Eining - 01.12.1956, Síða 14
14
EINING
I ióftspor Krisfts
Ég þrái mest, aS feta í fótspor þín,
en finn hve bilar veika trúin mín.
Til sigurs leiða sé ég hvert þitt spor.
Ég sekk í djúpfó og mig brestur þor.
Kristur Jesús, kraftinn veittu mér,
minn kross að bera og að fylgja þér.
A hcettuleiSum hrópa ég til þín,
þú hjálpin stœrst og líknarhöndin mín.
AS líkjast þinni fögru fyrirmynd,
aS fremja aldrei rangindi og synd,
er hjartans þrá og heitust bœnin mín,
þar hjálpar aSeins blessuS návist þín.
Lát áhrif heilags anda mild og sterk,
á anda mínum gera kraftaverk,
og hreinsa allt, sem óhreint finnst
hjá mér,
svo alt mitt líf sé vígt og helgaS þér.
Pétur Sigurðsson.
-------ooOoo---------
Eiga bílslyssin að
ftaka við af sjóslys-
ftiiftftim?
Oldum saman varð þjóðin að standa
hljóð og harmþrungin andspænis þeim
miklu mannfórnum, er sjósóknin hafði
í för með sér. Gegn þessum voða hafa
slysavarnir verið auknar ár frá ári og
borið mikinn og blessunarríkan árang-
ur.
En á sama tíma aukast stöðugt bana-
slysin í umferðinni á þurru landi. Þar
eru ekki að verki hin trylltu og frum-
stæðu náttúruöfl, heldur maðurinn, sem
hefur þó bæði vit og dómgreind til að
stilla athæfi sínu í hóf.
Samkvæmt skýrslu lögreglunnar hafa
orðið 6 dauðaslys í umferðinni fyrstu 9
mánuði ársins 1956, en á 5 árum hafa
23 beðið ba.na í Reykjavík. 1300
árekstrar urðu í bænum fyrstu 9 mánuði
ársins, en 1060 á sama tíma árið áður.
Arekstra- og umferðarslysafjöldinn,
sem er orðinn ískyggilegur, hefur í för
með sér, auk hinna átakanlegu dauða-
slysa,, Iimlestingar á fjölda manna og
gífurlegt eignatjón.
Nú þarf lögreglan að fara að láta
okkur í té sundurliðaða skýrslu um
aldursflokkana, er í slysunum lenda. Á
hvaða aldri eru þeir menn ? Eru það
karlar eða konur ? Hve oft er gangandi
fólk orsökin ? Eru vörubílar skæðari en
önnurí bílategfund ? Og hvað svo um
vélhjólin ? Nauðsynlegt er að fá yfirlit
yfir þetta.
---oOo-----
Konur beftri
bílsftjórar
Ekki er laust við, að almenningi sé
gefið það í skyn með eins konar glettni,
að minsta kosti hér á landi, að konur
séu síður hæfir bílstjórar en karlmenn.
Nú vill svo til, að frakkneskt blað birt-
ir þá fregn, að tryggingafélög gefi 20%
trygginga-afslátt á þeim bílum, sem
konur stjórna eingöngu. Það verður að
vera sannanlegt, að enginn karlmaður
aki þeim. Hvernig lízt ykkur á, borgin-
mannlegu bílstjórar, sem hafið haft það
til, að henda gaman að akstri kvenna?
Gerið svo vel að taka ofan fyrir þeim
og biðja afsökunar. Rannsókn hefur
sýnt það, og er það ekkert vafamál, að
minsta kosti í Ameríku eru konur tald-
ar öruggari ökumenn en karlmennirnir.
Köllun konunnar hefur jafnan verið öllu
fremur sú, að bjarga mannslífum, en
karlmenn hafa því miður oft stundað
mjög að glata þeim. Þar kemur og
kæruleysi og glannaháttur til greina.
---------------ooOoo--------
Frægur leikari lék eitt sinn Rikhard
þriðja og þrumaði hina frægu setningu:
— Hest ! Heilt kongsríki fyrir hest !
Þá heyrðist rödd úr efstu sætunum:
Má það ekki alveg eins vel vera asni ?
Leikarinn svaraði hiklaust: — Jú,
kom þú bara.
--------ooOoo-------
F r ú i n spyr: — Hvað er verið að
leika ?
Vörðurinn: — Níundu hljóm-
kviðuna.
F r ú i n : — Kem ég þá svona seint?
-------------ooOoo--------
Ef þér hættið að reykja, sagði lækn-
irinn, getið þér lifað enn 30 ár.
En álítur læknirinn ekki, að það sé
of seint fyrir mig að hætta ? —
Aldrei of seint. —
Ágætt, þá reyki ég nokkur ár enn.
Hembygden.
