Eining - 01.07.1955, Qupperneq 16

Eining - 01.07.1955, Qupperneq 16
16 EINING Frá B.Í.K. Bindindisfélag íslenzkra kennara hélt aðalfund sinn 10. júní í Reykjavík, að undangengnu tveggja daga námskeiði um bindindismál. Formaður B.Í.K., Hannes J. Magn- ússon skólastjóri, stjórnaði námskeið- inu. í setningarræðu sinni lagði hann aðallega áherzlu á lífrænt samband fé- lagsins við sem flesta starfandi aðila í skólamálum þjóðarinnar og nauðsyn þess, að bindindishugsjónin eignist hvar vetna skelegga baráttumenn. A námskeiðinu voru flutt þessi erindi: Sigurður Gunnarsson, skólastjóri í Húsavík: Bindindissamtökin á Norður- löndum. Kristján Þorvarðarson, læknir í Reykjavík: Áhrii áfengis á mannslíkam- ann. Sveinn Sæmundsson, yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík: Áfengi og afbrot. Esra Pétursson, læknir í Reykjavík: Tóhafeið. Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi í Reykjavík: Átengi og íþróttir. Öll voru erindin hin ahyglisverðustu. Umræður urðu um sum þeirra. Þau voru öll tekin upp á segulband. Þátttakendur voru 40—50. Að loknu námskeiðinu var svo aðal- fundur B.Í.K. Formaður félagsins gaf skýrslu um störf þess á s. 1. ári, og rædd voru af miklum og almennum áhuga framtíðar- störf og fyrirætlanir félagsins, svo sem útgáfa smárita um bindindismál og kennslubókar til fræðslu í barna- og unglingaskólum, árleg námskeið o. fl. Hann skýrði frá því, að Guðjón Krist- insson, gagnfræðaskólastjóri á ísafirði, myndi sækja norræna kennaraviku bindindismanna, er haldin verður í Finnlandi í næsta mánuði. Nýtur hann til þess styrks frá B.Í.K. og Áfengis- varnaráði. Kristinn Gíslason lagði fram síðasta ársreikning félagsins, og var hann sam- þykktur. Félagið nýtur nú styrks frá Áfengisvarnaráði, og er því allvel statt fjárhagslega. Áfengismálaráðunautur ríkisins, Bryn- leifur Tobíasson stórtemplar, mætti á fundinum og flutti snjalla hvatningar- ræðu til félagsmanna. Hann skýrði frá því, að ákveðið væri að stofna á þessu ári landssamband allra bindindissam- taka á Islandi. Fól fundurinn stjórn fé- lagsins að tilnefna tvo fulltrúa til að mæta á stofnfundi þess. Stjórn og endurskoðendur voru end- urkjörnir, en þar eiga sæti: Hannes J. Magnússon, skólastjóri, Akureyri, íor- maSur; Jóhannes Óli Sæmundsson, námsstjóri Akureyri, ritari; Helgi Tryggvason, kennaraskólakennari Rvík, varaformaSur; Kristinn Gíslason kenn- ari Rvík, gjaldkeri; Eiríkur Sigurðsson, yfirkennari Akureyri, vararitari; Marinó L. Stefánsson, kennari Rvík, og Sigurð- ur Gunnarsson, skólastjóri Húsavík, endurskoSendur. í námskeiSsnefnd voru kjörnir: Marinó L. Stefánsson kennari, Þor- steinn Einarsson, íþróttafulltrúi og Þórður Kristjánsson kennar, allir úr Reykjavík. Félagsmenn B.Í.K. eru nú um 70. Fjölgaði þeim um 10 á s. 1. ári. Gleðileg nýjung í mannkyns- sögunni. Hin geysivíðtæku samtök þjóða til líkn- ar og hjálpar þurfandi og þjáðum, er ein gleðilegasta nýjungin í sögu mannkynsins. Árið 1954 veitti barnahjálparsjóður Sam- einuðu þjóðanna 31 milljón barna og mæðra lijálp í 88 löndum. Til þessa var varið 18 milljónum dollara og lögðu 60 þjóðir fram þetta fé. Þessi saintök þjóðanna vinna kappsamlega að alls konar líknarstarfi, heilsuvernd, upp- lýsingu og menningarrækt. Hinn þekkti klerkur, dr. Norman Vincent Peale, var spurður eitt sinn, hvort honum veittist ekki erfitt að trúa á Guð í þessum heimi vand- ræðanna. Klerkurinn svaraði því, að sér veittist mjög auðvelt að trúa á Guð sökum þess, að heimurinn væri svo auðugur af því, er leysti vandræðin og sigraðist á hörmungum. Það er liollt fyrir heilsu okkar, hæði sál- ar og líkama, að horfa fremur á þessa hlið mannlífsins og hugleiða hana, cn að dvelja um of við skuggahliðina. VEL SVARAÐ Ungri frú í Suður-Afríku lánaðist aldrei að lialda þjónustustúlkum sínum. Ein þeirra var að yfirgefa hana skömmu áður en frúin átti von á fyrsta barni sínu. ,,Ég vona, að þú eignist fallegan, lítinn son, frú mín góð“, sagði stúlkan, er hún var að kveðja. „Hvernig veizt þú að það muni verða drengur?