Eining - 01.06.1956, Side 3
EINING
3
deilda hafa verið stofnaðar ungmenna-
stúkur, sem ætlaðar eru æskufólki á
aldrinum 14—20 ára. Þrjár slíkar
stúkur starfa nú hér í bæ. Leiðtogar
þeirra eru sr. Arelíus Níelsson, sr. Jakob
Jónsson og Þorvarður Ornólfsson, kenn-
ari. Gera menn sér góðar vonir um
árangur af starfi þessara nýju félags-
deilda.
Hátíðahöld á 70 ára afmœlinu.
Hinn 9. maí var Unglingareglunnar
minnst í blöðum víðsvegar um landið,
svo og í útvarpi. Hátíðarfundir voru
haldnir víðsvegar, bæði þann dag og
10. maí. Þá voru og haldnar minning-
arguðsþjónustur á nokkrum stöðum.
Hér í Reykjavík var afmælisins
minnst á þann hátt, að börnin söfnuð-
ust saman við fundarhús sín kl. rúm-
lega 10 árdegis, fylktu síðan Iiði og
gengu í skrúðgöngu undir fánum sín-
um, og íslenzkum fánum, til dómkirkj-
unnar. Þar hófst hátíðarguðsþjónusta
kl. 11 árd. Sr. Óskar J. Þorláksson
messaði og dómkirkjukórinn annaðist
söng. Kirkjan var þéttsetin, niðri, af
börnum og unglingum, margt uppi.
Kl. 2 var settur hátíðarfundur í barna-
stúkunni ,,Æskan“. Fundinn sátu um
180 manns. Meðal þeirra var annar af
tveimur núlifandi stofnfélögum Æsk-
unnar, frú Jarþrúður Bjarnadóttir. Hinn
félaginn frú Efemia Waage, gat ekki
mætt. Fundurinn var hátíðlegur mjög
og fór hið bezta fram.
Kl. 18,30 á uppstigningardag var út-
varpað viðtali um málefni unglingaregl-
unnar. Hinrik A. Ottósson, fréttamaður
útvarpsins, ræddi við stórgæzlumann,
nokkra fyrrverandi stórgæzlum. o. fl.
Var þar skýrt frá sögu og starfi ungl-
ingareglunnar. Þótti það fróðlegt, þeim
sem hlýddu, en hlustendur munu hafa
verið fáir, þar sem þetta var á óvenju-
legum viðtalstíma.
Sunnudaginn 13. maí, kl. 13,15 var
hátíðarsamkoma í Austurbæjarbíó fyr-
ir unglingareglufélaga í Reykjavík og
gesti þeirra. Var þar margt til skemmt-
unar, t. d. kórsöngur, 2 sjónleikir, upp-
lestur, hljóðfæraleikur, þjóðdansar o.
fl. Börnin önnuðust öll skemmtiatriði.
Ávarp flutti Kristinn Gíslason, kennari,
þinggæzlumaður ungtemplara í Rvík.
Síðast á dagskránni var falleg skraut-
sýning, er séra Árelíus Níelsson hafði
samið fyrir þetta tækifæri. Húsið var
fullskipað. — Loks sáu ungtemplarar
um barnatíma útvarpsins á annan í
hvítasunnu.
Á þessum tímamótum ber að þakka
unglingareglunni vel unnin störf síðastl.
70 ár. Jafnframt er það ósk allra vel-
unnara hennar, að starf hennar megi
blessast og blómgast í framtíðinni, til
heilla öldnum og óbornum.
25. maí 1956.
Ingimar Jóhannesson.
Það sem Eva las
I ofurlitlu dönsku blaði, sem heitir,
Unge kræfter, er grein, sem heitir,
Og Eva lœste.
Hver var þessi Eva? Var það hún,
sem vísað var burt úr Paradís, og er
hún að hefja inngöngu þangað aftur?
Lestur hennar bendir til þess. Nú hefst
hann:
,,Ný veröld, heimur sælla kynslóða.
Þannig skal það vera og öðruvísi ekki.
Sá mikli dagur kemur, og er ekki langt
undan. Þá mun þetta gerast: Á miðju
hafinu safnast þau saman, öll herskip
heimsins, og í för með þeim skipafloti
undir hvítum fána. . . . Herskipunum
verður sökkt á hafsbotn niður. Fólkið
á hinum skipunum mun hefja fagnaðar-
óp, og samtímis mun íbúum jarðarinnar
tilkynnt, að stundin sé komin, stund
hins eilífa heimsfriðar. í öllum löndum
munu menn draga í hauga fallbyssur
og öll hernaðartæki og bera eld að, en
hvíti fáninn mun blakta við hún.
