Eining - 01.07.1955, Side 14
14
EINING
aðila erlendis. Er enn talsvert ógert utn
samning reglugerða, samkvæmt lögunum.
Þegar sýnt var, að verkfall myndi skella á
í vetur, gerði áfengisvarnaráð þegar tillögu
til ráðuneytisins um lokun áfengisverzlun-
arinnar, og fékkst því þegar framgengt, en
tilmælum um bann við áfengissölu í veit-
ingahúsum var hafnað af lögreglustjóra. —
Kvartað var yfir af hálfu ráðsins ólögleg-
um dansleikjum fram á nótt með vínveit-
ingum á veitingahúsum, og var sú kvörtun
tekin til greina af dómsmálaráðuneytinu og
málinu þar með kippt í lag.
Enn fremur fann ráðið að því við ráðu-
neytið, að veitingahús hér tæki upp á
því að loka kl. 9 síðdegis þá daga (mið-
vikudaga), er eigi má selja þar áfengi eftir
náttmál. Ráðuneytið tók kvörtun ráðsins til
greina og var þá hætt að loka fyrr á mið-
vikudögum en aðra daga.
Ráðið gerði og allt, er í þess valdi stóð,
til þess að koma í veg fyrir, að veitt yrði
vínveitingaleyfi í Þjóðleikhúskjallaranum,
er það telur með öllu óviðeigandi. — Enn
fremur hefur ráðið barizt gegn „vínbörun-
um“, er auðvitað eru settir upp af veitinga-
mönnum til þess að örva áfengisneyzluna,
en dómsmálaráðherra telur sig ekki geta
bannað þá. Til þess vanti heimild í lögin.
Þá fékk áfengisvarnaráð því til vegar
komið, að ráðuneytið lagði fyrir Áfengis-
verzlun ríkisins að gefa út ársfjórðungs-
lega sundurliðaða skrá um sölumagn áfeng-
is og verð, og hve mikið væri selt til veit-
ingahúsa og hve mikið í útsölum, en þrátt
fyrir þessi fyrirmæli sendir verzlunin jafn-
ófullkomna staðfræði yfir söluna fyrsta
fjórðung ársins 1955, sem sýnir sig í blað-
inu. Mun ekki skilizt við það mál við svo
búið. Þá komst upp um starfsmenn Áfeng-
isverzlunarinnar í vetur, að selt höfðu fjór-
um sinnum yngri mönnum en 21 árs áfengi,
þvert ofan í lögin. Sluppu þessir menn með
áminningu að sinni.
Staðfræði þá, sem hér er látin í té, eig-
um vér að mestu leyti að þakka Hagstofu
íslands. Hina útlendu staðfræði höfum vér
tekið eftir hinu merka tímariti sænska
„Tirfing“. Að öðru leyti hefur sakadómara-
embættið, lögreglustjórar, bæði í Reykjavík
og annars staðar í landinu, látið oss stað-
fræði (statistik) í té. Kunnum vér þakkir
fyrir. Þá hefur talsverður tími gengið í það,
eins og geta má nærri fyrir stofnun, sem
er verið að setja á laggirnar, að útvega öll
helztu skrifstofugögn, afla nauðsynlegustu
blaða og bóka, útlendra og innlendra, og
koma skipan á allt, og vantar þó mikið á,
svo að vel sé.
Vér þökkum öllum, sem hafa uppörvað
oss og greitt götuna. Þessa stofnun er ekki
hægt að dæma eftir þann stutta tíma, sem
hún hefur starfað, en vér höfum ekki legið
í leti, og æðimargt af því, sem gert hefur
verið og að gagni hefur komið, verður ekki
talið fram á þessum blöðum. Samkomulag í
áfengisvarnaráði og samvinna öll hefur ver-
ið hin ánægjulegasta, og yfirleitt hefur dá-
lítið þokast í áttina um starf áfengis-
varnanefndanna, þó að við margt sé að
stríða enn fyrir frumbýlinginn. Manni
finnst stundum, að alltof margir sinni bet-
ur hagsmunum þeirra, sem selja áfengi og
lifa á skemmtunum í sambandi við það,
heldur en unggróðrinum í skógi þjóðlífs-
ins. —
Minnumst þess öll, að þeir, sem standa
áfengisins megin, verða svo oft, iðulega án
þess að athuga, hvað þeir eru að gera,
til þess að ræna blessuð börnin fegurð, ást,
yndi og þokka.
Bindindishreyfingin hér á landi hefur
fengið betri starfsskilyrði en áður, en
skugga ber yfir þjóðlífið frá veitingahús-
unum, þar sem Bakkus ræður ríkjum.
Samt munum vér bindindismenn og bind-
indisvinir ekki missa móðinn. Reynum að
vera allir samtaka. Stofnum öflugt lands-
samband með haustinu til þess að stytta
veturinn í þjóðlífi íslendinga, lengja dag-
inn. Það er trú mín, að margir verði til
þess að láta sér annt um trúarlega og sið-
ferðilega viðreisn þjóðar vorrar. Allir þeir,
sem það gera, hljóta að leggja hönd á plóg-
inn í baráttunni gegn áfengisplágunni.
Brynleifur Tobiasson.
Ráðnir eftirlitsmenn.
