Eining - 01.06.1956, Síða 11

Eining - 01.06.1956, Síða 11
EINING 11 um sjá. Pétur bar hann á morgnana á háhesti út í slægjuna og á kvöldin fylgdust þeir að heim. Hrafnhildi þótti stundum nóg um, hve hann lét með drenginn. Ekkert það var til, er hann léti ekki eftir honum. Eitt sinn, er Hrafnhildi varð litið út um gluggann, sá hún að Pétur gekk fram og aftur fyrir utan á fjórum fótum og lék hest fyrir Hákon litla, sem sat á baki hans. Það fór einhver unaðsalda um sál Hrafnhildar og hana langaði til að taka þátt í leiknum. Æskufjörið, sem vegna heimilis- ástæðanna hafði um langan tíma verið svo niðurbælt, gerði nú vart við sig og hún var komin niður í miðjan stigann, er hún áttaði sig og sagði við sjálfa sig: „Nei, enn er skap hans svo viðkvæmt og veikt, að mistök af minni hendi gætu orðið honum að fótakefli. Ég verð víst að láta eins og ég hafi ekki séð til þeirra“. Hún sneri því aftur upp, settist við gluggann og hélt áfram við vinnu sína. Eftir stutta stund kom Pétur upp, gekk að glugganum og horfði út. „Líklega er hér fallegasta hússtæðið þar sem gamla húsið var“, sagði hann. Hrafhildur stóð upp og gekk að glugganum. „Já, það hugsa ég“, sagði hún. „Mamma hafði orð á því, hve gamla húsið hefði verið fallegt, en var það ekki fjarska stórt?“ ,,Ég man lítið eftir því þar til nóttina, sem það brann“, sagði Pétur, „það var sorglegt að þannig skyldi fara, enda hefur Hraun aldrei beðið þess bætur“. Augu þeirra mættust, og Hrafnhildi sárlangaði til að fljúga í fang hans og fullvissa hann um, að ef þau tvö að- eins héldu vel saman, mundi Hraun rísa aftur úr rúst og verða að höfuðbóli eins og í tíð feðra hans, en fyrr en varði var hann horfinn aftur niður stigann. Hún sá, að hann gekk yfir túnið að gamla hússtæðinu og fór að fást þar við eitt- hvað. Hún settist aftur við vinnu sína: „Gat það verið, að mestu áhyggjuefni lífs hennar væru nú að hverfa? en því þorði hún ekki að treysta eins örugglega nú og þá, er hún kom fyrst að Hrauni, þótt hún þættist hafa lesið það í aug- um manns síns, að hún ætti meiri ítök í huga hans og sálu, en hann vildi láta í ljós“. Hún sá Pétur hvern dag, er hann átti frístund, við gömlu rústirnar. Hann hlóð stóra hrúgu af grjóti, er hann tíndi saman í kringum grunninn. Stundum vogaði hún sér út til hans, með litlu telpuna, þegar veður var gott, en fátt var um samtal milli þeirra fyrst í stað. Það var eins og ein- hver þröskuldur væri í veginum, en eftir því sem hún kom oftar, færðust þau nær hvort öðru og það bar jafnvel við, að þau settust niður og tækju að bollaleggja um húsbygg- ingu og framtíðarhorfur. Svo fylgdust þau að heim og báru sitt barnið hvort. Þessara unaðsstunda minntist Hrafnhildur jafnan síðan. Sumarið leið og fyrr en varði var haustið gengið í garð með öllum þess fallvaldeik. Skrúðgræni hjúpurinn, sem breytt hafði fegurð yfir tún og úthaga, var fölnaður og bar merki dauðans. Hvergi var grænan blett að sjá, nema hæst upp undir klettum, þar sem ljósgræn mosadrög biðu eftir snjónum til þess að hylja sig. Allt annað var visnað og óþekkjanlegt frá því, sem verið hafði. Að vísu gerði blóð- rautt bláberj alyngið sitt ítrasta til að sýna, að jafnvel sjálfur dauðinn geti haft fegurð í för með sér, en einnig það átti þess skammt að bíða að verða hulið helköldum hjúpi vetr- arins. Hrafnarnir voru teknir að búa sig undir haustþing sitt og lóurnar hvíldu sig fyrir ofan bæinn, áður en þær lögðu upp í langflugið. Öll náttúran bar því vitni, að eitthvað