Eining - 01.12.1956, Qupperneq 11

Eining - 01.12.1956, Qupperneq 11
EINING 11 og er skilgreining hans í þessu allítarleg. Nokkru fyrir valdatöku Hitlers gerist ýmis- legt markvert í lífi Þýsku þjóðarinnar. Þar er til dæmis ungt og veikburða lýðveldi að vaxa upp og reyna að ná fullum þroska, en einmitt sumir kostir lýðveldisins, þess frjálslega fyrirkomulags, verður til þess að veikja það og búa því jafnvel banaráð. Weimarstjórnarskráin mælir svo fyrir í 148. grein: „að æðsta hlutverk hverrar menntastofnunar verði að vera siðgæðis- uppeldið fyrst og fremst, að rækta starfs- hæfni og getu hvers einasta manns, hinn alþýðlega geðblæ, og siðast en ekki sízt hina þjóðlegu þýzku skapgerð og þjóðlega samhyggð.“ „En áður en hinar fyrirhuguðu framfar- ir lýðveldisins í menntamálum þjóðarinnar gátu fest rætur,“ segir bókarhöfundur „komst Hitler til valda.“ Eitt af mörgu, sem flýtti fyrir hruni hins þýzka lýðveldis og valdatöku Hitlers, var einmitt þróunin í uppeldis- og skóla- málum. Allir skólar stóðu mönnum nú opn- ari en áður, jafnt rikum sem fátækum. háum og lágum. Aðsóknin varð geysimikil og hinum lærðu mönnum fjölgaði ótt, þó ekki fyrst og fremst í hinum hagnýtu fræðum. Kotschnig segir að um 1932 muni hafa verið um 50 til 60 þúsundir lærðra manna í Þýzkalandi atvinnulausir. Flestir voru þessir menn nýbakaðir úr hinum æðri menntastofnunum þjóðarinnar. Hann ásak- ar þýzka lýðveldið fyrir það glapræði, að hafa vanrækt þá breytingu og nýsköpun á skólakerfinu, sem orðið gat því hagkvæm- ast og tryggt tilveru þess bezt, um leið og það greiddi götu undirstéttanna til skólamenntunar. Hér skeður nokkuð nýtt og furðulegt í lífi þýzku þjóðarinnar. „Hin æðri menntun — háskólamenntun, er allt í einu orðin orsök atvinnuleysis, í stað þess að vera opin leið til efnalegs vel- gengis og sérstöðu í þjóðfélaginu. Þetta varð hinu menningarlega starfi niðurlæg- ing, og mönnum sár vonbrigði, ekki sízt hinum lægri hluta miðstéttanna, sem höfðu gert sér miklar vonir um framtíð lærðra og menntaðra barna sinna. Störf slíkra manna voru ekki aðeins illa launuð, en staða þeirra rýrnaði einnig í áliti. Margir þessara manna, sem þrátt fyrir menntun sína, fengu nú ekki umflúið sult og seyru, misstu trú á framtíðinni, köstuðu frá sér hug- myndinni um hina farsælu, þjóðlegu menn- ingarþróun og gerðust sóknharðir liðsmenn í byltingaráformum nazistanna.“ Allt miðaði að því, að greiða Hitler braut til valda. Atvinnulausir menntamenn höt- uðust við þjóðskipulag lýðveldisins, sem ekki hafði látið draum þeirra rætast. Og nú gerðist það, sem prófessor Kotschnig segir að sé ef til vill einsdæmi í allri sög- unni, að stórveldi taki að ota fram til for- ustu mjög einkennilega gerðum og saman- settum mönnum. Þessi veikleikamerki, sem komið hafi í ljós hjá hinu þýzka lýðveldi, segir bókarhöfundur, að séu yfirleitt aug- ljós víðs vegar í hinum „vestlæga heimi.