Eining - 01.12.1961, Page 7
EINING
7
Góðtemplararegla kaupir Friðbjarnarhús
Góðtemplurum var það merkisviðburður
að hinn 25. sept. sl. gekk góðtemplararegl-
an frá kaupum á Friðbjarnarhúsi, Aðal-
stræti 46, Akureyri.
í þessu húsi var stofnuð fyrsta stúkan á
íslandi, st. ísafold nr. 1, 10. jan. 1884.
Húsið minnir því á merkisviðburð og dýr-
mætar minningar eru tengdar því.
Sunnudaginn 15. okt. sl. blakti góðtempl-
arafáninn fyrir hlýjum sunnanvindi við
Friðbjarnarhús. Þar var saman komið
framkvæmdaráð stúknanna á Akureyri með
blaðamönnum og fréttaritara útvarps. Set-
ið var um stund við rausnarlega búið kaffi-
borð, sem nokkrar stúkusystur höfðu búið í
kvistherberginu, þar sem stofnuð var
stúkan ísafold fyrir tæpum 78 árum. For-
maður framkvæmdaráðs, Jón Kristinsson
bauð gesti velkomna og drap nokkuð á
ýmsa þætti í störfum Reglunnar fyrr og
síðar. Minnti á, að hugsjón góðtemplara-
reglunnar átti snemma hljómgrunn í sál
þjóðarinnar og að ýmsir mikilhæfir áhrifa-
menn hafa sótt fram undir merkjum henn-
ar bæði fyrr og nú. Þræðirnir frá litla
kvistherberginu, sem áður var dagstofa
Friðbjarnar Steinssonar, bóksala og bæjar-
fulltrúa — hins trausta brautryðjanda og
þrautseiga baráttumanns — liggja nú víðs
vegar um landið. Góðtemplarareglan varð
stórveldi í landinu og sterk er hún enn.
Öllum starfskröftum sínum beitir hún
Framhald af bls. 6.
Þannig mælti skólameistari, Þórar-
inn Björnsson, á því herrans ári 1952.
Hvað segja svo hinir raunsæu menn
þjóðarinnar um gang þessara mála síð-
an. Hefur þar verið þróun eða mein-
þróun, hefur þar batnað eða versnað?
Við erum ef til vill glámskyggnir dóm-
arar, en hinar mörgu umkvörtunar-
raddir vekja vissulega ugg.
Ef einhverjir æskumenn, sveinar eða
meyjar, skyldu lesa þessar línur, vil ég
skora á þá, að leita sér frægðar í því
á komandi árum að beina straum fram-
vindunnar til heilla fyrir land og þjóð,
og afkvæmi sín í framtíðinni. Það mun
veita þeim meiri lífsfögnuð, en kaffi-
húsasetur, skaðnautnir og lélegar
skemmtanir.
En einhver af Guði sendur verður að
verða til þess að fá ungu hjörtun til
að brenna af áhuga á slíku, áhuga á
að gera hag þjóðarinnar sem beztan og
menningu hennar sem glæsilegasta. Við
skulum vona, að einhver og einhverjir af
Guði sendir verði á vegi uppvaxandi
æskumanna landsins, er leiðbeini svo,
að ungu hjörtun taki að brenna, augun
að ljóma og framtíðin að opnast í und-
urfagurri sýn.
þjóðinni til heilla og til eflingar sjálfstæði
og þroska einstaklingsins.
Ræðumaður minnti einnig á, hve merkur
þáttur í öllu félagslífi þjóðarinnar hin
mörgu templarahús voru, sem Reglan kom
upp víðs vegar á landinu, má t. d. enn benda
á fornan stórhug góðtemplara þar sem er
Samkomuhús bæjarins á Akureyri, sem áð-
ur var Góðtemplarahúsið, eitt hið mesta
og bezta samkomuhús landsins allt fram að
síðustu áratugum. Húsið var reist árið 1907
og er enn eitt af stórhýsum bæjarins, stíl-
hreint og fagurt. Það vitnar um bjartsýni,
dugnað og samheldni aldamótamannanna.
