Eining - 01.12.1961, Blaðsíða 5

Eining - 01.12.1961, Blaðsíða 5
EINING 5 < .< V ' <í | 1 . 1 Ritstjórn blaösíðunnar: Isienzkir unutempiarar K„„i„ss„„ CÁ -L og Einar Hannesson. « : .< > Eftirminmnleg Atburðir þeir, sem hér er stiklað á gerð- ust nokkru fyrir aldamótin 1900. Vegna þess að sagan er sönn er manna- og staða- nöfnum sleppt. — Ung og mjög glæsileg hjónaefni voru gefin saman. Orð var á gert hvað þau væru samvalin og þeim spáð far- sælu hjónabandi. Að giftingu lokinni var slegið upp veizlu mikilli á kirkjustað með mikilli rausn. Meðal boðsgesta voru tveir ungir menn, annar lítt þekktur, hinn ann- álaður fyrir hreysti og karlmennsku, auk þess, sem hann átti þann úrvalsgæðing að trautt fannst annar slíkur. í brúðkaupsveizlu þessari var nokkuð drukkið svo sem tízka var. Flestir drukku þó af gát, því margir áttu heim að sækja um mjög strangt og erfitt vatnsfall. Sá, sem átti gæðinginn góða drakk ósleitilega, því hann var ölkær, hinn ungi maðurinn lét veigarnar öðrum eftir. Að veizlu lokinni var búizt til heimferð- ar, brúðhjónin voru meðal þeirra er sækja þurftu yfir vatnsfallið stranga svo og ungu mennirnir báðir. Gengur allt vel að fljót- inu og eru brúðhjónin í farabroddi, en er kemur að einum örðugasta álnum, verður brúðguminn einhverra atvika vegna aðeins seinni út í álinn. en hesti brúðurinnar skrikar fótur og hún verður í einni svipan laus við hestinn og flýtur niður eftir ánni, áður en nokkur fær neitt að hafst til bjarg- ar. Allir verða skelfingu lostnir yfir þess- um hörmulega atburði. Brúðirin flaut hratt niður að eyri sem var í ánni. Sú spurning tók hugi allra hvort brúðurin mundi enn á lífi og hvort nokkur möguleiki mundi á að bjarga henni frá þessum háskalega stað. Nú voru góð ráð dýr og þurfti skjótra að- gerða við. Ekkert gat bjargað stúlkunni nema afburðahestur og áræðinn hreysti- maður. Öllum var litið á hestinn annálaða, egandi hans hafði verið bundinn út úr drukkinn á hann eins og dauður hlutur, enda var hann ráð og rænulaus. Hinn ungi maðurinn var nú skjótráður, áður en menn höfðu áttað sig á hlutunum var hann bú- inn að losa hestinn við eigandann og hafði lagt út í beljandi strauminn upp á líf og dauða. Eftir nokkurt volk nær hann eyr- inni, hann tekur stúlkuna í fang sér og leggur enn í skaðræðisfljótið. Og nú reynir á allt til hins ýtrasta, hreysti styrkleika, þol og ratvísi manns og hests. Báðir vita hvað við liggur og maður og hestur, þeir eru eitt. Brúðguminn kemur einnig til hjálpar og afreksverkið tekst, landi er náð eftir hetjulega og tvísýna baráttu. Menn fá lífgað brúðina og ungu hjónin lifa lengi farsælu lífi. Öllum var þessi brúðkaupsferð ógleymanleg. Um unga manninn ölkæra er það að segja, að hann harmaði sáran, er hann vissi alla atburði, að hann skyldi hafa verið svo á sig kominn sem hann var og til þess að slíkt óhapp henti sig ekki öðru sinni, strengdi hann þess heit að láta aldrei fram- ar áfengi inn fyrir sínar varir og það heit hélt hann trúlega. Tíðindamaður síðunnar Jcom í stutta heimsókn til Álasunds í Noregi um mánaða- mótin október-nóvember, og