“ Eitthvað gott hafi auðvitað verið í nazism- anum og hafi hann verið að nokkru leyti „uppreisn gegn kaldri, óþegnlegri, eigin- gjarnri og öfgafullri einstaklingshyggju, gegn rótlausum og losaralegum ,.intellectualisma,“ sem nagað hafi í sund- ur, með sínum eyðileggjandi áhrifum, öll tengzl við hvers konar erfðavenjur." Þetta er vissulega lærdómsríkt. Öfgar skapa öfgar, rótleysið og ræktarleysið, þótt iðkað sé í nafni lærdóms og gáfna, hefnir sín. Yfir kveifarháttinn kemur harðneskj- an, yfir agaleysið svipan, yfir óstjórn of- stjórn, yfir stefnulaust múgræði öfgafull harðstjórn. Kotschnig hefur eftir Hitler orð á þessa leið: „Kenning mín er hörð. Veikleikann verð- ur að berja út úr þeim. Heimurinn mun hopa á hæli fyrir þeim æskulýð, sem mín Ordensburgen mun ala upp. Það sem ég vil fá, er æskulýður, sem gengur að verki með harðneskju, er kjarkmikill, ráðríkur og óvæginn. Þannig þarf æskulýðurinn að vera. Hann má ekki hirða neitt um þján- ingu og sársauka. ekki ala með sér neina • viðkvæmni eða veikleika. Ég þrái að sjá enn einu sinni leiftra í augum æskunnar eldmóð og sjálfræði rándýrsins. Sterkir og vel gerðir verða hinir ungu menn mínir að vera. Þeir verða að vera vel þjálfaðir lýkamlega, íþróttaæska. Þannig skal ég afmá þúsund ára gamla niðurlægingu mannkynsins. Þá mun ég hafa í hendi mér hið hreina, göfuga og útvalda lið til þess að framkvæma hina fyrirhuguðu nýsköpun. Ég vil ekki hafa neitt „intellectualt" upp- eldi. Þekkingin er eyðileggjandi fyrir þann æskulýð, sem ég vil fá. Hann skal læra það eitt, sem örvar ímyndunarafl hans. Og fyrst og fremst þarf hann að læra sjálfstjórn. Með róttækri þjálfun skal þeim takast að yfirbuga allan ótta við dauðann. Það er hetjumerki hins geiglausa æskumanns. Þannig rís upp hinn alfrjálsi maður, mað- urinn sem er kjarni og kraftur mannkyns- ins, hinn skapandi maður, guðmaðurinn. I minni Ordensburgen skal hinn sjálfráði guðmaður gnæfa hátt sem mikilfenglegt verðugt tilbeiðslutákn . ... “ Slíkar kenningar geta auðveldlega risið upp í heimi, sem orðinn er að bráð blind- andi pólitiskra hvirfilvinda, sáldrepandi efnishyggju og matarpólitíkur, stefnulausr- ar, krítískrar en máttvana heimspeki, og loðmullulegra, hikandi trúarkenninga. Þeg- ar sá svíkst um að segja rétt fyrir verk- um, sem á að gera það. og hefur aðstöðu til þess, getur einhver, sem ekki kann það, en vantar ekki viljann, ráðist í það óboð- inn. Lönd, sem loga stöðugt í æsingum, verkföllum og kaupdeilum, og ala sér við brjóst rangsleitni, viðskiptaspillingu, svindl og fjárglæfra, búa jafnan við svo lélega og illa starfhæfa stjórn, eða óstjórn, að ekkert er eðlilegra, en að „ofbeldið rísi upp sem vöndur á ranglætið.