Eining - 01.04.1957, Side 9

Eining - 01.04.1957, Side 9
EINING 9 Meiri hlnti þjóðarinnar er mótfallinn vínveitingum í veizlum ríkisins Við bindindismenn erum sammála um, að áfengisveitingar hins opinbera séu hneyksli — að það sé fráleitt, að ríkið stuðli að aukinni áfengisneyzlu, hinum mesta bölvaldi þjóðfélagsins, með því að veita vín í veizlum sínum. Auk þess er það frekleg móðgun við þjóðfélagsþegnana, sem borga brúsann. Það eru fleiri en bindindismenn, sem eru mótfallnir þessum vínveitingum. Ef greitt væri atkvæði um það af atkvæð- isbærum þegnum þjóðfélagsins, hvort ríkið ætti að standa fyrir vínveitingum á kostnað borgaranna, er enginn vafi á því, að það yrði fellt. Sem sagt, minni hlutinn kúgar meiri hlutann í krafti valdhafanna og lætur ríkið veita áfengi og stuðla með því að aukinni áfengis- neyzlu með þjóðinni. Þetta er stað- reyndin. ,,Ef þið templarar tímið ekki að sjá af þeim fáu krónum, sem fara til slíkra vínkaupa, því að þær eru aðeins fáar á hvern gjaldanda, þá væri svo sem hægt að draga þær frá sköttum ykkar“, segja vínneytendur máske, ef rætt er um þessi mál. Hversu heimskuleg er ekki slík röksemdafærsla? Ef vínneytendur greiddu einir allan þann kostnað, sem ríkið verður fyrir beint og óbeint vegna áfengisneyzlu þeirra, svo sem í aukinni löggæzlu, fátækrahjálp, sjúkrahjálp — allt eignatjónið, sem áfengisneyzla veld- ur — að ekki sé talað um öll mann- tjónin — þá myndi þeim þykja djúpt sótt í vasa sína. En þótt fjárhagshlið málsins sé sleppt, þá fer ekki á milli mála, hve fáránlegt það er, að ríkið beiti sér á þenna hátt fyrir aukinni áfengisneyzlu. Ollum hugs- andi mönnum er ljóst, jafnt bindindis- mönnum sem öðrum, að ofnautn á- fengis er einn mesti bölvaldurinn í þjóð- félagi okkar. Auðvitað ættu mestu valda- menn þjóðarinnar á hverjum tíma að ganga á undan með góðu eftirdæmi. — Það höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það . . . Á síðastliðnu vori var samþykkt til- laga þess efnis á sameiginlegum fundi stúknanna Einingar og Sóleyjar í Reykjavík að skora á framkvæmdanefnd Stórstúkunnar að skrifa öllum frambjóð- endum við þingkosningarnar, sem fram- undan voru, og spyrja þá, hvort þeir vildu, ef þeir kæmust á þing, beita sér fyrir afnámi vínveitinga hins opinbera í veizlum sínum. Skyldi frambjóðanda jafnframt tilkynnt, að svar hans yrði birt opinberlega fyrir kosningar eða svarleysi hans ella. Ég hygg það hafa verið ætlun þeirra, er að tillögunni stóðu, að þessi svör yrðu birt rækilega — og ekki síður nöfn þeirra, sem ekki virtu bindindismenn svars — og þá jafn- framt í þeirra eigin stjórnmálablöðum sem í blöðum andstæðinga. Svo marga bindindismenn eigum við í hverjum stjórnmálaflokki, að það hefði verið hægt, ef nægilegur vilji var fyrir hendi. Hefði þetta verið gert og frambjóð- endum verið nægilega ljóst, að það yrði gert rækilega, er það skoðun mín, að hægt hefði verið að ganga á fund nægilega margra þingmanna, þegar þing kom saman, sem hefðu gefið nægi- lega jákvæð svör við umræddri spurn- ingu, til þess að hægt hefði verið að bera fram með árangri tillögu um af- nám áfengisveitinga af ríkisins hálfu. En þetta fór ekki á þann veg. Að vísu var frambjóðendum skrifað, en svör þeirra, sem bárust, voru hvorki birt í dagblöðunum né nöfn þeirra, sem ekki virtu spyrjendur svars.. Nú er það að vísu svo, að áminnst tillaga stúknanna kemur nokkuð seint fram, það var komið of nærri kosning- um, nema ef brugðizt hefði verið því snarlegar við. En hvers vegna var ekki frumkvæðið hjá framkvæmdanefndinni sjálfri og í tæka tíð? Eg er þeirrar skoðunar, að