naut gest- risni og vinsemdar templara þar. Góðtemplarareglan er sterk í Álasundi. Þar starfa fimm undirstúkur og eitt ung- templarafélag, auk barnastúkna. Stúkurn- ar heita Godthaab, Havets Sönner, John Finch, Brodersinn og Fram-Álasund. Ung- templarafélagið heitir Sjmira. Það er eitt fjölmennasta og öflugasta ungtemplarafé- lagið í Noregi í dag, með 400 félagsmenn. Templarar eiga myndarlegt samkomu- hús á góðum stað í Álasundi og Symra á glæsilegan veitingastað, Fjellstua, sem stendur á fjallsbrún, Axla, er gnæfir yfir miðbæinn. Er veitingastaðurinn í 120 metra hæð yfir sjó og liggur göngustígur, með fleiri hundruð þrepum, upp snarbratta hlíðina, upp frá skemmtigarði bæjarins. Ennfremur má aka upp á fjallið og að veitingastaðnum. Útsýn frá Fjellstua er hin fegursta, bæði yfir bæinn og á haf út og inn til landsins. Um 200 gestir geta samtímis matast þama og er viðurgern- ingur allur fyrsta flokks .Staðurinn er að- eins opinn yfir sumarmánuðina. Þá kemur þangað fjöldi gesta og vafalaust allir ferða- langar, sem til Álasunds koma og þar vilja skoða sig um. — Eru ungtemplarar í Ála- sundi að vonum stoltir og ánægðir yfir því, að eiga þenna glæsilega og vinsæla veitingastað. Tíðindamaður fékk m. a. tækifæri til þess að skoða Fjellstua og spjalla við forustu- menn ungtemplarafélagsins kvöldstund. Fræddist hann þá einnig mikið um það, sem á daga félagsins hefur drifið. Symra varð 45 ára í marz s.l. Starfsemi félagsins hefur lengst af frá stofnun þess, verið fjöl- breytt og líflegt og nú er sérstaklega lifandi og grózkumikið starf í félaginu. Félagið heldur vikulega fundi á laugardögum í Góð- templarahúsinu. Samstarfið við stúkurnar er gott. Félagið gefur út myndarlegt blað, Symrapóstinn, sem kemur út fjórum sinn- um á ári, 20 bls. í hvert sinn. Formaður félagsins heitir Ásbjöm Nilsen, ungur maður, og með honum í stjóm eru bæði piltar og stúlkur, öll innan við tvítugt. E. H. - F R ÉTTIR - Ung templaradagurinn 1961. Dagsins var minnst sérstaklega með sam- komu í Góðtemplarahúsinu sunnudaginn 22. okt. s. 1. Á samkomunni bættust 47 nýir félagar í samtökin, formaður ÍUT, séra Árelíus Níelsson flutti ávarp um kjörorð dagsins, sem var að þessu sinni „Frelsi frá ótta og neyð“ og að síðustu var dansað. Húsfyllir var. Keflvíkingar heimsækja Hrönn. Um 40 félagar úr stúkunni Vík í Keflavík, aðallega ungt fólk, heimsóttu ungtemplara- félagið Hrönn í Reykjavík. Hrönn hafði efnt til skemmtikvölds í Góðtemplarahús- inu sunnudaginn 12. nóvember sl. og bauð Keflvíkingum þangað, en Hrannarfélagar heimsóttu Keflavík snemma á þessu ári. Um 200 ungmenni sóttu skemmtikvöldið, sem tókzt vel. Fararstjóri Keflvíkinganna var Jón Tómasson, símstöðvarstjóri. Stúlka sótti um skrifstofustöðu. Sagðist hafa sagt upp stöðunni þar sem hún hefði verið, vegna þess, að skrifstofustjórinn hefði reynt að kyssa sig. Það var leiðinlegt að svona skyldi fara, svaraði sá, sem hún talaði við. Annars hefð- uð þér getað fengið stöðuna hér. Hin glæsilega veitingastofa á fjallsöxlinni.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.