Eining - 01.07.1955, Page 4

Eining - 01.07.1955, Page 4
4 EINING Seint í maímánuði, þegar þetta er ritað inni á miðju meginlandi Vestur- álfu, leitar hugur okkar hjónanna létt- um vængjum norður í ríki hinnar ;,nótt- lausu voraldar veraldar, þar sem víð- sýnið skín“. Minningarnar úr hinni ógleymanlegu ferð heim til ættjarðar- stranda síðastliðið sumar, einmitt á þeim tíma, er hún skartar sínu fegursta skrúði, þyrpast að okkur í hljóðum fylkingum. Við lifum að nýju þá dásamlegu daga, umvafin sumarfegurð okkar einstæða ættlands og ásthlýjum faðmi frænda og vina. Aldrei fáum við að fullu þakkað þær framúrskarandi viðtökur, sem við áttum þar að fagna af allra hálfu. í þessu gullna minningasafni okkar úr heimförinni skipa minningarnar um viðtökurnar af hálfu íslenzkra Góðtempl- ara mikið heiðursrúm, svo voru þær við- tökur ástúðlegar og höfðinglegar í senn. Ber þar hátt flugferðina til ísafjarðar í boði Stórstúku íslands og ísfirzkra vina og velunnara, og hina frábæru móttöku vestur þar. Aldrei hef eg, Austfirðing- urinn, átt slíkan afmælisdag eins og þar í gestavináttu þeirra Vestfirðinganna, enda mun eg eigi verða svo gamall, þó að eg nái háum aldri, að minningin um það afmæliskvöld hverfi mér úr þakk- látum huga, og tekur það einnig til konu minnar, sem jafnminnug er þess dags og heimsóknarinnar ánægjulegu á Isa- firði, en í henni áttu Góðtemplarar þar sinn mikla og góða þátt, samhliða öðr- um góðvinum okkar á þeim slóðum. — Blessuð séuð þið öll, sem þar tókuð höndum saman við sumardýrðina um að gera okkur þá björtu og glöðu daga með öllu ógleymanlega. Mikið fagnaðarefni var mér það að geta komið á öll þingin þrjú, Stórstúku- þingið, umdæmisþing Vestfjarða og Unglingaþingið, og flutt þar kveðjur vestan um haf, kynnzt hinu fórnfúsa og þjóðnýta starfi reglusystkina minna, endurnýjað kynnin við gamla vini og velunnara og eignast nýja vini í þeim hópi. Alveg sérstaklega þótti mér vænt um að geta verið stundarkorn á Unglinga- þinginu, horft yfir þann fríða og gjörvi- lega hóp ungmenna, og fengið tækifæri til að ávarpa þau. Það hefur verið mitt góða hlutskipti um ævina, sem háskóla- kennari í norrænum fræðum vestan hafs, að vera samvistum æskunni dag eftir dag starfsárið út, og ekkert hlut- skipti veit eg ákjósanlegra. í því starfi felst sterk eggjan til dáða og það heldur manni ungum afidlega að eiga með þeim hætti samleið með æskunni, því að hennar er fram- tíðin, morgundagurinn, sem ber nýjar vonir og drauma og ráðningu þeirra í skauti sér. Þessar hugsanir voru mér ofarlega í huga, er eg ávarpaði Unglingaþingið, og, muni eg rétt, dró athygli hinna ungu og árvöku tilheyrenda minna að sér- stæðri fegurð Islands og miklum fram- tíðarmöguleikum þess, að auðugum menningararfi okkar Islendinga, og minnti á skuldina við fortíð, samtíð og framtíð. Það fann eg ótvírætt, að til mín streymdi hlýr hugur hinna ungu áheyr- enda minna, og því vona eg, að þessi ræða mín, þó eigi væri hún „rituð á blað“, hafi að einhverju litlu leyti ritast á minningaspjöld ungmennanna, sem á hana hlýddu, og þá er mér ríkulega launað. En í rauninni er það eg, sem stend í skuld við þá áheyrendur mína fremur en þeir við mig, því að hafi mér þá stund tekizt að lyfta hug þeirra til flugs, voru það þeir, sem gáfu orðum