Ráðuneytið tilkynnti áfengisvai'naráði
18. júlí, að Gunnar Ólafsson, Langholts-
vegi 69, og Guðbjartur Ólafsson, Framnes-
vegi 17, hefði verið ráðnir eftirlitsmenn
með veitingahúsum, hinn fyrrnefndi frá 15.
júlí, en hinn síðarnefndi frá 15. ágúst að
telja. — Líklegt er, að þriðja eftirlitsmann-
inum verði bráðlega bætt við.
Erindrelcarnir.
Pétur Björnsson, kaupmaður á Siglu-
firði, hefur nú heimsótt allar áfengisvarna-
nefndir í Norðlendingafjórðungi, nema í
Vestur-Hunavatnssýslu og nokkrar nefndir
í Suður-Þingeyjarsýslu, og mun hann hafa
ferðast um allan fjórðunginn, er blaðið
kemur út í ágúst. Eru skýrslur erindrekans
hinar athyglisverðustu og mikið á þeim að
græða.
Frú Guðlaug Narfadóttir hefur ferðast
um í Austuramtinu gamla, nefnilega Norð-
ur-Þingeyjarsýslu, Norður-Múlasýslu og
nokkuð af Suður-Múlasýslu, og mætt á
kvennafundum. Eru skýrslur frú Guðlaug-
ar rækilegar og fullar af fróðleik um á-
standið.
Bindindissýningin,
sem áfengisvarnaráð hefur áformað að
halda næstkomandi haust, er nú í undir-
búningi. Sýningarnefnd skipa þessir: Pét-
ur Sigurðsson, ritstjóri, tilnefndur af á-
fengisvarnaráði, Þorsteinn Einarsson, í-
þróttafulltrúi, tilnefndur af Bindindisfé-
lagi íslenzkra kennara (B.Í.K.), og Einar
Björnsson þingtemplar, tilnefndur af fram-
kvæmdanefnd Stórstúku íslands. — Fram-
kvæmdastjóri er ráðinn Ólafur Hjartar
bókavörður.
Frá Umdæmisstúku
Suðurlands
Vorþing umdæmisstúkunnar nr. 1
var haldið í Reykjavík dagana 7. og 8.
maí 1955.
Þingið sátu 86 fulltrúar úr umdæm-
inu.
Miklar umræður urðu á þinginu um
það ástand, sem nú ríkir hér á landi
hvað snertir áfengisneyzlu og vínveit-
ingar.
Meðal þeirra samþykkta, sem þingið
gerði, var áskorun til framkvæmda-
nefndar umdæmisstúkunnar um að hefja
í Ríkisútvarpinu og víðar öfluga áróð-
ursstarfsemi gegn áfengisbölinu og að
leita samstarfs við stórstúku Islands og
áfengisvarnaráð um auknar áfengis-
varnir og boðun bindindis.
Einnig voru samþykktar svohljóðandi
tillögur: „Vorþing umdæmisstúkunnar
gerir þá kröfu til hlutaðeigandi aðila, að
framfylgt sé til fullnustu því lagaákvæði,
að unglingum innan 21 árs aldurs sé
ekki veitt vín í veitingahúsum. Telur
þingið nauðsynlegt að allir, sem vín er
veitt á slíkum stöðum, hafi í höndum
aldursvottorð í vegabréfsformi“.
„Þar sem reynslan hefur sýnt, að
vínveitingar við hina svonefndu bari
leiða til síaukinnar áfengisneyzlu, skor-
ar vorþing umdæmisstúkunnar á fram-
kvæmdanefnd stórstúkunnar og áfengis-
varnaráð að beita sér eindregið fyrir
banni gegn slíkum veitingum“.
Þorsteinn J. Sigurðsson, kaupmaður,
var kosinn umdæmistemplar. Aðrir í
framkvæmdanefnd umdæmisstúkunnar
eru þessir: Þórður Steindórsson, Svan-
laug Einarsdóttir, Maríus Ólafsson, Páll
Kolbeins, Jón Kr. Jóhannesson, Karl
Karlsson, Bjarni Halldórsson, Kristjana
Ó. Benediktsdóttir, Jón Hjörtur Jóns-
son og Sigurður Guðmundsson. Um-
boðsmaður stórtemplars í stúkunni er
Gísli Sigurgeirsson, Hafnarfirði.
Áfengisneyzla á bœna-
samkomum.
111 er sú gjöf, sem menningarþjóðir færa
oftast frumstæðum þjóðum. Áfengisneyzla
Grænlendinga er orðin dönsku stjórninni
áhyggjuefni, en þeim sjálfum mikið böl.
Maður nokkur, sem þekkir vel til í Suður-
Afríku, hefur sagt, að hann óttist, að eftir
20 ár verði allir afríkanir orðnir iniklir
drykkjumenn. Þessi orð voru sögð á árs;
fundi Ilvíta Bandsins í Suður-Afríku, og
ennfremur, að foreldrarnir brugguðu öl
heiina hjá sér og kenndu börnum sínuin að
selja það, jafnvel á bænasamkomum kvenna
ætti drykkjuskapur sér stað, börnum innan
16 ára aldurs væri veitt áfengi, embættis-
menn gæfu slæmt fordæmi og lagaákvæðum
viðvíkjandi meðferð áfengis væri illa fram-
fylgt. í járnbrautarvögnum reykja menn
ópíum.