Eining - 01.07.1955, Page 2

Eining - 01.07.1955, Page 2
2 EINING j ur venjulega þing þriðja hvert ár. — Já, hvar er Bournemouth? Suður við Ermarsund, og þar er næst stærsta höfn, gerð af náttúrunni, sem til er í heimin- um, var okkur sagt þar syðra. Hin stærsta er í Ástralíu. 1 Bournemouth er löng og mikil baðströnd, fjölbreyttur gróður og alls konar náttúrunnar dá- semdir. Allt er líka gert til þess að hæna menn að. Bærinn telur 142 þúsundir íbúa, og þangað koma um 2 milljónir ferðamanna á ári, svo að auðráðin er sú gáta, á hverju borgarbúar lifa. — Ramminn um hástúkuþingið, þar sem var þessi borg, er mjög fagur. Fyrir einni öld voru 700 manns þarna. — Ég hafði verið kosinn fulltrúi Stórstúku íslands af IOGT 13. júní, en þingfull- trúar áttu að vera komnir til Bourne- mouth 23. júní. Ég hafði alls ekki bú- izt við þessari för, svo ég brá skjótt við að undirbúa mig, en 21. júní flugum við til London, vorum þar tvær nætur og héldum svo með lestinni til Bourne- mouth, og tók það ferðalag þrjár klukkustundir. Við áttum vísa gistingu og fæði á hóteli í Bournemouth. I and- dyri hótelsins hittum við manninn, sem allur þungi undirbúningsstarfsins hvíldi á. Hann á heima þar í borginni og heitir Robert McKechnie. Var hann fram- kvæmdastjóri þingsins, embættismaður í ensku stórstúkunni og dróttseti í há- stúkunni. Menn halda ef til vill, að á svona þingum sitji menn alltaf á umræðu- fundum frá morgni til kvölds, en það er öðru nær. Menningarsamkomur og veizlur taka meira en þriðjunginn af tímanum, ferðir í bílum um nágrennið, til hressingar og skemmtunar, taka und- ir það eins langan tíma, og nefnda- og þingfundir vissulega ekki meira en tæp- an þriðjung af tímanum, sem ætlaður er þinginu. Það er nefnilega gert ráð fyrir kynningu þingfulltrúa og gesta utan funda, og ennfremur ætlast til þess, að þeir hinir sömu fái að sjá umhverfið og njóta góðviðris og náttúrufegurðar, lista og skemmtunar. Auk þess er góðum mat í vinafagnaði ekki gleymt. Þetta gildir ekki sérstaklega um þing Góð- templarareglunnar, þar sem saman koma menn úr víðri veröld, heldur mun það vera algeng regla á alþjóðaþingum og mótum. Á Jónsmessu var haldinn hádegis- verður í glæsilegustu innum borgarinn- ar (Pavilion Ballroom). Þangað bauð móttökunefnd þingsins fulltrúum, em- bættismönnum og ýmsum gestum, en sérstakir heiðursgestir voru borgarstjór- inn í Bournemouth og frú og hátemplar Ruben Wagnsson og frú hans. Forseti nefndarinnar, Stoneley, stórkanzlari ensku stórstúkunnar, stjórnaði hófinu. Mælt var þar fyrir hástúkunni, og gerði það Meþódistaprestur í borginni. Kvað hann Regluna eiga drjúgan þátt í að efla kristilega samvinnu í heiminum og hefði hún tekið að sér hlutverk riddaranna gömlu að halda uppi óaflátanlegri kross- ferð gegn hinum illu öflum, sem ynnu að því að leiða bæði einstaklinga og þjóðfélög í þrældóm. Minnst var Stór- stúku Englands, og þakkaði stórtempl- ar í ensku stórstúkunni, Payne. Hann er Meþódisti. Gamall samherji, enskur, mælti nokkur orð. Að lokum talaði há- templar og þakkaði fyrir gestina. Er Wagnsson skörulegur maður, röddin mikil, og má nærri því segja um hann eins og Sál konung, að hann sé höfði hærri en allur lýðurinn. Þarna í veizl- unni sátum við hjónin hjá Arne Goplen, Joseph Malins. frú hans og sonum, en Goplen er fræðslustjóri í hástúkunni, maður há- menntaður, einkar geðfelldur, og er hið sama um konu hans að segja. Heilsaði ég þarna upp á marga menn, sem ég hef hitt áður, og suma oft, og var þarna fagnaðarfundur, ekki sízt, er ég hitti Larsen-Ledet, bindindisfrömuðinn