Eining - 01.04.1957, Page 4
4
EINING
Frá áfengisvarnaráði
Samband bindindisfélaga í Finnlandi
heldur landsþing sitt 27.—28. apríl
n.k. í Helsingfors, og hefur það boðið
áfengisvarnaráði að senda fulltrúa á
þingið. Ráðið hefur þegið boðið og
kjörið Magnús Jónsson alþm. til farar-
innar.
-------ooOoo-------
Hátemplcir kemur hingað
til lands
Framkvæmdanefnd Stórstúku Islands
bauð hátemplar nokkru eftir nýár heim
á næsta stórstúkuþing. Skýrði hann frá,
að hann gæti komið síðara hluta júní-
mánaðar. Nú hefur stórstúkuþing verið
ákveðið 25.—28. júní í Reykjavík. Há-
templar mun koma með flugvél frá Kast-
rup að kvöldi 19. júní. Fyrir þingið
mun hann ferðast bæði norðanlands og
sunnan, og verður nánar sagt frá því
síðar. — Er það framkvæmdanefndinni
og öllum templurum í landinu mikil á-
nægja, að hátemplar skyldi þekkjast boð
vort, og væntum vér í alla staði ins
bezta af komu hans hingað til lands.
Hátemplar er sem kunnugt er yfirmað-
ur heimsreglu Góðtemplara. Sá sem
skipar það sæti nú er RUBEN WAGNS-
SON, landshöfðingi í Kalmar. Hann
hefur skipað öndvegi heimsreglunnar
10 ár (kjörinn 1947). Hann er maður
hálfsjötugur að aldri. — Einn hátempl-
ar hefur áður komið til Islands (Oscar
Olsson). Það var 1934.
-------ooOoo-------
Áfengisvarnaráð
hefur ráðið erindreka fyrir nokkru, Pét-
ur Björnsson, kaupm. á Siglufirði, Axel
Jónsson, sundlaugarvörð í Kópavogi, og
frú Guðlaugu Narfadóttur í Reykjavík.
Pétri er ætlað að starfa í Norðlendinga-
fjórðungi inum forna og í Múlasýslum
og Austur-Skaptafellssýslu. — Axel fær
verksvið í Vestur-Skaptafells-, Rangár-
valla- og Kjósarsýslum, og frú Guðlaug
í Gullbringusýslu. Auk þess mun hún
mæta á fundum kvenfélaga og kvenfé-
lagasambanda í landinu til þess að
greiða þar sem bezt fyrir bindindismál-
inu.
-------ooOoo---t---
Nýlega
er komin út ný reglugerð fyrir áfengis-
varnanefndir, staðfest 13. febrúar. Hef-
ur hún verið send öllum áfengisvarna-
nefndum með kennslukverinu „Ungur
nemur — gamall temur“.
Frumvarp til umferðalaga
liggur nú fyrir Alþingi. Sendi allsherjar-
nefnd efri deildar Alþingis áfengisvarna-
ráði frv. til umsagnar. Miðuðu bending-
ar ráðsins til Alþingis allar að því að
tryggja umferðina sem bezt með kröf-
um til þeirra, sem stjórna vélknúnum
ökutæjum, sér í lagi með banni gegn
áfengisneyzlu. — Frv. þetta er samið
af milliþinganefnd, óg áttu sæti í henni:
Sigurjón Sigurðsson, lögreglustjóri í
Reykjavík, Geir G. Zoéga, fv. vegamála-
stjóri, Benedikt Sigurjónsson, cand. jur.,
Theodór B. Líndal, próf. juris, og Sig-
urgeir Jónsson, bæjarfógeti í Kópavogi.
--------------ooOoo------
Þorsfeinn M. Jónsson
fyrrverandi skólastjóri á Akureyri, flutti
erindi fyrir kennurum og nemendum
gagnfræðaskólans í Keflavík í f. m., og
var inn bezti rómur gerr að máli hans.
Einnig flutti Þorsteinn fjögur erindi um
bindindismál í skólum á Akureyri 1.
febr. s.l. (í menntaskólanum, iðnskól-
anum, gagnfræðaskólanum og efsta
bekk barnaskólans).
