Eining - 01.07.1955, Page 11
EINING
11
Jrin heilaga gióÉ..
Betri er þurr brauðbiti með ró
en fullt hús af fórnarkjöti með deilum.
Hygginn þræll verður drottnari yfir spilltum syni,
og hann tekur erfðahlut með bræðrunum.
Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið,
en drottinn prófar hjörtun.
Illmennið gefur gaum að fláræðis-vörum,
lygin hlýðir á glæpatungu.
Sá, sem gerir gys að fátækum, óvirðir þann, er skóp
hann,
og sá, sem gleðst yfir ógæfu, sleppur ekki
óhengdur.
Barnabörnin eru kóróna öldunganna,
og feðurnir eru heiður barnanna.
Ekki hæfir heimskum manni stóryrði,
hve miklu síður göfugum manni lygavarir ....
Sá, sem breiðir yfir bresti, eflir kærleika.
Oröskv. 17, 1—9.
Stúkur stofnaðar.
Ungmennastúkuna Lindina stofnaði Þorvarður Ornólfsson,
kennari, 4. nóvember 1954. Stofnendur voru 42. Þorvarður
er einn okkar allra áhugasamasti liðsmaður í sveit yngri
kynslóðarinnar.
Barnastúkuna Njálu, Hvolsvelli, Rangárvallasýslu, stofnaði
Gissur Pálsson 7. nóvember 1954. Stofnendur voru 71.
Barnastúkuna Perluna stofnaði Hagalín 12. des. 1954. —
Stofnendur voru 102.
Barnastúkuna Framtíðina, í Nesjum í Hornafirði, stofnaði
Hagalín 21. febr. 1955. Stofnendur voru 19.
Barnastúkuna Sandblómið, að Strönd á Rangárvöllum,
stofnaði Gissur Pálsson 1. maí 1955. Stofnendur voru 21.
Stúkuna Stjörnuna í Hornafirði stofnaði Hagalín 20. febr.
1955. Stofnendur 28.
Stúkuna Berglind, Hellissandi á Snæfellsnesi, stofnaði
Hagalín 4. marz 1955. Stofnendur 22.
Stúkur endurvaktar.
Undirstúkuna Jökulblómið, Ólafsvík, endurvakti Guðm. G.
Hagalín 23. nóvember 1954. Félagar 42. (Undirstúkur ættu
að heita aðalstúkur, en ekki undirstúkur).
Stúkuna Þingey, Húsavík, endurvakti Hagalín 1. desember
1954. Félagar 73.
Stúkuna Aftureldingu, Fáskrúðsfirði, endurvakti Hagalín
12. desember 1954. Félagar 52.
Heita má, að endurvakning þessara stúkna sé eiginlega
stofnun þeirra á ný.
Allar hafa þessar stúkur eflst síðan, og sumar að veru-
legum mun. Blaðið hefur getið stofnunar og endurvakningar
þessara stúkna áður.
Mikil fyrirmynd.
I sambandi við barnastúkustarfið er tveggja manna minnst
á sérstakan hátt, þeirra Jóns Þ. Björnssonar, fyrrv. skóla-
stjóra á Sauðárkróki og Sigdórs V. Brekkan, kennara í Norð-
firði. Jón Þ. Björnsson hefur verið gæzlumaður barnastúk-
unnar á Sauðárkróki 47 ár, en Brekkan gæzlumaður bama-
stúkunnar í Neskaupstað, Norðfirði, 33 ár. Báðir þessir
áhugasömu, traustu og grandvöru skólamenn og æskulýðs-
leiðtogar, hafa ávallt elskað Guð sinn, góða siði og hreina,
fagra menninu, og því verið heppilegir leiðbeinendur ungra
sálna og séð líka árangur verka sinna. Hver getur mælt eða
vegið þetta margra áratuga, ólaunaða þjónustustarf? Aðeins
einn, sá, sem sér í leyndum.
Áfengislög og áfengisneyzla.
