Eining - 01.07.1955, Side 12
12
EINING
SKÝRSLA
um starfsemi áfengisvarnaráðs 1954—'55
um
Áfengisvarnaráðið tók til starfa 6. maí
1954, og hefur það nú haldið alls 28 fundi,
en skrifstofa var ekki opnuð fyrr en í
byrjun októbermánaðar, enda var ekki skip-
að í embætti áfengisvarnaráðunautar fyrr
en frá 1. október. Var ráðunauturinn síð-
an einn um skrifstofustörf frá þeim tíma
þangað til um miðjan janúar. Síðan hefur
hann haft aðstoð á skrifstofu rúmlega hálf-
an daginn.
í byrjun nóvembermánaðar gaf ráðið út
umburðarbréf til allra áfengisvarnanefnda
í landinu og sendi þeim eyðublöð til út-
fyllingar fyrir skýrslur árið 1954 og ýmis
plögg til afnota og leiðbeiningar í starfi
þeirra. Áttu nefndirnar að skila skýrslum
fyrir miðjan janúar. Nefndirnar eru jafn-
margar hreppum og kaupstöðum í land-
inu, eða alls 229. Bréfaskriftir hafa farið
sívaxándj, viðtöl og ýmis konar fyrir-
greiðsla og leiðbeiningar.
Um miðjan janúar var Pétur Björnsson,
kaupmaður á Siglufirði, ráðinn erindreki
áfengisvarnaráðs. Skyldi hann ferðast milli
áfengisvarnanefnda, leiðbeina þeim og sam-
ræma störf þeirra, kveðja þær til starfa og
kynna sér ástandið í bindindis- og áfeng-
ismálum, að fyrirlagi ráðsins. Br ætlun vor
að afla upplýsinga um þessi mál um land
allt, „kortleggja" þannig landið, ef svo
mætti að orði kveða. Hefur Pétur Björns-
son nú ferðast um mestalla Gullbringu- og
Kjósarsýslu, Keflavík, ísafjarðarkaupstað,
Eyjafjarðar- og Skagafjarðarsýslur og
nokkurn hluta Suður-Þingeyjarsýslu með
Húsavík. Hefur hann jafnóðum sent ráðinu
skýrslur með margháttuðum upplýsingum.
í marzmánuði var Ólafur B. Björnsson,
ritstjóri á Akranesi, ráðinn annar erindreki
ráðsins, og hefur ferðast um mestan hluta
Árness- og Rangárvallasýslna. og starfað á
sama hátt og Pétur. Auk þess hefur hann
unnið að því að koma á betra lögreglueftir-
liti en verið hefur á Suðurlandsundirlend-
inu í samvinnu við sýslumenn þar og áfeng-
isvarnanefndir, með góðum vilja dómsmála-
ráðuneytisins.
Nú fyrir nokki-u var ráðinn þriðji erind-
rekinn, frú Guðlaug Narfadóttir, er á sæti
í áfengisvarnaráði. Hefur hún mætt á kven-
félagafundum á Akranesi og Selfossi og
ferðast víðar í sama tilgangi og hinir er-
indrekarnir.
Allir erindrekarnir gefa jafnóðum skýrsl-
ur til ráðsins, og er á þeim, sem fyrr seg-
ir, mikið að græða fyrir ráðið. Er svo til
ætlazt, að þessir eiúndrekar starfi um
þriggja mánaða skeið á yfirstandandi ári.
Þeir mæta einnig á fundum, þar sem lík-
legt er að þeir geti unnið eitthvað fyrir
bindindismálið.
Einnig ferðuðust þeir um nokkurn hluta
Borgarfjarðar í vetur Ólafur B. Björns-
son og Þórleifur Bjarnason námsstjóri. Alls
staðar hefur erindrekunum verið tekið hið
bezta, og óskað hefur verið eftir þeim víð-
ar en þeir hafa getað komizt yfir. Það er
áríðandi að fá að vita, hvernig ástandið er
í öllu landinu, svo að vér kunnum tök á við-
fangsefnunum á hverjum stað.
Áfengisvarnaráðunautur ferðaðist fyrri
hluta vetrar til Akureyrar og ísafjarðar og
í apríl aftur norður í land í erindum ráðs-
ins. Flutt hefur hann erindi í Gagnfræða-
skólanum á ísafirði, í Menntaskólanum á
Akureyri og í Kennaraskólanum. Auk þess
ferðaðist hann til Stokkhólms snemma í
janúar á fund norrænu bindindisnefndar-
innar, þar sem samin voru fyrstu drög til
dagskrár næsta norræna bindindisþingsins,
en það verður haldið í Aarhus 8.—12.
