Eining - 01.12.1956, Síða 10

Eining - 01.12.1956, Síða 10
10 EINING Jólavísur Þrælar þurfa ekki leiðtoga Jólin kveikja Ijós hjá lýð og Ijós í hjörtum manna. Þau eru hátí'S Herrans blíS, og hátíð smœlingjanna. Þótt fceri vetur frost og hríð, svo fjúki mjög í skjólin, og margt í heimi hrelli lýð, er hlýtt og bjart um jólin. Þótt heimskar þjóðir heyji síríð, og heimi dyljist sólin, þá fcerir Kristur fögnuð lýð og frið um blessuð jólin. Og allir þeir, sem eru í þröng, með ónóg húsaskjólin, og börn, sem einatt eru svöng, fá alltaf gott um jólin. Þótt ungum lagt sé ok á háls, og einatt þreyti skólinn, þá eru börnin frí og frjáls sem fugl um blessuð jólin. Það öllum þykir yndislegt, þá aftur hcekkar sólin. Það yrði dauft og ömurlegt, ef aldrei kcemu jólin. Pétur Sigurðsson. Sjúkdómseinkenni þjóðfélagsins Þegar sjúklingur kemur til læknis, spyr læknirinn um eitt og annað og athugar sjúkdómseinkenni. Þannig má og rannsaka heilbrigði þjóðfélags. Hvað segjum við t. d. um það, að á þessum árum, sem flestir virðast hafa föng á að kaupa næstum hvað sem er, þarft og óþarft, lúksus bíla, lúksusíbúð- ir og alls konar munað, þá linnir aldrei á vissum tíma ársins lögtakshótunum frá bæjarstjórnum eða skattheimtu- mönnum. Þessar tilkynningar flytur út- varpið hvað eftir annað frá ýmsum opinberum aðilum. Áreiðanlega hafa margir þeirra, sem tregðast við að greiða gjöld sín, miklu hærri tekjur en hinir, sem ævinlega standa í skilum, án eftirgangsmuna. Um hvað vitnar sviksemi, óorðheldni, tregða á að greiða skuldir sínar, sé þess nokkur kostur, og fl. líkt þessu, annað en menningarskort. Það, sem við köll- um menningu, á oft alls ekki skilið að heita það. Það er aðeins villandi útvort- is gljái, sem reynt er að breiða yfir fúann hið innra. En sá fúi stofnar hverju þjóðfélagi í hættu. Skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldar- innar var mér gefin bók, sem lieitir Slaves need no Leaders — Þrælar þurfa ekki leið- toga. Ég gat ekki stillt mig um að skrifa alllanga grein um þessa athyglisverðu bók. Góðkunningi minn falaði greinina og átti hún að birtast í tímariti, sem var í uppsigl- ingu, en sigldi ekki lengi. Greinin lá svo hjá þessum manni mörg ár og liefur nú einnig legið hjá mér góða stund. Til þess að hafa ekki unnið verkið til ónýtis læt ég greinina nú koma fyrir almennings sjónir og tel, að enn hafi hún að inestu leyti sitt upprunalega gildi. P. S. Bókin fjallar aðallega um uppeldi og skólamál margra þjóða. Hún er þó ekki nein veruleg kennslubók í þessum efnum. Hún er mjög víðtækt yfirlit og skilgrein- ing á uppeldismálum þjóðanna, samhengi skólamenntunar, uppeldismála, stjórnarfars, þjóðskipulags og friðsamlegrar sambúðar þjóðanna. Og þótt höfundurinn segi það ekki sjálfur með berum orðum, gæti lesar- inn auðveldlega hugsað sem svo, að það væri skólum og kirkjum allra menningarlanda lítill sómi, eftir margra alda sérstöðu í uppeldi þjóðanna, að hafa ekki megnað að skapa alþjóðagóðvild, samhyggð og sam- starf, og koma þannig í veg fyrir viðskipta- stríð, fjármálaspillingu, rangsleitni í iðn- aði, atvinnu og félagslífi og að síðustu hin- ar blóðugu og hryllilegu styrjaldir. Höfundurinn, Walter M. Kotschnig er prófessor í samanburðar uppeldisfræðum við einn æðri skóla í Ameríku. Hann starf- aði 8 ár í Gefn, sem formaður alþjóða stúdentahreyfingarinnar — The Inter- national Student Service, og kynnti sér þá mjög ýtarlega skólakerfi og uppeldis- aðferðir þjóðanna víðs vegar um heim. Á síðari stríðsárunum var hann í nefnd, sem átti að semja tillögur um ýmsar aðgerðir að stríðinu loknu, og er bókin að nokkru leyti innlegg