■-----ooOoo-------
Stúkan Mínerva
I Reykjavík varð 40 ára 24. marz. sl. Hún
hefur haft það sér tíl ágætis, flestum góðtempl-
arastúkum fremur, að vera eins konar embætt-
isrnanna og lærðra manna stúka, bæði á æsku-
árum sínum og einnig nú á manndómsárunum.
Hún á því sína sögu, bæði þessa og annarra
liluta vegna, og verður hennar og afmælisins
nánar getið í næsta blaði.
því í té það, sem þeir vilja ráðstafa sem
hyggilegast af þessum fróðleik. Ýmis-
legt af því elsta, sem ritað hefur verið
hér á landi um bindindismál, er til í
safni þessu, einnig merk erlend söguleg
verk þess efnis, sum þeirra nú ófáanleg.
Lesstofa safnsins verður opin alla
þriðjudaga, klukkan 8—10 síðdegis, þó
aðeins þeim, sem eldri eru en 14 ára.
Þar geta þeir, sem hug hafa á að kynna
sér sem bezt allt um bindindis- og áfeng-
ismál, fundið nægan og margvíslegan
fróðleik, en í því augnamiði er m. a. efnt
til safnsins.
Þegar Guðm. G. Hagalín hafði lokið
máli sínu, tók stórtemplar, Brynleifur
Tobiasson, til máls og þakkaði sérstak-
lega Einari Björnssyni fyrir brautryðj-
andastarf hans í þágu safnsins. Einar
er vörður þess, en þriggjamanna stjóm
þess er: Guðmundur G. Hagalín, frá
Stórstúku íslands, Brynleifur Tobiasson,
frá Áfengisvarnaráði og Einar Björns-
son, frá Þingstúku Reykjavíkur.
Stofnun þessa bókasafns var aðkall-
andi þáttur í starfsemi bindindismanna
í landinu. Þeir munu vafalaust unna því
og sýna verðugan sóma.
Óskasftundir
Svo heitir ný ljáðabók, er kom út
eftir Kjartan Ólafsson seint á árinu
1956. Þetta er annað bindi, en fleiri
ljóðabækur hafa komið út eftir sama
höfund.
Á þessari öld atómkveðskapar og list-
spillingar í máli og myndum, verðum
við íslendingar að halda þá menn í
heiðri, er sýna þjóðlegri mennt og arfi
feðra vorra ræktarsemi. Á öllum liðnum
öldum hefur ljóðaform okkar verið þjóð-
inni unaðarauki. Það er hinn ómþíði
kliður ljóðformsins, sem nær til hjartna
okkar og tilfinninga, jafnvel þótt efnið
sé ekki eða hafi ævinlega verið gull í
goðheima sótt.
Kjartan Ólafsson misbýður ekki okk-
ar elskaða ljóðaformi. Ljóð hans eru
lipur, hlý og vel búin. Þau túlka fyrst
og fremst ást hans til lífsins, til móður-
moldar, náttúrufegurðar, menningar og
dyggða, góðra málefna og samborgar-
anna. Þar er haldið tryggð við það, sem
ekki má glatast, en þó fagnað farsælum
framfarasporum. Þar er ekkert logheitt
trúboð á tízkustefnur, er vilja snúa flík-
inni við og hafa ranghverfuna út, til
þess að vekja athygli og gera hugsun-
arlausan múg lipran í taumi. Ljóð Kjart-
ans eru öll í þágu hins notalega og far-
sæla lífs, ómur sálar, sem kann að
gleðjast við það góða, sem er, vona á
vöxt þess og stöðugt batnandi og fegurra
mannlíf, og umfram allt una þakklát við
gleðilindir lífsins.
Ræktarsemin er aldrei föðurlands-
laus. Kjartan elskar sína heimaborg. Eitt
stefið í ljóðinu Borgin mín er á þessa
leið:
Sem rós við landsins ljósa barm
þú ljómar borgin mín.
Og allt, sem fegurst fær mig glatt
ég finn við brjóstin þín.
Við götu þína, garða og tjörn,
við geislamerluð sund,
þinn yndisfaðmur mætir mér
í minninganna lund.