Að þessu sinni verður hér ekki orðum eitt um þenna lið
þingtíðindanna, heldur aðeins vísað til skýrslu gæzlumanns
löggjafarstarfs stórstúkunnar. Um þessa hlið málsins er búið
að ræða og rita margt á liðnu stórstúkuári. Þar skiptast á
skuggar og skýjarof.
Fjármál.
Stórstúkuþingið stendur jafnan andspænis nokkrum vanda,
er skipta skal því fé, sem stórstúkan hefur til umráða. Þar
eru ýmsir liðir, sem koma til greina, og svo að launa menn
við útbreiðslustarfið og önnur aðalstörf stórstúkunnar. Þó
féllu þau orð í sambandi við þingið, að öllu fremur skorti
starfsmenn en fé, en svo mun verða þar til tekinn verður upp
sá siður, að hafa fastlaunaða og þjálfaða menn árum saman.
Erfitt er að grípa upp dugandi menn aðeins nokkurn tíma
ársins, þótt stundum heppnist það. Bindindishreyfinguna í
landinu skortir enn tilfinnanlega dugandi menn við fræðslu-
og útbreiðslustarfið, og engu síður miklu meira fé til þess
verks, og gildir það ekki sízt um Stórstúku íslands.
Þeir, sem kynna vilja sér fjármál reglunnar, geta fengið
nægilegar upplýsingar í skýrslu ritara stórstúkunnar.
Þingið lækkaði styrkinn til Einingar, úr 8 í 6 þúsund kr.
Hefur fjármálanefnd sennilega fundizt það saka minnst og
annað ef til vill þarfara, og svo huggað sig við, að blaðið fær
einnig ríkisstyrk. Án hans væri ekki unnt að gefa blaðið út,
því að svo ódýrt er það selt, og borgar það þó næstum enga
vinnu, því að ríkið launar ritstjórann. En víst hefði bindindis-
starfið þörf á enn stærra og veglegra blaði.
F ramkvæmdanef ndin.
Þar varð breyting aðeins á tveimur mönnum. Brynleifur
Tobiasson var einróma kosinn stórtemplar. Björn Magnússon,
prófessor, óskaði eindregið í fyrra að láta af því embætti og
gaf nú alls ekki kost á sér að þessu sinni. Kristinn Magnús-
son, málarameistari í Hafnarfirði, óskaði einnig að víkja úr
nefndinni, og ekki sízt til þess, að nýr maður bættist henni,
Guðmundur G. Hagalín.
Auk stórtemplars eru þessir í framkvæmdanefndinni: Sverr-
ir Jónsson, frú Sigþrúður Pétursdóttir, Jens E. Nielsson, kenn-
ari, Jón Hafliðason, fulltrúi, Gissur Pálsson, raffræðingur,
Haraldur S. Norðdahl, tollvörður, Guðm. G. Hagalín, rithöf-
undur, séra Kristinn Stefánsson og Björn Magnússon, próf.
Næsti þingstaður var kjörinn Akureyri. Brynleifur Tobias-
son var kosinn fulltrúi á þing alþjóðahástúkunnar og Pétur
Sigurðsson varamaður.
Helztu samþykktir þingsins voru þessar:
1. Stórstúkuþingið skorar á ríkisstjórnina að láta lögreglustjóra
og löggæzlumenn halda uppi fullri löggæzlu gegn smygli,
bruggun og leynivínsölu í landinu, og krefst þess, að gild-
andi lagaákvæði um sölu og meðferð áfengis séu í heiðri höfð.
2. Stórstúkuþingið skorar á ríkisstjórnina að hraða nú þeg-
ar útgáfu þeirra reglugerða og fyrirmæla, sem um getur
í áfengislögunum, og enn hafa ekki verið birtar, t. d. reglu-
gerðar um meðferð áfengis áhafna skipa og flugvéla.
3. Stórstúkuþingið telur sterkar líkur til, að ákvæði 23. greinar
áfengislaganna um bann við áfengisneyzlu opinberra starfs-