Eining - 01.04.1957, Síða 12
12
EINING
Geigvænlegu mann-
drápin á þjjóðbrauft-
unum
Ameríska tímaritið Listen birtir eftir-
farandi tölur:
Á tímabilinu 1775—1955 misstu
Bandaríkin 1,130,393 menn í styrjöld-
um.
Á tímabilinu 1900—1955 fórust í
landinu 1,149,414 í umferðarslysum.
Tapið í styrjöldunum var þetta:
í frelsisstríðinu................. 4,435
1 stríðinu 1812 .................. 2,260
f mexíkanska stríðinu .... 13,283
í borgarastríðinu ............. 529,332
I spánsk-ameríska stríðinu 2,446
I fyrri heimsstyrjöldinni . . 116,563
í síðari heimsstyrjöldinni . 407,828
I Kóreu-styrjöldinni...... 54,246
Samtals: 1,130,393
Aðeins á einu ári, 1955, slösuðust
fleiri menn í umferðinni í Bandaríkjun-
um, en særðust á vígvellinum í öllum
styrjöldum þjóðarinnar frá upphafi
hennar.
Að minnsta kosti einn fjórði, 25%,
allra þessara umferðarslysa orsakast af
áfengisneyzlu, en slíku er oft reynt að
Ieyna. Tvö víðlesin og merk rit, U. S.
News and World Report og Readers
Digest, birtu þessar geigvænlegu tölur
um umferðarslysin, en þar var ekki
vikið einu orði að því, að áfengisneyzl-
an ætti þar á nokkra sök. Hvers vegna
að vægja þessum mesta skaðvaldi og
breiða yfir stórsyndir hans? Verk hans
eru ekki geðslegri en styrjaldirnar, en
hvortteggja ávöxtur vanþroska og
blindni.
Árið 1955 voru 138 ökumenn í
Delaware riðnir við 97 umferðarslys,
er leiddu til dauða. Af þessumm voru
56 undir áhrifum áfengis. Flest verða
slysin um helgar. Þá eru menn að
skemmta sér, þá drekka menn og aka
glannalega.
Misheppnuð bind-
indissókn í Rúss-
landi
Bæði sænski Reformatorn og Dansk
Good Templar greina frá misheppnaðri
bindindissókn í Rússlandi. Þessari sókn
var hrundið af stað fyrir nokkrum ár-
um. Forustuna hafði rithöfundur, Fjo-
dor Gladkov að nafni. Þátttakan var
mikil frá ungmennasamtökum, iðnaðar-
mannasamtökum, blöðum og útvarpi.
Blöð í Rússlandi greindu svo frá tölu-
verðum árangri, en engin bindindisfé-
lög vor stofnuð og svo hneig aldan, og
nú er kvartað undan vaxandi drykkju-
skap, og ekki sízt æskumanna. Glæpir
fylgja auðvitað drykkjuskapnum. Til
dæmis skrifar einn þjónn ríkisins í mál-
gagn rithöfunda í Úkraínu:
„Reynslan er sú, að mestur hluti bíl-
slysa, ofbeldisárása og þjófnaðar er í
sambandi við drykkjuskap. Olvaðir
fremja menn slíkt til þess að reyna að
ná í peninga til áfengiskaupa. Sérhver
ákærandi og dómari getur nefnt fjölda
slíkra tilfella, að yfirleitt og næstum
undantekningarlaust séu hinir grófari
glæpir framdir á mönnum undir áhrif-
um „græna ormsins“ (það er Vodka)“.
Þá er sagt, að ölvun við akstur fari
mjög í vöxt, einnig að menn fremji hníf-
stungur í ölvunarástandi. Þess er get-
ið, að á síðast liðnum mánuðum hafi
blöð í Rússlandi skýrt frá fjórum slík-
um morðum. Allir fengu morðingjarnir
fjórir dauðadóm, en skýrt kom það fram
í réttinum, að hnífnum hefðu þeir beitt
í ölvunarástandi.
Þetta er gamla sagan: Selja mönn-
um áfengi og refsa þeim svo fyrir glæpi,
er þeir drýgja í dómgreindarleysis á-
standi.
Það er nú ef til vill ekki hættulaust
að minnast á það upphátt, að einhver
siðspilling kunni að eiga sér stað í Rúss-
landi eins og öðrum löndum, t. d.
drykkjuskapur leiðtoganna og annarra.
Ég minnist þess, er ég hér á árunum gat
þess í útvarpsþætti, að enskur rithöf-
undur, sem lýsti siðgæðisástandi bæði
hjá sinni þjóð og öðrum, vitnaði í rúss-
neskt blað um vissa siðspillingu í
Rússlandi upp úr byltingarárunum, að
þá æpti einhver móðursjúkur réttlínu-
ofsatrúarmaður:: „Sovíetníð, Sovíet-
níð“, en ekkert heyrðist þó í þeim barka,
er Krusjtsjov var fyrir skömmu að hella
úr skálum reiði sinnar yfir Stalin.
