Eining - 01.04.1957, Side 11

Eining - 01.04.1957, Side 11
EINING 11 ársskýrslnr Bláa bandsins og A„ A. Báðar eru þessar skýrslur ársins 1956 allathyglisverðar. Frá 22. okt. 1955 til 31. desember tók Bláa bandið á móti 590 manns, konum og körlum. Af þess- um komu 366 til dvalar einu sinni, 234 komu tvisvar eða oftar. Á þessu tímabili dvöldu á Bláa band- inu 339 karlar og 27 konur, mismun- andi lengi og er skrá í skýrslunni yfir lengd dvalartímans. Hæst er tala vist- mannanna, 65, á aldrinum 31—35, 59 á aldrinum 36—40. Það er á blóma- skeiði ævinnar. Lægst er talan á aldr- inum 17—20. Þeir eru 6. Enda er þetta lágur aldur til þess að vera orðinn of- drykkjumaður. Flestir hafa þó þessir vistmenn, 292 af 361, byrjað að drekka 20 ára og yngri. 162 vistmanna voru ókvæntir og 59 fráskildir. Illa gengur mönnum að gera grein fyrir orsök óreglunnar, 77 töldu þó helzt hjónaskilnað og ósamkomulag í hjónabandinu orsökina. Eftir vissan tíma á Bláa bandinu fá vistmenn þess leyfi til að fara út í bæ síðari hluta dagsins, og segir í skýrsl- unni, að það séu „hreinar undantekn- ingar að menn misnoti útivistarleyfið þannig, að þeir komi heim drukknir eða með vín“. Sýnir þetta eins og oftar, að traust vekur menn til dáða. Vikulega eru kvöldvökur á heimilinu. Eru þá allir vistmenn viðstaddir, einnig læknir, forstjóri og hjúkrunarkona. For- maður Bláa bandsins, Jónas Guðmunds- son, annast kvöldvökurnar, og mun ó- hætt að treysta því, að þær geri sitt fulla gagn. Yfirleitt sýnir skýrslan, að vel er á öllu haldið varðandi þetta mark- verða heimili. Vistmenn venjast á hrein- læti, að ganga vel um utan húss og inn- an. Þeir búa um rúm sín, ræsta her- bergi sín og hjálpa til á ýmsa lund. Rúmt hundrað vistmanna hafa hætt áfengisneyzlu, eða V3 og annar V3 hluti þeirra allra fengið verulega bót. „Virð- ist hælisvistin þannig vera fullkomlega jákvæð fyrir % þeirra er þangað koma“, segir í skýrslunni, sem birtir sundurlið- aðar tölur um þetta. Bláa bandið hefur haft náið samstarf við vinnuhælið að Gunnarsholti, og hafa margir vistmenn Bláa bandsins farið þangað. Það er sjáanlegt að nokk- uð miðar í rétta átt um meðferð drykkju- sjúkra manna í landinu, en fullkomn- ara þarf skipulagið þó að verða, sam- vinnan sem nánust milli hælanna, sem þyrftu og að vera fleiri, og helzt öll undir einni stjórn. Starfsemi þessa verð- ur að efla á meðan ríkið vill selja áfengi þegnum sínum til eyðileggingar, og þjóðin vill rækta drykkjusýkina, en skýrslan, sem hér er minnst á, sýnir eins og margt annað, að óglæsileg er uppskera ríkisins af áfengissölunni. A. A. samtökin. Eiginlega er Bláa bandið afkvæmi A. A. félagsins. Margir þeirra, er dvelja í heimili Bláa bandsins, sækja fundi A. A. samtakanna, og þau styrkja Bláa bandið á ýmsa lund, gáfu heimilinu t. d. píanó, sem kostaði 10500 krónur. Sömuleiðis reyna þessi samtök að lið- sinna þeim, sem koma frá vinnuhælinu að Gunnarsholti. Tveir úr stjórninni, þeir Guðmundur Jóhannsson og Vil- hjálmur Heiðdal, skiptast á um að fara vikulega austur að Gunnarsholti til þess að ræða við vistmenn þar og kynna sér framtíðaráætlun þeirra. En svo fara sum- ir