Við tók svo af því húsið Skjaldborg sem
félagsheimili Reglunnar á Akureyri um
aldarfjórðungsskeið. Og nú er það Varð-
borg, sem hýsir þrjá þætti starfseminnar:
Borgarbíó, sem nýtur almennra vinsælda,
fyrirmynd í reglusemi og góðri umgengni.
Hótelreksturinn, sem á stuttum tíma hefur
sýnt að bindindishótel er vinsæl stofnun
og gegnir mikilsverðu hlutverki. Og svo er
æskulýðsstarfið. Þar hafa hundruð ung-
linga bæjarins eytt tómstundum sínum við
leik og starf og lestur góðra bóka.
Húsi Friðbjarnar þarf að sýna allan
sóma, sagði ræðumaður að lokum, svo að
það geti verið bæjarprýði, og það skal jafn-
an vera lýsandi tákn og minnisvarði, er
hvetji alla ísl. góðtemplara til samstarfs og
sóknar að settu marki.
Framkvæmdastjóri reglustarfsins á Ak-
ureyri, Stefán Á. Kristjánsson, ræddi
framtíðarstarfið og benti á, að æskulýðs-
starfsemina skorti nú mjög aukinn húsa-
kost, einnig hefðu stúkurnar orðið að
starfa í leiguhúsnæði síðan Skjaldborg var
seld. Aðkallandi væri því að koma upp
nýrri byggingu handa þessari starfsemi og
væri nú þegar hafinn undirbúningur að
þeim framkvæmdum. Ennfremur væri fyr-
irhugað að reisa á lóð Varðborgar nýtt og
fullkomið kvikmyndahús.
Slíkar eru fréttirnar frá Akureyri. Ein-
ing óskar þeim athafnasömu mönnum, sem
þar eru að verki í þessum málum, til heilla
með öll þeirra þjóðhollu og góðu störf. Þau
ættu að geta orðið öðrum góð hvatning.
21. félag áfengisvarnanefnda
Laugardaginn 4. nóvember sl. komu
saman til fundar í Reykjavík áfengis-
varnanefndirnar í Reykjavík, Hafnar-
firði og Kópavogi og stofnuðu sitt eig-
ið félag. Það er 21. félag áfengisvarna-
nefnda í landinu. Þar með eru allar á-
fengisvarnanefndir landsins 228, að
undanskildum þremur, skipulagðar í
þessi 21 félög.
Nefndirnar í Reykjavík, Hafnarfirði
og Kópavogi hyggja á meira starf með
þessu samstarfi. Eftir góðar og gagn-
legar umræður var stjórn félagsins kos-
in og urðu fyrir valinu þessir: Páll V.
Daníelsson, viðskiptafræðingur, Hafn-
arfirði, Frímann Jónasson, skólastjóri,
Kópavogi, Finnbogi Júlíusson, verk-
stjóri, Reykjavík og varamenn konurn-
ar þrjár: frú Sigríður Björnsdóttir,
Reykjavík, frú Þorbjörg Halldórs,
Kópavogi og frú Þorgerður Gísladóttir,
Hafnarfirði. Fundinn sátu þeir báðir,
áfengisvarnaráðunautur, séra Kristinn
Stefánsson og erindreki áfengisvarna-
ráðs, Pétur Björnsson.
i=]
ÖlœSistilfellum fjölgar
í Kaupmannahöfn
Á einum mánuði, apríl sl. komu fyrir í
Kaupmannahöfn 19. ölæðistilfelli — delirium
tremens. Þessum tilfellum hefur fjölgað sér-
staklega síðustu árin, og fari slíku fram,
verða þau brátt 10 sinnum fleiri en á árun-
um 1945—1951.
Hér mætti minna á, að drykkjuskapur Dana
er að mestu leyti ,,meinlausa“ ölið, sem sum-
um fslendingum er kappsmál á að fá hing-
að.
Pétur Sigurðsson.
Friðbjarnarhús.