hans í það vandamál. Hann er einnig formaður undirnefndar, sem hef- ur til rannsóknar og meðferðar alþjóða- uppeldismál og viðreisnarstarfið í stríðs- löndunum. Bókin er því rituð af mikilli þekkingu og viðkynningu við margar þjóð- ir, og virðist skrifuð af sanngirni, fullkom- inni gætni, en þó djörfung og góðum skiln- ingi. Væri gaman að geta gert henni hér nokkur sk.il, en þess verður þó lítill kostur. Þess skal þó getið þeirra vegna, er kynnu að ná í bókina, að hún er ekki lesmál, sem hægt er að gleypa í sig eins og skáldsögu, en hún er hvorki torskilin né óaðgengileg. Höfundurinn kemst ekki í uppnám, er hann ræðir um Þýzkaland eða Rússland, en fjallar um mál hverrar þjóðar af stillingu og sjáanlega þeirri þekkingu, sem ævinlega útilokar blint ofstæki. í fyrsta hluta bók- arinnar. á 62 blaðsíðum, tekur hann til með- ferðar menningarástand og skólamál þjóð- anna á árunum milli heimsstyrjaldanna. Hann bendir til dæmis á, hvernig hið góða og vel meinaða getur oft leitt til hins skað- lega. Hann fer á einum stað með orð eftir frakkneskan uppeldisfræðing, sem eru á þessa leið: „Menningin þarf fyrst og fremst að vera sannleiksleit vegna sannleikans sjálfs. Þetta útheimtar sérstaklega hina granavoru íhygli, sem býr manninum fullkomið frjáls- ræði, þá gagnrýnandi og grandvöru íhygli, sem er manninum sjálfum vörn gegn allri trúgirni: hinni vitsmunalegu trúgirní, er kallar sig vísindi, hinni andlegu og trúar- legu trúgirni, sem er hjátrú, þeirri trú- girni, sem birtist í ofstæki.“ Þessi grandvai’a og gagnrýnandi afstaða til allra mála, getur þó orðið um of, til þess að hún geti verið hagkvæm og notadrjúg mannkyni á núverandi þroskastigi. „Ekki aðeins gerir hún allt, sem gildi hefur. af- stæðiskennt, heldur hættir henni við að lenda að síðustu í eins konar trúgirni, er fóstrað getur sterka trú á hugsjónir og hugmyndir, sem eru fjarlægar öllum þorra manna, þótt hún hafni öllu hinu nærtæk- asta. Og slík trúgirni getur orðið hinum róttæka og krítiska þeim mun hjartfólgn- ari, sem hún æsir menn meir til andstöðu. Hann hugsar um það eitt að fullnægja hinni meðfæddu öryggisþrá sinni, þótt hann með slíku æsi og reiti samborgara til reiði. Það er t.d. ekki til trúgirni á hærra stigi, en trúgirni hins ameríska kommunista, sem gagnrýnir og fyrirlítur allar erfðavenjur Ameríkumanna." Hinn bezti uppeldisárangur. Þessar setningar ber ekki að taka sem sönnun þess, að höfundur bókarinnar legg- ist fremur gegn vinstri öflum en hægri. Hann bendir á hversu rétthá sem gagnrýni kunni að vera, og frelsis og framfarahug- urinn mikill, megi þjóðir þó aldrei kasta frá sér hinni áunnu reynslu og þeim full- reyndu uppeldismeðulum, sem vel hafi gef- izt á öllum öldum. Höfundurinn er ekki Englendingur, en viðvíkjandi skapgerðar- rækt og nytsemi hins sannprófaða menn- ingararfs hverrar þjóðar, minnir hann á það sem Tomas Arnold sagði: ,.að hinn hreinræktaði enski heiðursmaður, kristi- lega sinnaður, karlmannlegur og upplýstur, væri sú lofsverðasta manntegund, sem nokkur þjóð hefði fóstrað.“ Við þetta bæt- ir dr. Kotschnig því, að „allt fram til þessa tíma hafi slíkir menn, menntaðir í Oxford og Cambridge, verið undantekningarlaust forustumennirnir í stjórnmálalífi Englend- inga.“ Sennilega er það slíku uppeldi og slík- um menningararf að þakka, að enska þjóð- in hefur siglt fleygi sínu örugglega þar sem aðrar þjóðir hafa hleypt í strand, þjáðst í byltingum og gagnbyltingum. Uppeldismál Þjóðverja og nazisminn. Dr. Kotschnig fjölyrðir um Þjóðverja, skólamál þeirra, eðlisfar og þjóðareinkenni,

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.