Eining - 01.07.1955, Blaðsíða 3
EINING
3
í
I
nefndinni, sem ég var í, og töluðum við
að mestu skandínavisku. Formaður okk-
ar var Dani, R. Ankjærö kennari, ágæt-
ur málamaður (einnig aðstoðarritari í
Hástúkunni og færði bókina á ensku),
einn Svíi (Wennberg, sem hingað kom
í vor), einn Finni (Konttinen stórtempl-
ar Finna), Carlsson frá Bandaríkiunum
(sænskur Ameríkani) og einn Englend-
ingur (A. F. Richards). Samvinnan
var hin bezta í nefndinni.
Þriðjudaginn 28. júní voru fundir í
Hástúkunni frá kl. 10—12,30 og frá kl.
2,30 til 5 e. h. Voru nú ræddar skýrsl-
ur embættismanna og tillögur nefnda,
en þær komu ekki nærri allar fyrir þenn-
an dag. — Um kvöldið var mikil dag-
skrá í ráðhúsinu. Hátemplar var sam-
komu- og fundarstjóri. Karlakór mikill
söng og margar ræður. M. a. töluðu
þau frú Helga Wagnsson, Goplen, frú
BIomkwist-Lub, gæzlumaður ungtempl-
ara í Hástúkunni, hollenzk merkiskona,
enskur þingmaður og Larsen Ledet, en
auk þess kom á dagskrána fulltrúi frá
Afríku, og teygði hann tímann, svo að
mönnum fór að leiðast, og þegar fleiri
fetuðu í fótspor hans um það, urðu menn
óþolinmóðir. Larsen-Ledet skildi, hvem-
ig komið var, og þegar kom að honum,
talaði hann ca. 3 mínútur.
Miðvikudaginn 29. júní voru um-
ræðufundir frá kl. 10—12,30 og aftur
frá kl. 2,30—5,30 og enn klukkustund
eftir teboðið. Allir fundir Hástúkuþings-
ins, nema hinn fyrsti, voru haldnir í ráð-
húsi borgarinnar, sal, sem rúmar um
1500 manns. Urðu umræður talsverð-
ar, og var nú tekið að afgreiða skýrsl-
ur embættismanna og tillögur nefnda.
Meðal annars voru samþykkt mótmæli
gegn kynþáttaofsóknum suður-afrík-
önsku stjórnarinnar. Var svo til orða
tekið í tillögunni, að sérhver löggjöf,
sem neitar mönnum um réttindi, aðeins
vegna litarháttar þeirra, væri með öllu
óverjandi. Var tillagan samþykkt í einu
hljóði. — Önnur tillaga var á þá leið,
að beina athygli að því, hve mikið af
umferðaslysum stafi af áfengisneyzlu,
samkvæmt óvéfengjanlegum skýrslum,
og vænti þingið róttækra ráðstafana af
hálfu þinga og stjórna gegn drykkju-
skap ökumanna. — Mikla athygli vakti
erindi, sem þingmaður einn flutti um
áfengisbölið í friði og stríði, og kemur
það á prent og á að útbýta því meðal
þingmanna í enska Parlímentinu.
Að kvöldi 29. júní fór fram kosning
embættismanna. Sérstök nefnd hafði
með höndum tillögur um hana, og var
Ragnar Lund, stórtempla,r í sænsku
stórstúkunni, formaður hennar og fram-
sögumaður. Lagði hann til, að allir em-
bættismennirnir yrðu endurkosnir, og
varð sú raunin á. 1 Hamborg 1952 varð
mikil bylting um skipan embætta. Af
þeim embættismönnum Hástúkunnar,
sem sátu bekkinn við setningu þingsins
í Stokkhólmi 1947, var nú einn eftir
(Larsen-Ledet). Hinir ýmist dánir eða
leystir af hólmi vegna ellimæði, svo að
nú sitja í embættum yfirleitt menn á
góðum aldri, og eru þeir áreiðanlega
starfi sínu vel vaxnir og sumir ágæt-
lega. I framkvæmdanefndinni sitja nú
4 Svíar, 3 Norðmenn, 1 Dani, 1 Þjóð-
verji, 1 Svissari, 1 Hollendingur og 1
Englendingur. Eru þannig 12 í ráðinu.
Hátemplar eða formaður alþjóða-regl-
unnar er Ruben Wagnsson, landshöfð-
ingi í Kalmar, 64 ára að aldri, ritari er
Christofer Peet, enskur fyrrv. kaupsýslu-
maður, maður á góðum aldri, gæzlu-
maður ungtemplara frú Blomkwist Lub
frá Amsterdam, skörungur mikill og
drengur góður, gæzlumaður löggjafar-
starfs prófessor Theo Gláss, fræðslu-
málastjóri í Frankfurt an Main, stór-
templar í þýzku stórstúkunni, 59 ára að
aldri, fræðslustjóri Arne Goplen, lektor
frá Osló, áreiðanlega einhver efnilegasti
hinna yngri manna í ráðinu. Rune
Rydén í Stokkhólmi, þaulvanur starfs-
maður, hefur með höndum friðarstarf
innan reglunnar. Hann stendur á sex-
tugu. Larsen-Ledet er heiðursfélagi í
ráðinu og skipar sæti fyrrum hátempl-
ars (sem er látinn). Hann er 74 ára.
Varatemplar er Erling Sörli, skrifstofu-
stjóri í Osló, og kannast ýmsir við hann
hér. Hann er maður á góðum aldri. —
Kanzlari er dr. Fritz Heberlein frá
Zúrich. Hann er lögfræðingur að mennt,
en hefur stundað blaðamennsku um æv-
ina. — Arnold Sabel, tollembættismað-
ur í Gautaborg, er gæzlumaður ung-
mennastarfs. Hann er eini maðurinn í
nefndinni, sem ég hef aldrei talað við.