vistmenn Bláa bandsins í vinnuhælið að Gunnarsholti. Af þeim 25, sem á sl. ári fóru af heimili Bláa bandsins á önn- ur hæli, fóru langflestir að Gunnars- holti. Við síðustu áramót voru 493 félag- ar innritaðir í Reykjavíkurdeild A. A. samtakanna, 52 fundi hafði deildin á liðnu ári og alls sóttu fundina 2773 fé- lagar. I skýrslunni er þess getið, að 90 manns, sem af alvöru hafi farið eftir ábendingu félagsskaparins, hafi alger- lega breytt um líferni, hætt að fullu og öllu fyrri drykkjuskap og verið nú reglu- menn í 1—2 ár. Á skrifstofu samtak- anna komu á sl. ári 1768 manns, er var veitt leiðbeiningar, en auk þess var 420 mönnum veitt aðstoð um útvegun at- vinnu, húsnæðis, og á ýmsan annan hátt. A. A. samtökin hafa nú starfað þrjú ár. Þörf þeirra er augljós og árangur starfseminnar góður. Ein mesta nauðsjm samtakanna er að eignast nægilegan húsakost. Öll félagsstarfsemi, sem á að geta þrifizt vel og gert fullt gagn, verð- ur að vera fjölþætt, en það útheimtir hæfilegt húsnæði. Vonandi er, að á næstu árum eflist sem bezt allir þeir kraftar í landinu, sem vinna gegn áfengisbölinu og áfeng- issýkinni, og að allt það starf verði svo vel samræmt og skipulagt, að til fyrir- myndar sé, en heitasta ósk okkar margra er þó sú, að þjóðin vaxi svo að viti og andlegum þroska, einnig hver ríkis- stjórn, að skrúfað verði fyrir áfengis- kranann og þannig bundinn endi á rækt- un áfengissýkinnar. Það eitt er sam- boðið skynsemi og siðmenntuðum þjóð- um. -------00O00------—— Raunin mín Ó, Guð, þú veizt, hve breysk við erum, börnin þín. Gegn þínum vilja þráfalt gerum. Það er raunin mín. Litlar syndir blinda oss og byrgja sólarsýn. Þá lokast okkar litlu hjörtu Ijósinu, sem skín. Hálfvillt því á hættuleiðum hrópum við til þín. P. S. maður hennar var ekki heilbrigður, að sál hans var sjúk, og þetta hafði henni verið lengi ljóst, en hún hafði vonað, að úr mundi rætast og því reynt að umbera allt möglunarlaust. En þetta — þetta síðasta uppátæki hans. Hvernig átti hún að taka því? Átti hún að víkja strax eða bíða átekta? Henni fannst hún ekki geta komizt nógu langt burt frá Hrauni, til þess að vera að fara alfarin þaðan. Hún afréð því að vera kyrr og sjá hvað gerðist, að minnsta kosti fyrst um sinn. Gísli kom nokkrum dögum seinna, og hún sagði honum frá áformi sínu. „Auðvitað verður þú að ráða sjálf“, sagði Gísli, „en ég held að þér sé mikill vandi á höndum. Þú unir þér aldrei stundu lengur undir sama þaki og Bessa, það er ég viss um. Ég hef heyrt, að þeirra sé von á laugardaginn, tími er því ekki mikill til stefnu, en ef þú skildir skipta um skoðun áður, þá veiztu, að þú ert velkomin hvenær sem er til okkar hjón- anna. Búnaðarbanki Islands Stofnaður með lögum 14. júní 1929. Bankinn er sjálfstæð stofnun undir sérstakri stjórn og er eign ríkisins. — Trygging fyrir innstæðufé er ábyrgð ríkissjóðs auk eigna bankans sjálfs. Bankinn annast öll innlend bankaviðskipti, tekur fé á vöxtu í sparisjóði, hlaupareikningi og viðtökuskirteinum. Greiðir hæstu innlánsvexti. Aðalaðsetur í Reykjavík: Austurstrœti 9. Útibú á Akureyri.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.