ágúst 1956. Einnig gaf hann nokkrar upp-
lýsingar frá íslandi á fundi, er haldinn
var samtímis í Stokkhólmi meðal bindind-
isþingmanna frá Norðurlöndunum, en þar
mætti enginn þingmaður frá íslandi. Sett
var þar nefnd til þess að stofna samband
meðal bindindis-þingmanna á Norðurlönd-
um, og var Magnús Jónsson alþm., sem á
sæti í áfengisvamaráði, kosinn í hana af
íslands hálfu, samkvæmt tillögu minni.
Skal nú þar til máls taka, er fyrr var
frá horfið, að um 80% áfengisvarnanefnda
höfðu 6. maí s.l. skilað skýrslum til ráðs-
ins. Má það kallast allgóð eftirtekja og
spáir góðu um greið viðskipti milli ráðsins
og nefndanna í framtíðinni. — Að sjálf-
sögðu bárust skýrslur úr öllum kaupstöð-
unum. Þar næst komu Strandamenn. Aust-
ur-Skaftfellingar, Vestur-ísfirðingar, Vest-
ur-Húnvetningar. Því næst Vestur-Skaft-
fellingar og Mýramenn og biskupsstólahér-
uðin, Skagafjörður og Árnesþing. í næsta
flokki Gullbringu- og Kjósarsýsla, Eyja-
fjarðarsýsla og Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýsla. Allgóð skil eru og úr Múlasýsl-
um og Þingeyjarsýslum. Samkvæmt skýrsl-
unum er ástandið svipað og árið á undan
í 135 hreppsfélögum og kaupstöðum, betra
í 34 hreppum og kaupstöðum, en verra í 7
manna, er þeir eru við störf sín, muni vera freklega brotin,
og skorar því á ríkisstjórnina og aðra aðila að sjá um að
ákvæðum þessum sé fylgt eins og lög mæla fyrir um.
4. Stórstúkuþingið átelur þá starfshætti áfengisverzlunar ríkis-
ins að afhenda hömlulítið áfengi, að magni til næstum hvers
sem er, og senda það gegn póstkröfum um land allt, jafnvel
þótt sýnt sé, að þetta áfengi muni fara beint til leynivínsala.
Þar sem ríkiseinkasala á áfengi ætti að hafa þann megin til-
gang, að draga úr og hamla gegn misnotkun áfengis, skorar
þingið á ríkisstjórnina að reka áfengisverzlunina í samræmi
við þann tilgang.
5. Stórstúkuþingið telur það gagnslítið að aðeins tveir eftirlits-
menn séu við sex veitingahús í Reykjavík, þar sem sala áfengis
fer fram, og skorar því á dómsmálaráðuneytið að fjölga þess-
um eftirlitsmönnum svo, að einn eftirlitsmaður komi á hvert
veitingahús.
6. Þar sem reynsla hefur þegar sýnt, að vínveitingar við hina
svokölluðu „bari“ leiða til síaukinnar áfengisneyzlu, skorar
stórstúkuþingið á ríkisstjórnina að beita sér eindregið gegn
slíkum veitingum.
7. Stórstúkuþingið lítur svo á, að sá leiði siður, sem mjög hefur
farið í vöxt, að halda drykkjuveizlur í tilefni af afmælum,
merkisdögum og við öll möguleg tækifæri, sé mjög til þess fall-
inn að eyðileggja bindindissemi þjóðarinnar. Skorar þingið því
á stjórnarvöld, kirkju, stjórnmálasamtök og allan almenning að
vinna gegn þessu og breyta almenningsálitinu í heilbrigðari
átt.
8. Þar sem líkur benda til, að allmikið áfengismagn berizt út af
Keflavíkurflugvelli, af því áfengi, sem flutt er inn vegna setu-
liðsins, skorar þingið á utanríkisráðherra að gera allar hugs-
anlegar ráðstafanir til að fyrirbyggja slíkt.
9. Stórstúkuþingið telur nauðsyn bera til náinnar samvinnu allra
aðila sem vinna að áfengisvörnum og bindindisstarfsemi. Ósk-
ar þingið eftir öflugri sókn gegn ómenningu áfengisflóðsins,
sérstaklega með auknu bindindisstarfi í skólum, unglingastúk-
um og æskulýðsfélögum.
10. Stórstúkuþingið flytur áfengisvarnaráði þakkir fyrir ágætt
starf við að skipuleggja áfengisvarnir í landinu, og þá einkum
formanni þess, áfengisvarnaráðunaut ríkisins, Bi’ynleifi To-
biassyni.
Fleiri samþykktir gerði þingið, svo sem:
að Reglan gerðist aðili að Landssambandi gegn áfengisbölinu,
en það samband verður stofnað á komanda hausti að frum-
kvæði áfengisvarnaráðs,
að ráða framkvæmdastjóra fyrir Regluna,
að stofna til happdrættis fyrir Regluna,
að leita samstarfs við blöð og útvarp um bindindisfræðslu og
áfengisvarnir, auk ýmsra annarra samþykkta um félagsmál.