Eining - 01.03.1962, Blaðsíða 5
EINING
5
<—
ir ungtemplarar
---------------------------«>
Ritstjórn blaösíóunnar:
Guðmundur Þórarinsson
og Einar Hannesson.
___________________________4
-----------------------------»
ASKJA
Á ferðalagi Farfugla um óbyggðir íslands
sumarið 1900, gengu þeir að Öskju og nutu
að nokkru fegurðar hennar, þó veður væri
ekki svo gott sem skyldi, strekkingsvindur
og gekk á með skúrum. — Þá urðu eftirfar-
andi vísur til.
Skreytt í fegursta litalín
með leyndardómanna svipinn.
Askja birti okkur undur sín
og eldanna strengjagripin.
Válegan bar hún voðans mátt
vafin í hamra kögur.
Með vatnakiljur og Vítisgátt
voldug og ægifögur.
Gígurinn starði ljós og lygn
lagði upp bruna varma.
Hljóðlát birtist oss hrikatign,
er horfðum á Vítisbarma.
Vatnið myndað við brunabál,
bergmál frá runnum glóðum.
Landið með öll sín leyndarmál
lýsti af Öskjuslóðum.
Sviptust til skýin skuggagrá,
skekin af ýmsum vindum.
Víst hefði verið sælla að sjá
sólbros á hennar myndum.
Ég vil þó þakka þessa ferð,
sem þörf var til góðra kynn.a.
Aldanna spil af ýmsri gerð
um allt var að sjá og finna.
GnSm. Þórarinsson.
Frekhaug lýðháskólinn
Skammt frá Bergen er Frekhaug lýðhá-
skólinn, sem góðtemplarareglan í Noregi á
og rekur. Fyrirkomulag á rekstri skólans
er í samræmi við þær reglur norsku
fræðslumálastjórnarinnar, sem gilda um
lýðskóla, sem ekki eru reknir af því opin-
liera. Skólinn er fullsetinn, með 51 nem-
anda, víðs vegar að úr Noregi. — Er þetta
menntasetur liinn mesti sómi fyrir góð-
templararegluna. Þess má gjarnan geta, að
nokkrir íslendingar hafa stundað nám í
Frekhaugskólanum.
Stúkan Einingin og ungtemplarafélag
stúkunnar hafa á þessum vetri efnt til
tveggja Kynningarkvölda í Góðtemplarahús-
inu og varð húsfyllir í bæði skiptin. Boðið
var m. a. nemendum úr Verzlunarskólanum
og Kennaraskólanum. Á kvöldum þessum
voru fluttar ræður um bindindis- og áfeng-
ismál og töluðu þeir Þorvarður Örnólfsson
og Ólafur Grímsson. Sýndir voru gaman-
leikir, sem félagar stúkunnar höfðu æft, og
að lokum var stiginn dans.
Norskir ungtemplarar hafa safnað und-
irskriftum meðal þekktra borgara í Noregi
undir skjal þess efnis, að Stórþingið sam-
þykki að ungu fólki innan 21 árs megi ekki
veita eða selja áfengt öl eða vín, en aldurs-
takmarkið er nú 18 ár. Hafa 100 þekktir
borgarar skrifað undir plaggið. Auk þessa
hafa norskir ungtemplarar á ýmsan hátt
unnið þessu máli gagn, m. a. með því að
láta prenta auglýsingaspjöld. Spjöldin sýna
mynd af glasi og bifreið, en bifreiðin befur
staðnæmst á staui' og er bifreiðin illa út-
leikin. Stendur á myndinni öl hörle til!
Er þetta mótleikur gegn auglýsingu félags
ölframleiðenda, sem leggur áherzlu á orðin
Öl hörer til! Ungtemplarar ætluðu að koma
þessari auglýsingu í þekkt og útbreitt tíma-
rit í Noregi, en var synjað um það. Kom í
Ijós, að auglýsingaskrifstofa, sem m. a. sér
um auglýsingar fyrir ölframleiðendur hafði
sett fingur sinn í spilið. Tímaritið vildi þó
ekki viðurkenna að það væri ástæðan til
synjunarinnar. Það hélt því fram, að aug-
lýsingin bryti í bág við löggjöfina. Þessi
synjun tímaritsins varð til þess, að frétt um
þetta mál komst i Dagbladet i Osló, en upp-
lag þess er 170 þúsund eintök. í Dagblað-
inu kom einnig auglýsing ungtemplara á á-
berandi stað. Kostaði auglýsingin 0 þúsund
norskar krónur.
Stúkurnar Einingin í Reykjavík og Danielsher í Ilafnarfiröi áttu nýlega saman ágæit
kynningarkvöld i Templarahúsinu í Reykjavik. Myndin er frá því. (Studio Gufímundar).