Eining - 01.12.1956, Page 2

Eining - 01.12.1956, Page 2
2 EINING / ríki þessara tveggja er varSveizla liins varanlega friöar ekkerl vandamál. Þegar þjóöirnar fara að deemi þessara barna, ekki aöeins á jólum, í kringum jólatré, heldur ævinlega, þá rennur mannkyni upp guðs- ríkisöld. — Börnin lieita Ragnhildur Ás- björnsdóttir og Brynjólfur Erlingsson. sína að vera þessa sama eðlis sem vér, er hann íklæddist mannlegu holdi og fæddist sem lítið barn, hann var það áður, þótt munurinn væri mikill milli hans og vor. Og þegar hann steig nið- ur úr dýrð sinni, gerði hann það til þess, að hefja oss upp. „Fyrir því var það, að hann átti í öllum greinum að verða líkur bræðrunum“. Kristur, sem var englunum hærri, sætti sig við það, að vera gerður englunum lægri — og það er það, sem vér erum nú — til þess að vér mættum í samfélaginu við hann ná upp til þeirrar tignar og sælu, sem hann steig niður frá. Einn af nafnkennd- ustu trúfræðingum miðaldanna, sá er rétt-trúnaðarstefnan gamla hefur haldið sér fastast við, setti fram þá spumingu: „Hvers vegna gerðist Guð maður ?“ Og hann svaraði: Guð gerðist maður, til þess að maðurinn gæti orðið guð. Það er þessi mikli sannleikur, sem Páll átti við, er hann talaði um, að þótt rík- ur væri, hafi Kristur vor vegna gerzt fátækur, til þess að vér skyldum auðg- ast af fátækt hans. Er það ekki hið eigin- legasta gleðiefni jólanna, að frá hinum hæsta ljósheim Guðs, þar sem hinar fullkomnustu verur búa í geisladýrð Guðs eigin auglitis, skuli einn hafa stig- ið niður til þessarar jarðar og lifað sem maður meðal vor, og hann gerði þetta, af því að innsta eðli vort, vor ódauðlegi andi„ er líka runninn þaðan og af því að oss er ætlað þangað að komast, af því að vér erum líka líf af Guðs lífi, sál af hans sálu . . . ? Þessa kenningu um fortilveruna hef- ur eitt af stórskáldum veraldarinnar sett fram í þessu erindi : „Fæðing er gleymska, svefn um stuttar stundir og stjarna lífsins — sál vor — jörðu á er gengin áður undir, aðkomin langt í frá. En alger gleymskan ekki er og aldrei naktir komum vér úr faðmi drottins, heldur draumaský af dýrð hans klæddir í“. Hafið þér aldrei fundið til þess, er þér stóðuð við vöggu nýfædds barns, að yður fannst barnið heilagt ? Sérhver móðir finnur það ósjálfrátt, ef hún á nokkra lotningu í sál sinni. Ég vona, að flestir feður finni til hins sama. Fyr- ir nokkru átti ég tal um þetta við konu. Heilög alvara færðist yfir andlit hennar og hún mælti: „Alltaf þegar börnin mín voru nýfædd, fylltist hugur minn djúpri lotningu og mér fannst mig og alla í kringum mig langa til að færa barninu reykelsi og myrru“. Mér fannst þetta yndislega sagt. Það er hinn næmi skiln- ingur konunnar, sem fundið hefur, hve háleitt er að vera móðir, vitandi að sér- hver barnssál er runnin frá Guði, er líf af hans lífi og sál af hans sálu. Hvað má þá Maríu hafa fundizt, er hún stóð yfir litla drengnum sínum. Það er eigi ófyrirsynju, að jólin eru hátíð barnanna. Með því að fæðast í þenna heim hefur jólabarnið vakið lotn- ingu vora fyrir hverri barnsfæðingu, hverri barnssál. Þér mæður, gleymið eigi að vekja lotningu hjá börnunum fyrir honum, sem fæddist á jólunum. Engan mun iðra þess, að hafa kennt öðrum að elska hann. En minnið þau einnig á, að sál þeirra sé frá Guði kom- in, og svo góður sé Guð, að hann ætli oss öllum að verða að lokum Kristi líkir. Það sé markmið vort, að láta hann helga oss, svo að vér náum að síðustu til hans dýrðar. En gætið þess vel, að ég er ekki með þessu að halda því fram, að fortil- vera vor sé lík hans. Nei„ ekkert slíkt kemur mér til hugar. Hann er fullkom- inn, vér mjög ófullkomnir, hann kom- inn alla leið að takmarkinu, vér næsta veikir og ófullkomnir byrjendur. En þó segir texti vor oss, að vér séum bræður hans. I því er fólgið mikið fyrirheit. Sál vor er og neisti frá hinum bjarta loga Guðs veru. Og mitt í ófullkomleik vorum er það gleði vor, að finna með flestum — eða á ég ekki heldur að segja með öllum — einhverja löngun til þess, sem er gott og fagurt og heilagt, verða varir við góðleik í einhverri mynd, og það stund- um ríkast með þeim, sem breyskastir eru. Ég minntist á lotningu móðurinnar fyrir börnunum. Má ég segja yður sanna sögu af lotningu barnsins fyrir móður- inni ? Þessir ungu sveinar eru engir gjálífis úti- legumenn. Þeir eru sennilega að bíða, hvort ekki sjái þeir til ferða heilags Kláusar (Santa Claus). Einu sinni var lítill drengur, sem hét Eiríkur. Þegar hann var fjögurra ára gamall, var honum gefin mynd af engli, sem laut yfir barn í vöggu. Um kvöld- ið, þegar hann var háttaður og móðir hans laut niður að honum til þess að faðma hann að sér enn einu sinni og bjóða honum góðar nætur með kossi, lagði hann allt í einu þessa spurningu fyrir hana: „Heyrðu, mamma, tók Guð vængina þína af þér, af því að það var ekki pláss fyrir þá í litla húsinu okkar?“ Barnið hafði uppgötvað ósjálfrátt, að fyrir elskuna, sem móðir þess sýndi því, hlaut hún líka að vera engill, komin frá Guði. En það hélt, að englar hlytu ávallt að vera með vængi. Og barnið hafði rétt fyrir sér. Sérhver mannssál er engill frá Guði, sendur hingað niður í jarðlífið til að þroskast, fyrst hér og síðan stig af stigi, upp hinn mikla tilverustiga eilífð- arinnar, unz vér komumst upp á það sviðið, þar sem þeir dveljast, er náð hafa vaxtartakmarki Krists-fyllingarinn- ar. Þá vonum vér að vera orðnir honum líkir, sem var „ljómi Guðs dýrðar og ímynd veru hans“. Þessa von vekur jólabarnið þér. „Hvílíkt djúp ríkdóms og speki og þekkingar Guðs ! Hversu órannsakandi dómar hans og órekjandi vegir hans!“ Árin og eilífðin, bls. 379—387. Eining óskar öllum lesendum sínum þess, að hátíðin, sem nú nálgast, verði þeim í sannleika GLEÐILEG JÓL.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.