-------ooOoo--------
B. F. Ö. deild á Akureyri
Um mánaðamótin október, nóvember var
stofnuð á Akureyri deild í Bindindisfélagi
ökumanna. Stofnendur voru 30. Formaður
deildarinnar var kjörinn Ragnar Steinbergs-
son, lögfræðingur. Aðrar fregnir liefur blað-
ið ekki enn af þessari myndarlegu viðbót í
þenna unga félagsskap, en veit að deildin
cr vel mönnuð og óskar henni allra heilla.
Lögreglan í Japan.
lét sér liugkvæmast snjallræði, sem kvað
liafa gefizt prýðilega. Hún bauð 200 dóm-
feldum drykkjumönnum til tedrykkju og
lét þá hlusta á ræðustúfa, sein skólabörn
fluttu um viðbjóð þeirra á drykkjumönnum.
----------------ooOoo---------
/ Svisslandi.
eru fjögur ávaxtatré á hvert mansbarn
í landinu. Alls eru ávaxtatrén 20 milljónir.
Af hverjum sex.
áfengissjúklingum í Bandaríkjunum er
einn kvenmaður, segir prófessor Jellinek,
áfengismálaráðunautur heilbrigðisstofnunar
sameinuðu þjóðanna.
Svíviröilegasta vopniö.
Þjóðir liafa leikið það stundum, að reyna
að veikja andstöðuþjóð með því að iðka
þar leynilega eiturlyfjasölu. Formaður eitur-
lyfjavarna í Bandaríkjunum, Harry J. Ansl-
inger, telur, að slík leynisala eiturlyfja frá
kommunistaveldi Kínverja til Bandaríkj-
anna nemi árlega 80 milljónum dollara. Er
þetta eitt vitni enn um siðferði þjóða.
--------ooOoo---------
Þetta hefur unnizt.
Til eru skýrslur, er sýna, að um síðustu
aldamót voru árlegar kærur fyrir ölvun á
almanna færi og ölvunarbrot í Bretlandi
200,000, en þá voru íbúarnir 33 milljónir.
Nú eru hinar árlegu kærur fyrir hið sama
aðeins 50,000, en íbúafjöldinn þó 44
milljónir.
Menn gleyma því víst, hvernig áfengis-
neyzlan var áður fyrr, er þeir til ófræging-
ar bindindisstarfinu fullyrða, að ekkert hafi
á unnizt. Á slíkt fleipur mega menn ekki
leggja trúnað. Bindindishreyfingin hefur í
samstarfi við almenna menningu unnið
mikla sigra.
/ Canada.
drukku menn áfenga drykki fyrir 869
milljónir dollara árið 1953, en 867 árið 1954.
Hófsemdarfélagið, sem kappsamlegast vann
að afnámi áfengisbannsins, hefur svikizt
illa um að rækta hófsemdina í landinu.
-----------------ooOoo---------
Áfengismál Svía
í merku fræðiriti •— Alkoholfrágan —
sem sænskir lærdómsmenn sjá um, eru ítar-
legar skýrslur um áfengismál Svía. Þar er
þess getið, að árið 1955 hafi áfengissalan
aukizt um 42% á síðasta fjórðungi ársins,
horið saman við þann ársfjórðung 1954.
Áfengisneyzla þjóðarinnar var 3,73 lítrar á
mann af 100% áfengi árið 1954, en steig í
4,09 árið 1955.
Heildaráfengissalan varð 1,539,000,000
sænskar krónur árið 1955, en var árið áður
1,357,000,000. Ölvunarafbrotum fjölgaði úr
40,980 í 49,127 meðal karlmanna, en þeim
fækkaði meðal kvenna.
--------ooOoo----------
Þeir kaupendur blaðsins, sem enn
hafa ekki greitt þenna árgang, ekki
t. d. sinnt póstkröfunum, sem þeim hafa
verið sendar, ættu að gefa blaðinu þá
jólagjöf að greiða þessa litlu skuld.
Eining reynir að standa í skilum við
kaupendur sína og ætlast til hins sama
af þeim.
mér að bera matinn upp. Þau fylgdust öll ofan, en er þau
komu upp aftur, var Hrafnhildur steinsofnuð.
Bergljót lét börnin fara heim í sitt hús, en var ein eftir á
bænum þar til Hrafnhildur vaknaði, og þá virtist hún vera
allhress. Hún náði sér nú furðu fljótt, en henni varð það
aldrei fullljóst, hvernig henni hafði liðið nóttina, sem Gunn-
hildur dó, og þær sem verið höfðu hjá henni, töldu réttast
að tala sem minnst um það við hana.
Daginn, sem Gunnhildur var jarðsungin, lét Hrafnhildur
skíra litla drenginn við kistu móður hans, áður en hún var
borin út úr bænum. Drenginn lét hún heita Gunnar. —
Framh.