og mælskusnillinginn danska, prófessor Theo Gláss frá Frankfurt, stórtemplar í þýzku stórstúkunni, kaptein Gaston frá Washington, dr. Heberlein frá Zúrich, Mark Hayler, ritstjóra frá Lon- don, Otto Landt frá Hamborg, Konttin- en, skrifstofustjóra frá Helsingfors, kapt. Rydén frá Stokkhólmi o. fl., að ógleymd- um Wagnsson hátemplar. Næsta boð — einnig hádegisverð- ur — var haldið á sama stað og hið fyrra. Bindindisráð Bournemouth-borg- ar stóð að því þriðjudaginn 28. júní. Meþódistaprestur bauð gestina vel- komna, en hátemplar þakkaði fyrir full- trúa og embættismenn. Var þar vel að oss búið sem í Jónsmessuveizlunni. Sát- um við nú við borð með Konttinen skrif- stofustjóra frá Helsingfors og frú hans. Þriðja boðið var miðvikudaginn 29. júní hjá Hampshire umdæmisstúku. Það var teboð seinni partinn, bæði geysifjöl- mennt og mjög skemmtilegt. Hámarki sínu náði boðfagnaðurinn mánudagskvöldið 27. júní, er borgar- stjórnin hafði opinbera móttöku, bæði í The Pavilion og í ráðhúsinu, fyrir þing- ið, með góðum veitingum, en nú sóttu gestirnir veizluföngin sjálfir á borðin, sem nú er mikill siður orðinn um allan heim. Fór þarna fram dans, fögur músik og viðræður. Vorum við löngum saman þessa sól- ríku daga (því að veður var jafnan bjart og heitt) fjórir landar, Pétur Sig- urðsson erindreki og frú hans og ég og kona mín. Var Pétur varafulltrúi á þing- inu frá Stórstúkunni, og þakka ég hon- um hér með og þeim hjónum ágæta samvinnu, skemmtilegar viðræður og öll viðskipti hin ánægjulegustu. Skal nú víkja að sjálfu Hástúkuþing- inu. Það var sett í mikilli sönghöll — Winter Gardens — tveimur stundum eftir hádegi laugardaginn 25. júní. Stóð sá fundur þrjár stundir. Framkvæmda- nefndin hafði haldið fund 23. júní og undirbúið ýmislegt undir þingið. — All- ir embættismenn voru mættir. 43 full- trúar stórstúkna úr fjórum heimsálfum svöruðu kalli. Ný stórstúka hafði bætzt við á kjörtímabilinu (frá 1952), Stór- stúka Liberíu í Afríku, og var hún boð- in sérstaklega velkomin. Lektor í há- stúkunni, Mjösund, stórtemplar í norsku Stórstúkunni, flutti langa minningar- ræðu um látna hástúkufélaga, á ensku, þýzku og norsku. Minntist hann þar sérstaklega Hvidsten, fyrrum kanzlara í hástúkunni, hins mikla templarahöfð- ingja Norðmanna. Hástúkustig tóku 79 og á þriðjudaginn 10, alls 89. — Skip- að var í auð sæti fastra nefnda og út- býtt skýrslum embættismanna. Ég var skipaður í stjórnskipunarnefnd og Pétur í laganefnd. Um !kvöldið (25.) hélt bindindishreyfingin enska samkomu í ráðhúsinu, og var þar troðfullt hús. Payne stórtemplar flutti aðalræðuna. Margir fleiri töluðu, og þótti mörgum nóg um. Mikill söngur var einnig. Sunnudaginn 26. júní voru tvær guðs- þjónustur, helgaðar þinginu. Fórum við íslendingarnir í fríkirkju um nónbilið. Prédikaði presturinn bindindi mjög kröftuglega, hátíðlegur blær var yfir messunni og mikil hluttaka kirkjugesta í söng. Um kvöldið var symfóníu- orkester í Winter-Gardens, og létu þeir, sem þar voru, mjög vel yfir. Sönghöllin tekur 1800 manns í sæti, og var hvert sæti skipað, enda er Bournemouth mjög fræg fyrir góða söngkrafta. Stjórnandi hljómsveitar þeirrar, er nefnd var, er nú Charles Groves, og er hann kunnur mörgum þeim, sem hlusta á klassiska músik í útvarp. — Ég fór ekki í Win- ter-Gardens, heldur á fund Larsen- Ledet, sem bjó á öðru hóteli en ég, og skemmti ég mér vel með honum. Mánudaginn 2. júní fóru nefndastörf fram fyrr hádegi í aðalstöðvum templ- ara í Bournemouth. Við vorum sex í ¥ 1 • \ \ S V i *

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.