Eining - 01.06.1956, Blaðsíða 1
14. árg. Reykjavík, júní 1956. 6. tbl.
Unglingareglan 70 ára
Stofnun.
Hinn 9. maí síðastl. voru liðin 70
ár frá því Unglingareglan á Islandi hóf
starf sitt. Hún er grein af stofni Góð-
templarareglunnar, sem stofnuð var í
Bandaríkjum N.-Ámeríku 1851. Til-
laga um að stofna barnadeildir innan
Reglunnar kom fyrst fram á hástúku-
þinginu í Nashville, Tennessefylki, árið
1860, en það var árið 1874, sem há-
siúkan viðurkenndi formlega stofnun
slíkrar deildar. Um sama leyti stofnaði
hún embætti stórgæzlumanns unglinga-
starfs, sem er yfirmaður barnadeildanna
og á sæti í framkvæmdanefnd hverrar
stórstúku. Barnadeildir þessar voru
fyrst nefndar ,,barnamusteri“. Svo var
einnig hér á landi, en nú eru þær al-
mennt nefndar barnastúkur.
MarkmiS.
Markmið unglingadeildanna var fyrst
og fremst að veita yngri kynslóðinni
fræðslu um hugsjónir Góðtemplara-
reglunnar, sem eru Brtz&ralag allra
manna, efling bindindis og útrýming
áfengisnautnar. Einkunnarorð hennar
eru trú, von og kcerleikur. Unglinga-
reglunni voru valin einkunnarorðin:
Sannleikur, kœrleikur, sakleysi. Börnin
lofuðu að forðast áfengisnautn, tóbaks-
nautn og peningaspil. Þau skyldu og
forðast Ijótt orðbragð, en temja sér
háttprýði, hjálpsemi gagnvart félögun-
um, hlýðni og skyldurækni í skólum og
heimilum. Þetta er takmarkið, sem
stefnt er að með unglingareglustarfinu.
Æskan nr. 1.
Saga unglingareglunnar hér á landi
hefst með stofnun barnastúkunnar,
Æskan nr. 1 í Reykjavík. Hún var
stofnuð 9. maí 1886. Stofnandinn var
Björn Pálsson, ljósmyndari. Stofnendur
c
-i
Hátíðarfundurinn í barnastiikunni Æskunni.