ef málið hefði verið tekið nógu föstum tökum og bindindismenn í hverjum stjórnmála- flokki virkjaðir til starfa, hefði árangur náðst.. Þar sem líta má á þessi orð mín sem gagnrýni á framkvæmdanefnd Stórstúk- unnar skal ég gera þá játningu, sem er sönn, að ég þekki ekki nöfn þeirra manna, sem eru í nefndinni. Hins veg- ar er það sannfæring mín, byggð á reynslu minni af Góðtemplarareglunni eftir tiltölulega stutta dvöl innan henn- ar, að þeir hljóti að vera velhugsandi afbragðs menn, sem hafi unnið bind- indishreyfingunni mikið gagn, mörgum sinnum meira gagn en ég. Annars væru þeir ekki í þessum ábyrgðarstöðum. Þrátt fyrir það leyfi ég mér að bera fram þessa gagnrýni og fullyrði, að hún er gerð af góðum hug. Gagnrýni, sem borin er fram í góðum hug, skaðar engan, hvorki þann, sem hún beinist að, né þann, sem ber hana fram. FriSjón Stefánsson. Þar verður líf og f jör Hið norræna æskulýðssamband góðtempl- ara heldur þing sitt þriðja hvert ár. Hið síðasta var í Örebro í Danmörku, en árið 1948 í Aalesund í Noregi. Bæði þau þing sátu fulltrúar frá íslandi. Að þessu sinni verður það í Osló, opnað 23. júní og fer þá á eftir mikill sumarsól- stöðufagnaður, sem er í raun og veru hátíð hjns heilaga Jóhannesar — St. Hans-fest. Þá er gaman að vera í Noregi. Bál eru kynt uppi á fjöllum og sumarsæla liggur í loft- inu. Gert er ráð fyrir að tvö til þrjú þúsund ungmenna frá Norðurlöndunum öllum komi til þingsins í Oslo, og mikið mun verða um dýrðir. Höfuðstaðurinn mun sýna þeim alla gestrisni. Ráðhúsið stendur þeim opið til þingsetningar og þingslita. Skemmtiferðir verða farnar og margt haft til uppbygg- ingar og ánægjuauka. Gætu ungmenni frá Islandi veitt sér að eyða þarna einhverju af sumarleyfi sínu, mundi það verða þeim mjnnisstætt. -------ooOoo-------- HvaSa œskumenn faka við? Þcssi spurning kemur oft í liuga minn, er ég fæ hréf frá ýmsum öldruðum hetjum á sviði bindindismálanna: Hverjir fylla sæti þeirra, er þeir falla frá? Hvar eru þeir ungu menn á meðal vor? Sæti þessj eru vandfyllt, því að þeir sem víkja úr þeim, sátu þau af mikilli sæmd. Bréf var t. d. að berast í dag til Eining- ar og ritstjórans, frá Jóni Engilbertssyni í Grindavík, öldungnum á níræðisaldri. Hann sendir hlaðjnu peninga. Þar er nú ekki ó- skilsemi. Fleiri slíka mætti nefna, án þeirra væri starfið kvalræði, því að til eru þeir, sem hregðast. Jón endar bréf sitt á þessari ferskeytlu: „Allir menn um alla jörð eru bræður, systur. Eiga að vera í einni lijörð og yfjrhirðir Kristur“. Eailcg hugsun. Þyrfti að verða allra. — Eining þakkar. P. S. --------ooOoo-------- Reynslan af áfengisútsölunni á Akureyri í janúarmán. 1957 Eins og kunnugt er, var útsala frá Áfeng- isverzlun ríkisins opnuð á ný á Akureyri í byrjun janúarmánaðar, samkvæmt atkvæða- greiðslu, er fór fram meðal bæjarhúa seint í síðastliðnum nóvembermánuði. Útsölunni var lokað í þrjú ár. ■—• Eftir skýrslu yfir- lögregluþjóns á Akureyri í blaðinu DEGI 13. fehr. voru 22 menn sektaðir fyrir ölvun á almannafæri í janúar 1957, en á sama tíma 1956 voru 8 sektaðir fyrir sama. Fjórir menn voru sviptir ökuleyfi fyrir ölvun í janúar 1957, en einn á sama tíma 1956. Vínsmygl komst einnig upp í janúar 1957. (Frá Áfengisvarnaráði). Feimin Feiminn ungur maður fylgdi ungri snót heim til hennar, en hún var einnig mjög feimin. Er hún kvaddi unga manninn, bað hún hann hlessaðan að hafa ekki orð á þessu við neinn. „Nei“, sagði ungi maðurinn. „Þú getur verið viss um, að ég blygðast mín sjálfur fyrir þetta engu síður en þú“.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.