Eining - 01.12.1956, Side 5
EINING
5
Pétur Oftftesen
alþm. og óðals-
bóndi á Ytra Hólmi á Akranesi, átti 40
ára þingmannsafmæli 23. okt. s. 1. Var
hann þann dag 1916 kjörinn þingmað-
ur Borgfirðinga og hefur æ verið endur-
kjörinn siíðan, Hafa Borgfirðing"ar og
allir landsmenn haft mikla sæmd af
þingmennsku hans. Er hann sá íslend-
ingur, er flest þing hefur setið allra
landsmanna, bæði fyrr og síðar, að
minnsta kosti síðan 1845. — Mér er
sagt, að herra forsetinn hafi boðið Al-
þingi þennan þingafmælisdag Péturs
Ottesen til Bessastaða, þess manns, er
bezt hefur barizt allra þingmanna síð-
astliðin 111 ár fyrir bindindi lands-
manna.
Vér templarar og aðrir bindindis-
menn hyllum bróður Pétur á þessum
merku tímamótum í þingævi hans. Senn
hefur hann setið full fimmtíu þing.
Guð blessi hinn fertuga þingmann,
konu hans, börn og barnabörn og
áhugamál hana !____________T-
Á þetta eftir að rætast?
,,Á þeim degi munu þessir þrír taka
saman: fsrael, Egiptaland og Assúr og
vera blessun á jörðinni miðri; því að
drottinn hersveitanna blessar þá og seg-
ir: Blessuð sé þjóð mín Egiptar, verkið
handa minna Assúr og arfleifð mín
ísrael.“ — Jesaja 19, 24, 25.
Vill nokkur taka að sér að senda
Egiptum, ísrael og Arabaríkjunum
þenna huggunarríka spádóm? Getum
við trúað því þessa dagana, að þessir
þrír aðilar eigi eftir að standa saman
sem bræður og vera blessun á jörðinni
miðri?
Heimsviðburðirnir hljóta að skyggja
mjög á jólagleði okkar allra. Bræður
okkar eru kúgaðir og kvaldir, en kross
mannkynsins mun í fylling tínians verða
þjóðunum himnastígi.
Hjörftur Hansson
kaupmaður
Um leinn dáðan og elskaðan guð-
fræðikennara í Ameríku, Phillip Brooks,
var sagt, að þótt veðrið væri drunga-
legt, yrði allt ljómandi bjart, er hann
kom gangandi eftir götunni. Slík áhrif
hafði hann á hugi manna.
Mér fannst ævinlega glaðna til í um-
hverfinu, er ég kom auga á Hjört Hans-
son á götunni. Hann var maður, sem
auðvelt var að láta sér þykja vænt um,
en nú ætla ég að spara mér öll frekari
orð um þenna vin okkar og reglubróð-
ir. Ég bað þann mann, sem ég vissi, að
einna bezt mundi gera það, að skrifa í
Einingu um Hjört. Sá ágæti maður,
Erlendur Ó. Pétursson, gaf mér þá leyfi
til að nota að öllu eða einhverju leyti
minningargrein, er hann hafði skrifað
í Morgunblaðið 5. okt. sl. Hún fer hér
á eftir. P. S.
EINN af þekktustu borgurum Reykja-
víkur, Hjörtur Hansson, kaupmaður,
lézt hinn 1. október í Landakotsspítala
eftir uppskurð.
Hjörtur var fæddur í Reykjavík 24.
ágúst 1883, sonur Hans Adolps
Guðmundssonar og Helgu Hjartardótt-
ur frá Gufunesi.
Nam Hjörtur pr'antiðn í Reykjavík
og stundaði hana til ársins 1902, en þá
hóf hann verzlunarstörf við hina kunnu
Brydesverzlun hér í bæ og var deildar-
stjóri þar frá 1908 til ársins 1914. Eft-
ir það gegndi hann ýmsum verzlunar-
störfum og frá 1923 rak hann sjálfur
umboðs- og heildsölu hér í bæ.
Við, hinir eldri Reykvíkingar, mun-
um vel eftir hinum unga og glæsilega
verzlunarmanni við Brydes-verzlun, sem
með kurteisi og vinsamlegu viðmóti
hændi marga viðskiptavini að verzlun-
inni. Má með sanni segja ,að Hjörtur
var verzlunarmaður af lífi og sál. Einnig
vöktu mikla a t h y g 1 i gluggasýningar
verzlunarinnar, sem Hjörtur kom svo
smekklega fyrir.
En Hjörtur Hansson var meira en
verzlunarmaður, hann var einnig mjög
félagslyndur, og sjaldan leið honum
betur en í góðra vina hópi, þar sem
hann oft var fremstur í flokki að vinna
að framgangi góðra málefna. Innan
verzlunarstéttarinnar naut hann mikils
trausts og vinsælda, enda var starf hans
í hennar þágu bæði langt og mikið.
Hjörtur var í fjölda mörg ár í stjórn
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og
formaður þess um nokkurra ára skeið.
Var kjörinn heiðursfélagi þess að loknu
miklu og farsælu starfi.
Ég átti langt og mikið samstarf með
f
Hirti í Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur og á frá því starfi margar kærar
minningar. En minnisátæðasit dr mér
starf hans í gamla daga við jólatrés-
skemmtanir félagsins, sem haldnar voru
fyrir boðsbörn félagsmainna, þ. e. a. s.
börn, sem ekki áttu kost á slíkri skemmt-
un í þá daga. Þá kom bezt fram hinn
mikli kærleikur hans til allra og ánægj-
an í því að geta glatt aðra.
En það voru mörg önnur mál en
verzlunarstéttarinnar, sem Hjörtur hafði
áhuga á. Hann var einn af stofnendum
hins ágæta félagsskapar K. F. U. M.
í Reykjavík. I stjóm Dýraverndunar-
félags íslands var hann frá 1930 og til
dauðadags. Hann vann því afarmikið
starf fyrir þennan göfuga félagsskap.
Það á vel við hann eins og skáldið Þ.
E. sagði um annan merkan mann: ,,Það
er víst, ef dýrin mættu mæla, þá mundi
verða blessað nafnið þitt“. Hjörtur var
einn af stofnendum Náttúrulækninga-
félags Islands og í stjórn þess frá byrj-
un. Hafði hann mikinn áhuga á fram-
gangi þess félagsskapar. Hann var fram-
kvæmdastjóri hinnar alm. fjársöfnunar-
nefndar Hallgrímskirkju í Reykjavík frá
byrjun 1941. Gerðist templar 1927 og
gengdi m ö r g u m trúnaðarstörfum í
Í.O.G.T. Starí hans. innan reglunnar
var unnið af sama eldmóði og krafti,
sem einkenndi hann alla tíð, og var
bindindismálið honum hjartans mál.
Þá skal að lokum getið þess félags-
skapar, sem hann hin síðari árin tók
svo mikinn þátt í, og er það Reykvík-
ingafélagið. Hann var meðal stofnenda
þess og í stjórn þess frá upphafi og nú
síðast framkvæmdastjóri þess.
Hjörtur Hansson var sannur Reyk-
víkingur og átti heima óslitið alla tíð í
fæðingarbæ sínum. Honum var þvi mikil
ánægja í að starfa í Reykjavíkingafélag-
inu, þar sem komu saman öðru hverju
hinir eldri Reykvíkingar til að njóta
sameiginlegrar skemmtunar og minnast