Hann er á bezta aldri. — Mjösund, yfir-
réttarlögmaður frá Þrándheimi, stór-
templar í norsku stórstúkunni, er lektor
eða kapelán í Hástúkunni. Loks er Elm-
gren, fyrrverandi ritstjóri Reformatorn
í Stokkhólmi, maður vel að sér í málum
og ritfær vel, eins konar einkaritari há-
templars. — Það kom til tals í stjórn-
arskipunarnefnd, að fullmargir ætti sæti
í framkvæmdanefnd, og bentum vér á,
hvort ekki væri rétt að fækka þeim. Var
tillögu um það vísað til framkvæmda-
nefndar til athugunar undir næsta þing.
Að kvöldi 29. var fjölmenn samkoma í
ráðhúsinu, og fóru þar fram ræðuhöld,
söngur o. fl. M. a. var þar stór skáta-
flokkur frá Svíþjóð (Góðtemplaraskát-
ar) og sungu þeir.
Fimmtudaginn 30. júní hófst fundur
kl. 9,30, og fór innsetning embættis-
manna fram kl. 10. Kanzlari ensku stór-
stúkunnar, Stoneley, er fyrr er getið,
annaðist innsetninguna með miklum
virðuleik. Fundur stóð til kl. 12,30, og
var honum síðan fram haldið frá kl.
2,30—4. Var þá Hástúkuþinginu slitið.
Næsta þing verður haldið í Amster-
dam 1958. Bárust heimboð bæði frá
Hollandi og Finnlandi, Fékk Holland
31 atkv. og Finnland 12. — Kvöldið
30. júní var kveðjusamkoma mikil hald-
in í ráðhúsinu. Var þar mikill söngur og
nokkur ávörp. Flutti ég þá ávarp frá
Stórstúku vorri. Einnig sæmdi hátempl-
ar ýmsa verðleikamenn, einkum Eng-
lendinga, heiðursmerkjum Reglunnar.
Þegar þingið var sett, bárust því mörg
skeyti, þ. á. m. frá Gustav VI. Adolf
Svíakonungi, forseta Liberíu o. fl. fyrir-
mönnum og mörgum stórstúkum. —
Innritaðir á þingið voru alls 1625, þar
af um 1000 Svíar. Fulltrúar stórstúkna
úr fjórum heimsálfum voru 43, og fóru
þeir með 77 atkvæði, embættismenn nú-
verandi og fyrrverandi einnig 43. Svíar
áttu á þinginu 11 fulltrúa, er fóru með
36 atkv., Norðmenn 4 ftr. með 10 atkv.,
Englendingar 2 ftr. með 4 atkv., Þýzka-
land 1 ftr. með 2 atkv., Island 1 ftr.
með 2 atkv. — Ur Bandaríkjunum og
Kanada voru 9 fulltrúar, úr Afríku 4,
úr Ástralíu 1 og hinir úr Evrópu. Eng-
inn kom úr Asíu, og voru það vonbrigði.
Tyrkir áttu rétt á 2 ftr. með 4 atkv. —
Fella varð niður af skrá stórstúkur Búl-
garíu, Júgóslavíu og Ungverjalands. Fá
Góðtemplarastúkur eigi að starfa austan
járntjalds.
Rúmlega helmingur allra templara í
heiminum er í Svíþjóð, en miðað við
mannfjölda er íslenzka stórstúkan hin
lang-stærsta í nokkru landi í heiminum.
Af hálfu bæjaryfirvaldanna í Bourne-
mouth var Hástúkuþinginu mikill sómi
sýndur. Kom borgarstjórinn, skrýddur
mikilli hálskeðju, mjög skrautlegri, í
kurteisiaheimsókn á þingið rétt eftir
setningu þess, sagði fáein orð, en hafði
ekki lengri en 7 mínútna viðdvöl Mót-
tökunefnd þingsins sá vel fyrir öllu og
átti heiður skilið fyrir frammistöðu sína.
Á mánudag og laugardag var oss boðið
í 3ja klukkustunda ferðir með bílum
um borgina og í nágrenni hennar, og
voru þær einkar ánægjulegar.
Á heimleiðinni höfðum við nokkurra
daga viðdvöl í London. Hitti ég þá vin
minn, Mark Hayler, ritstjóra Interna-
tional Record, og átti hann sæti í mót-
tökunefndinni og reyndist okkur vel um
útvegun húsnæðis í borginni. Gaf hann
mér merka bók, er hann hefur samið um
bindindishreyfinguna í Englandi frá
upphafi til vorra daga. Enn hittum við
Pétur Sigurðsson ritara enska bindindis-
sambandsins, Cecil Heath lögmann, og
gerðist ég áskrifandi að blaði þeirra. Á
hann og sæti í framkvæmdanefnd Al-
þjóðasambandsins gegn áfengisbölinu,
sem sér um skrifstofu í Lausanne, og
hafði ég hitt hann einu sinni áður á
fundi framkvæmdanefndar.
Sendiherrahjónin íslenzku í London
sýndu okkur þann sóma, að bjóða okk-
ur heim, og sátum við þar lengi í góðum
fagnaði. Nutum við fyrirgreiðslu sendi-
herra, og þökkum við hana sem bezt og
hina einstöku ljúfmennsku og gestrisni
þeirra.
Brynleifur Tobiasson.
i