al- varlegt væri í aðsigi. Bændur voru búnir að fara í fyrstu haustgöngur. Tíð hafði verið hagstæð og fjárheimtur góðar. I síðari göngunum hrepptu þeir mesta hrakviðri og komu hraktir eftir margra klukkustunda göngu aftur niður á dalinn. Þeir voru holdvotir og höfðu hvorki bragðað vott né þurrt síðan um morguninn, er þeir lögðu af stað. Þeir settust nú undir stóran stein til þess að hvíla sig og fá sér matarbita, en kuldinn ætlaði að gera alveg út af við þá. Einn þeirra tók þá upp hjá sér heilflösku af brennivíni og sagði: „Sjáið, piltar, hvað ég hef geymt í allan dag, ef vera kynni að einhver okkar þyrfti að fá sér hressingu. Ég hef ekki þorað að sýna ykkur hana fyrr en nú, að við erum komnir niður á jafnsléttu, ætti þá að vera óhætt að bragða dropann“, sagði hann kampakátur. Það færðist bros yfir andlit flestra gangnamannanna, nema Péturs. Hann hleypti brúnum, og þegar honum var rétt flaskan, afþakkaði hann. „Ó, láttu ekki svona, Pétur“, sagði sá er rétti honum flöskuna, „þú hefur gott af því að hleypa í þig hita“. En Pétur rétti flöskuna hinum næsta, en áður en sá hafði tekið við henni, hrifsaði Pétur hana til sín aftur, hcillaði sér aftur á bak, setti stút að munni og lét brennivínið renna ofan í sig, og hefði áreiðanlega tæmt flöskuna, ef Gísli hefði ekki tekið hana af honum. Pétur varð dálítið sneypulegur fyrst í stað, en brátt tók að hýrna jdir honum og fór hann þá að segja ýmsar kýmni- sögur og lofsyngja þenna blessaða töfradrykk, sem kveikt gæti eld í jafnvel köldum steini. Þeir félagar hresstust allir við mat og drykk, en er halda skyldi af stað, gat Pétur ekki staðið á fótunum. Þeir reyndu að leiða hann, tveir á milli sín, en það blessaðist ekki. Þeir náðu þá í hest og settu hann á bak, og Gísli í Gerði bauðst til að fylgja honum heim. Framh. Til gamans Hún við hann: „Þú heldur víst að þú sért einhver engill". -— „Nei, góða bezta, því að þá liefði ég fyrir löngu flogið mína „í gærkveldi liljóp á snæri mitt“, sagði telpa í Finnlandi, „fyrst fóru þau pabbi og mamma í leikliúsið og gáfu mér 50 mörk til þess að ég væri heima, en svo kom kær- asti Önnu Maríu og hún gaf mér 100 mörk til þess að ég væri úti“. 'k Þjónustufús ungur maður hafði gengið rösklega fram í að hjálpa aldurhníginni konu upp í járnbrautarvagninn, bera ferða- töskur hennar inn og koma þeim og öðru, er hún hafði meðferðis, á sinn rétta stað. „Þúsundfaldar þakkir“, sagði gamla kon- an, „en má ég spyrja, ungi maður, reykið þér?“ „Já, ég reyki“, svaraði ungi maðurinn í eftirvæntingu. „Það grunaði mig“, sagði sú gamla, „hæði mæðist þér fljótt og svo er af yður svo sterkur tóbaksþefur". ★ „Mikil breyting hefur orðið á mörgu. Nú fara menn á einni nóttu yfir Atlantsliafið, þótt áður væri það viku ferð eða meira. Áður voru menn eins marga daga og nú klukkustundir að fara yfir Norðursjóinn, og nú er unnl að síma á örfáum mínútum hoðskap, sem áður gat verið mánuði á leiðinni. Samt sem áður er konan mín enn þrjár klukkustundir að búa sig til mið- degisverðar“. Þetta var reynsla hans. Hembygden. Stórstúka íslands 70 ára í þessum mánuði verður Stórstúka íslands 70 ára. Þessu merkisafmæli stórstúkunnar verða ger skil í næsta blaði, að afstöðnu afmælinu og stórstúkuþinginu. Þá verður og sagt frá vorþingum um- dæmisstúknanna, sem haldin voru 26. og 27. f. mán. Verstu svikin Fjársvik mörgum manni bjó mein, og gekk þar ncerri, en ástasvikin eru þó öllum svikum stœrri.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.