“ að ofstjórn komi yfir óstjórn, harka yfir agaleysið, léttúð, svall og sællífi, og grimmd yfir andvaraleysi og / spillingu. Sá er glæpamaður, sem kveikir í húsinu, en hinn, sem svíkst um að vaka, er líka sekur. Uppeldismál ítala. og fasisminn. Á blaðsíðu 35 í umræddri bók, segir höf- undurinn : „Á þeim árum er stjórnmálaleiðtogar Englendinga og Frakka leyfðu sér enn að ganga til veizluhalda og fagnaðar með Mussolini urðu þeir (ítalskir menntafröm- uðir) að líða fyrir gott málefni, fyrir hið fagra, sanna og góða . . . Líkt og veikleikamerkin í fræðslukerfi Þjóðverja á árunum fyrir valdatöku Hitlers, voru augljós og komu hinni villi- mannlegu byltingu nazismans að góðu haldi. var fræðslukerfi og uppeldi ítala á árunum fyrir sigurför nazismans engan veginn sá kraftur í þjóðfélaginu, sem tryggir velfarnað lýðveldisins. Sökum skipulagsleysis voru stór svæði afrækt. sérstaklega á Suður-Ítalíu. Allt fram að ár- unum 1921 voru 30 af hundraði íbúanna hvorki læsir né skrifandi. Kennarar voru oft illa menntaðir og þeim var illa launað.“ Tómt hús er oftast til leigu. Það sem einn afrækir, getur annar fært sér í nyt. Fasista-hreyfingin á Ítalíu átti greiðan að- gang að þeim æskulýð, sem uppeldiskraft- ar þjóðarinnar höfðu afrækt á ýmsan hátt. Auðvitað var æskulýðshreyfingin hafin í nafni iþrótta og menningar, en hún var þó í þjónustu hernaðarandans. Allsherjar æskulýðssamtök mynduðust, er hétu Opera Nazionale Balilla, en fengu þó síðar nafnið Giuventú Italiana del Littorio. „Þessi sam- tök voru talin mjög mikilvæg og betur fall- in en skólarnir til þess að æfa unga her- menn. Árið 1929 voru þau gerð að einum þætti í fræðslukerfi þjóðarinnar og sett undir menntamálaráðuneytið. Hver einasti skóli landsins varð þannig eins konar undir- deild í facistahreyfingunni, og í skólastof- urnar voru festar upp setningar eftir for- ingjann, eins og þessar: „Ríkið er fylling hvers einstaklingslífs." „Trúið, hlýðið, berjist“.“ Árið 1936 voru fimm milljónir félaga í þessari æskulýðshreyfingu. Henni þjónuðu 40,000 launaðir embættismenn, 2,000 íþróttaþjálfarar, launaðir að nokkru leyti, 14,000 embættismenn í þágu hernaðarins, 8,000 í þjónustu heilbrigðismála og 1600 prestar, auðvitað þeirrar trúar, er hentaði facistahreyfingunni.. Kotschnig bendir á, að þrátt fyrir allt, sem fasistahreyfingin gerði til þess að leggja undir sig fræðslu- og uppeldismála- kerfi landsins og ná tökum á hugum og sál- um manna, hafi Mussolini samt misheppn- ast. ítalir hafi að vísu lagt út í stríð og barizt, en aldrei barizt af heilum hug og hjarta. Svo að „jafnvel sigrandi var Musso- lini að tapa.“ , Uppeldismál Rússa eftir byltinguna. Menningarástand Rússlands verður að ræða af mikilli varkórni, scgir Kotschnig. „Því að saga hinna uppeldislegu og menn- ingarlegu átaka í Rússlandi í seinni tíð, er um leið saga einnar þeirrar miklifengleg- ustu byltingar, sem mannkynssagan grein- ir . . . Byltingin hefur skipulagt mennta- og uppeldismál þjóðarinnar frá rótum. Þar er hið gamla gersamlega afmáð . . . Gersamlega nýtt fræðslu- og uppeldismála- kerfi hefur verið byggt á aðeins rúmum tveimur áratugum, sem ber merki Rúss- lands útvöldu manna og átrúnaðar, allt frá Marx til Lenins og Stalins. Það var skipu- lagt þrátt fyrir borgarastyrjöld hungurs- neyð og hreinsanir. Og það náði til 60

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.