Þannig verður það: Landamæra-að-
greining skal engin vera, og maðurinn,
hvaða húðlit sem henn ber, getur farið
frjáls ferða sinna hvert á jörðu, er hann
vill. Hráefni heimsins tilheyra öllum
þjóðum og verður skipt eftir þörfum.
Sjálfboðaliðar allra þjóða, æskumenn,
fara víða um lönd og reisa bústaði kom-
andi kynslóðum. Þeir munu breyta
frumskógum heimsins í gróðurlendi, og
eyðimerkurnar munu þeir rækta. Þar
verða engar eyðimerkur framar.........
Þannig verður það: Ekkert þjóða-
hatur, engin þjóðernisrembingur, engir
kúgarar né kúgaðir menn, hvaða kyn-
stofni sem þeir tilheyra. Heimssam-
bandið mun vaka yfir örlögum mann-
Féll forsœtisráðherrann fyrir
áfengispúkanum?
Féll forsætisráðherrann fyrir áfcngis-
púkanum?
I einni af kosningaræðum sínum í París,
minnti Mendes France, fyrrv’. forsætisráð-
herra Frakka á, að liann hefði í stjórnartíð
sinni hundið endi á borgarastyrjöldina í
Indókína og Túnis, en að honum hefði ekki
tekizt að sigra áfengisvaldhafann í Frakk-
landi. Ef til vill hafi það verið sókn sín
gegn honum, er olli falli lians. Áfengið á
sök á helft allra slysa í Frakklandi, sagði
Mendes France. Það ætti einnig sök á 15.000
geðveikistilfella í landinu árlega. Þrír fjórðu
barna landsins fæddist annaðhvort van-
gefin eða vansköpuð. Einnig á þessu ætti
áfengið sök.
Þannig Iýsir fyrrverandi forsætisráð-
herra Frakka áfengismálum þeirra. Skyldu
menn á íslandi, sem trúað liafa á „áfengis-
menningu" Frakka, ekki taka að veiklast
í trúnni líkt og dýrkendur Stalins á óskeikul-
leika hans.
kynsins, það verður í heiðri haft og það
mun efla velsæld manna og létta allar
birðar þeirra. Hinar miklu, óhugsan-
legu vélar framtíðarinnar, verða ekki
gerðar til að þrælka menn, heldur þeim
til lausnar. Vísindi og listir blómgast
og mannvit er þá metið öllum auðæfum
meira. . . . Þá er dagurinn upp runn-
inn, er menn finna aftur hina týndu
Paradís, eftir vegvillur og kvalir ára-
þúsunda.
Jörðin verður Paradís farsælla kyn-
slóða. Engin eymd og engin skortur
er þar framar, en bróðurlegt samfélag
er þá lífsstefna allra manna.
Þannig verður það. Öðruvísi ekki“.
Þetta las þessi Eva. Hvernig líst ykk-
ur á lestur hennar? Eigum við ekki að
þakka henni fyrir lesturinn?
Draumórar, segir einhver. Já, en
flestir miklir draumar manna rætast,
og dýrðlegasti draumurinn mun vissu-
lega rætast í fylling tímans. Trúin á
slíkt mun vissulega styrkja okkur á
pílagrímsgöngunni.
ÞETTA SAGBI
RÁÐHERRANN
A 50 ára afmælishátíð samtaka
bindindismanna í Kaupmannahöfn og
Frederiksberg talaði verzlunarmálaráð-
herra Dana. Meðal annars sagði frúin
(ráðherrann), að bezt sæist á því, hvað
bindindishreyfingin hefði áunnið, að
áfengisneyzla þjóðarinnar væri nú
helmingi minni en hún var fyrir 50
árum. Þá hefði dáið 226 manns í Kaup-
mannahöfn á ári af áfengisneyzlusjúk-
dómum, en nú; dæju þar engir af þess-
um sjúkdómum.
Þrátt fyrir það, að bindindishreyf-
ingin í Danmörku er ekki eins sterk og
í sumum nágrannalöndunum, hefur hún
unnið þjóðinni ómetanlegt gagn. Hún
hefur og átt mjög öfluga forsvarsmenn
í landinu. Órækar skýrslur sanna, að
áfengisneyzla Dana var um síðustu
aldamót yfir 8 lítrar á mann árlega, af
100% áfengi, en komst árið 1917 alla
leið niður í minna en 2 lítra, en hefur
hækkað upp í rúma 3 síðan, og er það
mest ölsullinu að kenna.
Menn mega ekki leggja eyrun að
fleipri þeirra manna, er reyna að telja
öðrum trú um, að bindindisstarfsemin
hafi litlu komið til leiðar. Slíkt eru mikil
ósannindi, sögð af mikilli ósanngirni.
★
Flest lijón, er slíta samvistura, er fólk,
sem eitt sinn fannst það ekki geta komizt
nógu fljótt í hjónabandið.