“ spurði frúin. „Ég er viss um, frú mín góð, að það verð- ur drengur. Engin stúlka mundi hafa toll- að hjá þér níu mánuði“. * * * Bankastjóri nokkur kom ungum syni sín- um í sveit. Kom svo eitt sinn að heimsækja hóndann og spurði Jjá, hvernig pilturinn dyggði til verka. Bóndi vildi sem minnst segja um það, en sagði þó, að ef drengur- inn hefði þriðju hendina, mundi hann þurfa þriðja buxnavasann til að stinga henni í. Hvílíkur skemmtilestur. Hver skyldi vera tilgangurinn með sögu- lestri, eins og t. d. sinásögunni Reiersen á Suðurstjörnunni, eftir Knud Hamsund? — Saga þessi var lesin í útvarpið 15. júní ’55. Yfirleitt hlusta ég aldrei á sögulesturinn, en nú heyrði ég, að kona ætlaði að lesa smá- sögu, og varð forvitinn. Það getur þá aldrei verið mikill óþverri, hugsaði ég. Hvernig fór svo? Mig undraði stórum á eftir lestrin- um, að kona skyldi fást til að lesa þessa sögu. Hvert var svo efni sögunnar? Skipstjóri á skútu. Sjómaður var hann víst duglegur, en frægð lians lá þó í því, að hann var talinn geta komizt yfir allar stúlkur í voginum. Hann skipti óspart um þær á heztu árum sínum. Ein þeirra var naumast fermd. Eina var hann með inni í einhverju nausti, eftir- minnilega nótt. Hún missti síðar sjón á öðru auganu og „frelsaðist" svo eftir það. Þegar Reiersen var tekinn að eldast, liár og skegg að grána, vildu ungu stúlkurnar ekki koma um horð til hans. En þegar verk þurfti að vinna þar og aðrar fengust ekki, gaf Pálína — hin eineygða — sig fram. Þetta vildi hann launa henni með því að hjóða henni niður í til sín, gefa henni liagldabrauð og vel í staupinu, og þó hún væri eineygð, var hún aðeins fertug, „liold- ug eins og stóðhryssa“, þannig var lýsingin. Hann reyndi að faðina hana og fá hana til við sig, en fékk þá ærlegt kjaftshögg. Nú var spurningin, hvort liann ætti að taka að snúa sér til Guðs, fyrst svo var komið, að kvenfólkið vildi ekki sinna hon- um eins og áður. Mönnum hrá, er þeir heyrðu liann segja: „Guð sé lof“, þegar bú- ið var að flytja fiskinn um borð í skútuna, og svo ætlaði hann að sigla strax, ef „Guð lofaði“. Var nú skröggurinn búinn að taka sinnaskiptum eftir kjaftshöggið hjá Pálínu? -—- Sagan endaði svo fljótt á því, að hann sigldi út og hugðist leita fyrir sér á öðrum slóðum, taldi Jiað „helvíti hart, ef liann væri dauður úr öllum æðum“. Eru slíkar klámsögur ljúflingsréttur al- mennings? Gjafir og greiðsla til blaðsins. Steindór Björnssoir, Reykjavík, 100 kr.; Margrét Jónsdóttir, Reykjavík, 50 kr.; Gunn- ar Árnason, Reykjavík, 100 kr.; Pétur Sig- urðsson, Grafarnesi, 100 kr.; Ásgeir Jó- liannesson, Ólafsvík, 100 kr.; Kristinn Árnason, .Reykjavík, 50 kr.; séra Jón Tlior- arensen, 100 kr.; Tryggvi Sigmundsson, Ytra-Hóli, Eyjafirði, 50 kr.; Sigurður Tóm- asson, Barkastöðum, Fljótshlíð, 200 kr.; Jó- hannes Guðmundsson, kennari, Húsavík, 100 kr.; Guðjón Kristinsson, skólastjóri, ísafirði, 50 kr.; Jóhanna Pálsdóttir, Reykjavík, 50 kr.; Hólmfríður Sigurðardóttir, Borgarnesi, 100 kr.; séra Leó Júlíusson, Borg á Mýrum, 100 kr.; Guðjón Magnússon, Hafnarfirði, 50 kr., Halldór Friðjónsson, Akureyri, 50 kr.; Runólfur Runólfsson, Reykjavík, 50 kr.; Stefán Guðmundsson, Hólum, Dýrafirði, 50 kr.; Þórarinn Magnússon, Reykjavík, 50 kr.; Benedikt Guttorinsson, Eskifirði, 150 kr.; Óskar læknir Einarsson, Reykjavík, 150 kr.; Þorsteinn Jónsson, Ytri-Sólheimum, Vestur- Skaftafellssýslu, 50 kr.; Þórarinn Stefáns- son, kennari, Laugarvatni, 100 kr.; Grímur Kristgeirsson, rakari, Reykjavík, 100 kr. Ritstjórn blaðsins þakkar hið bezta góð- hug og fórnfýsi þessara velunnara þess.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.