Gullver NS-12 1002 91.9 8.1
Barði NK-120 727 91.1 8.9
Ottó Wathne NS-90 . . 852 91.0 8.7
Kambaröst SU-200 . . . 898 90.8 9.2
Þórhallur Daníelsson SF-71 644 90.2 9.8
Birtingur NK-119 . . . 874 89.1 10.9
Snæfugl SU-20 584 85.5 14.5
Annars flolJks fiskur er 72% af verðmæti fyrsta flokks fisks.
0.1
G. B.
Helgina 18. - 20. október sl.
fór fram fyrrihluti deildar-
keppni SÍ. Sveit Skáksambands
Austurlands teflir nú í 2. deild,
eftir sigur í 3. deild í fyrra.
Árangur sveitarinnar var
mjög misjafn í fyrrihluta keppn-
innar og kom greinilega í ljós
æfingarleysi austfirskra skák-
manna. í fyrstu umferð tefldi
sveitin við b-lið Taflfélags Sel-
tjarnarness og sigraði með 3'A
vinn. gegn 2'/i vinn. { annarri
umferð tapaði sveitin fyrir
UMSE með 2 vinn. gegn 4 vinn.
í þeirri þriðju gjörsigruðu Aust-
firðingar Sauðkræklinga með 6
vinn. gegn engum og í fjórðu
umferð töpuðu Austfirðingar
fyrir unglingasveit Taflfélags
Reykjavíkur með 1 vinn. gegn
5 vinn.
Eftir fyrrihluta keppninnar er
staðan þessi í 2. deild:
Vinningar
1. Taflfélag Kópavogs ..................................17
2. Taflfélag Reykjavíkur, unglingar ....................14'/2
3. Taflfélag Seltjarnarness, b-sveit....................14
4. - 5. Skáksamband Austurlands og UMSE ................12/2
Norðfjarðar kl. 2000, teflt verð-
ur í Framhaldsskólanum. Um-
hugsunartími verður 30 mín. á
Nk. þriðjudagskvöld 12. nóv- skák og tefldar þrjár skákir á
ember hefst haustmótTaflfélags kvöldi. E. M. S.
Frá Taflfélagi
Norðfjarðar