Eitt er víst, að í sambandi við áfeng-
ið, er víst manneðlið alls staðar svipað
einnig í Rússlandi.
P. S.
--------ooOoo-------
Sendir Einingu flöskuvirði
Hreppstjóri nokkur, hniginn á efra aldur,
sendir blaðinu peningagjöf og skrifar á
þessa leið:
,,Ég hef hugsað mér að minnka innkaup
mín árlega framvegis uin eina flösku svarta-
dauða, og þá peninga, er ég spara þannig,
ætla ég að yfirfæra til Einingar ár hvert
ineðan ég get lesið ritið mér til ánægju, og
ég held líka til fróðleiks og betri dyggða.
Brennivínið hefur víst hækkað í verðj nú
upp úr síðustu áramótum, og er þar ekki
skaði skeður, ef allt annað á að lækka í
verði í landi voru, eins og mér skildist á
síðustu útvarpsumræðum, og er vel ef svo
giftusamlega tekst, því að næg var og er
dýrtíðin. Hins vegar mun betra að byggja
ekki um of á slíku orðagjálfri".
Bezt mun að geta þess, að bréfritarinn er
stakur bindindismaður og á ekkert við á-
fengiskaup.
Upphaf bréfsins væri gaman að birta, en
kynni mörgum að þykja of inikið lirós um
Einingu og skal því kyrrt liggja, en bréf-
ritara sendi ég innilegustu þakkir og beztu
kveðjur. P. S.
■-------ooOoo---------
100 ára afmœli
Árið 1959, 29. desember, eru liðin 100
ár frá því, er stofnað var í Noregi fyrsta
félagið, er hafði algert hindindi á stefnu-
skrá sinni. Bindindismenn í Noregi búa sig
nú undir mikil hátíðarhöld í sambandi við
þetta afmæli. Undirbúningur er þegar haf-
inn. Eitt í áætluninni er það, að hafa bætt
við liðsveit bindindismanna í landinu 10,000
nýjum félögum, ungum og eldri. Stefnt er
og að því, að hafa safnað 250,000 norskra
króna til starfsjns. Þessir tveir áætlunarlið-
ir gilda aðeins fyrir liið sérstaka landssam-
band, er heitir Det norske Totalavholds-
selskap. Það er þetta samband, sem á 100
ára afmæli 1959.
Samband þetta áformar einnig margþætt
og sterkt fræðslu- og útbreiðslustarf. Af-
mælishátíðarhald landssambandsins verður
í Stavanger, en mikil hátíðarhöld verða
einnig í Oslo og víðar um landið. Á sama
tíma sem þetta 100 ára afmæli þessa sér-
staka landssambands, er það einnig 100
ára afinæli bindindishreyfingarinnar í Nor-
egi, og verður þátttakan því almenn.
-----------------ooOoo---------
John Wesley segir: „Fáið mér hundrað
prédikara, sem óttast ekkert nema synd og
þrá ekkert nema Guð, nákvæmlega sama
hvort þeir eru leikmenn eða lærðir. Þeir
munu megna að láta hlið helvítis nötra, og
stofna himnaríki á jörðu. Guð gerir ekkert
nema sem svar við bæn“.
-----------ooOoo------------
Áfengisneyzlan styttir œvina.
Dr. Frederick Lemere, við Shadel hælið
í Seattle í Washingtonríkinu, safnaði ævi-
sögugögnuin 500 ofdrykkjumanna, er dáið
höfðu árið 1952, og rannsakaði þau.
Meðalaldur þessara áfengissýktu manna
var 52 ár, en meðalaldur Ameríkumanna
yfirleitt er 72 ár. 16% þessara ofdrykkju-
manna náði 75 ára aldri eða meira, en
12% náðu aðeins 40 ára aldri.
Aðra rannsókn á æviárum 10,500 áfengis-
sjúklinga, sem fluttir höfðu verið í Was-
hingtonian sjúkrahúsið í Boston árin 1939
-1951, framkvæmdi dr. Joseph Thimann,
yfirlæknir lyfjadeildar sjúkrahússins. Með-
alaldur þessara ofdrykkjumanna, er þeir
dóu, var 41 ár. Næstum engir náðu 70 ára
aldri, en 60% dóu um fertugt eða fyrr.
The Foundation Saijs.
-------ooOoo--------
Þess var þörf
LTng kennslukona spurði hina kornungu
nemendur sína, hvort lTeir bæðu nokkru
sinni til Guðs. Ein litla snótin reis úr sæti
sínu og sagði:
„Ég bið á hverju kvöldi til Guðs, sem
ræður yfir öllu. Og svo bið ég fyrir mömmu
og pabba, og ég skal segja yður, ungfrú, að
þess gerist þörf“.