mínum vængi. Eitt er víst, að heitum og hrærðum huga gekk eg út úr samkomusalnum og niður á bryggjuna á Isafirði áleiðis út í flugvélina, er nokkrum mínútum síð- ar hóf sig til flugs suður til höfuðstaðar- ins. Eg hafði komizt í snertingu við hjartaslög íslenzkrar æsku, séð blika í augum hennar framtíðardrauma og von- ir, og sú reynsla hafði eflt djúpstæða trú mína á ættþjóð mína og land. Vel sé þeim öllum, Góðtemplurum og öðr- um, sem glæða hugsjónaást íslenzkrar æsku með því að halda á lofti merki göfugrar starfsemi og þjónustu æsku- lýðnum til fyrirmyndar og hvatningar! Þátttaka í hinum ýmsu þingum Góð- templara, þó minni væri en eg hefði kosið, vegna þröngrar ferðaáætlunar okkar, var mér enn á ný óræk sönnun þess, hve mikilvægt þjóðþrifastarf Góð- templarareglan vinnur í lífi hinnar ís- lenzku þjóðar. Hitt dylst mér eigi, við hvað ramman reip er að draga í þeirri baráttu með ýmsum hætti; en segja vil eg við reglusystkini mín heilum huga í orðum skáldsins og samherjans ágæta í þeim málum: „Láttu aldrei fánann falla! Fram til heiðurs stigið er. Hver sem vill má hrópa’ og kalla hæðnis-orð að baki þér“. Eigi vorum við heldur fyrr komin aft- ur til Reykjavíkur úr hinni framúrskar- andi ánægjulegu og sögulegu Isafjarðar- för okkar, en við sátum jafn ánægju- legan og minnisstæðan fund og samsæti í minni gömlu og kæru stúku FramtíS- inni. Var það alveg sérstakt ánægju- efni fyrir mig að endurnýja kynnin við ýms stúku- og reglusystkini, sem eg hafði kynnzt og bundizt vináttubönd- um á skólaárum mínum í Reykjavík fyrir meir en 30 árum; eðlilega saknaði eg margra úr hópnum frá þeim tíma, og urðu mér minningarnar um hin horfnu stúku- og reglusystkin harla nærgöng- ular þessa ánægjuríku kvöldstund, en við slíkar minningar, þótt blandaðar séu saknaðarkennd, er gott að verma hug- ann. Öll hlýyrðin, sem sögð voru í garð okkar hjónanna það kvöld, þakka eg hjartanlega, og einkum þótti mér vænt um hin fögru orð, sem ræðumenn og ræðukonur mæltu til konu minnar. — Það var mér sannarlega einhver hug- þekkasti atburðurinn í heimferðinni, að geta setið Framtíðar-fund og brúað með þeim hætti fortíð og samtíð undir merkj- um Góðtemplarareglunnar, þess félags- skapar, er eg tel mig eiga alveg sérstaka hugsjónalega skuld að gjalda og gæfu að gerast þar félagi snemma á árum. Þá áttu Góðtemplarar sinn drjúga þátt í hinum ágætu viðtökum á Sauð- árkróki. Meðal annars sátum við þar höfðinglegt boð á heimili þeirra Jóns Þ. Björnssonar, fyrrv. skólastjóra og frúar hans. Á Sauðárkróki áttum við annars eitthvert eftirminnilegasta kvöld okkar á Islandi. I ógleymanloíjjri heimsókn okkar til ísafjarðar höfðum við um mið- næturskeið séð kvöldroðann og morg- unroðann fallast í faðm á svo dásamleg- an hátt, að eigi verður auðveldlega með orðum lýst. En á Sauðárkróki komumst við einna næst því að sjá miðnætursól- ina. I veizlu Ungmennafélagsins þar stóð eg á fætur um miðnætti, til þess að þakka fyrir okkur hjónin og hlý- yrði ræðumanna í garð Vestur-lslend- inga. Mér varð litið út um gluggann við hlið mér, og eg sá hvar deyjandi kvöld- roðinn og bjarminn frá rísandi sól runnu Prófessor dr. Richard Bech: KVEÐJA til ídenzkra góðtemplara Dr. Richard Beck og frú.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.