Eining - 01.03.1962, Blaðsíða 6

Eining - 01.03.1962, Blaðsíða 6
6 EINING EINING Mánaðarblað um áfengismál, bindindi og önnur menning’armál. Ritstjóri og ábyrgðamaöur: Pétur Sigurösson. Blaðið er gefið út með nokkrum fjárhagsstyrk frá rikinu og Stórstúku íslands, kostar 50 kr. árg., 4 kr. hvert eintak. Utanáskrift til blaðsins og ritstjórans er: Pósthólf 982, Reykjavík. Sími: 15956. Það sem hver maðurþyrfti að vita um I DRYKKI eftir dr. ANDREW C. IVY Dr. Ivg hefur hlotiö clokiorsnafnbót í þrern- ur fræQi- og vísinda- greinum, en hefur auk þess aörar nafnbælur. Hann er sálfræðipró- fessor og gfirmaður læknadeildar rí kishá- skólans í Chicago. Hann er þekklur víSa um álfur, sem snjcdl fgrirlesari ocg frœöi- maóur, er áhrifamikill á sviöi bindiudis- og áf cngismála. É, EGAR um heilsu manna er að ræða, er lítið lóð af \ heilsuvernd, ekki aðeins pundi, heldur heilli þunga- lest lækninga mikilvægara. Heilsuvernd grundvallast á því, að uppgötva eins fljótt og unnt 'er orsök sjúkdóms- ins, og veita svo almenningi fræðslu um það, hvernig unnt sé að verjast honum. Af þessari ástæðu hef ég sem sérfræðingur í lækna- vísindum, lífeðlisfræðingur og læknir áhuga á vörnum gegn áfengissýki og áfengisneyzlu, sem er nú, að mínu áliti, helzta orsök eymdar og örbyrgðar í Bandaríkjunum. Oft hefur verið fullyrt, að drykkjuskapurinn sé það vandamál, sem mest ógni heilbrigði almennings á Vestur- löndum, en þó minnst gert til að afstýra. í þessu sambandi eru ýmsar staðreyndir, sem allir ættu að þekkja: Hver er orsök drykkjuskapar? Hversu mikið vandamál er hann í raun og veru, og hver er lausnin? Þess- um staðreyndum má skipta í 10 aðalflokka. 1. Áfengið er orsök bæSi hins bráða ocj langvinna drykkjuskapar. I læknisfræðinni er aðalorsök hvers sjúkdóms aðgreind frá hinum óbeinu orsökum. Til dæmis er berklasýkillinn hin beina orsök berklaveikinnar, en slæmur kostur og fátækt eru hinar óbeinu orsakir hennar. Berkla fá menn ekki, nema því aðeins að berklasýkillinn sé í umhverfi þeirra og nái síðan að komast inn í líkami þeirra. Á svipaðan hátt er áfengið orsök bæði hihs bráða og langvinna drykkjuskapar, því að enginn verður áfengis- sjúklingur, sem ekki neytir áfengis. Á meðal hinna óbeinu orsaka eru svo uppburðarleysi, löngun til að samræmast öðrum, vonbrigði, taugaspenna, vanþroska tilfinningalíf og meðhöndlun áfengra drykkja í umhverfinu. 2. BráSur og langvinnur drykkjuskapur er sjúkdómur í hinni læknisfræðilegu merkingu þess orSs. Sjúkdómur kallast það, þegar einhver þáttur í starísemi sálar eða líkama er skertur. „Ism“ merkir það að vera undir áhrifum, og þegar áfengismagnið er orðið svo mikið í blóðinu, að það skaðar starfsemi heilans, þá er það áfengis- sýki. Til þess að komast á þetta stig þurfa sumir ekki að drekka nema eina eða tvær bjórflöskur eða lítið staup af brennivíni eða áfengisblöndu (coktail). Bráða-áfengissýkin (acute alcoholism) er stundarröskun heilastarfseminnar af völdum áfengis, sem varir ef til vill frá hálfri að tveim klukkustundum, eftir mikla áfengis- neyzlu. Langvinnur drykkjuskapur er það ástand mannsins, þegar hann er vikum, mánuðum og árum saman meira og minna undir áhrifum áfengis. Margendurtekin ofdrykkju- tilfelli leiða til langvinnrar ofdrykkju. Ofdrykkjumaður er sá, sem leitar á náðir áfengis til þess að geta staðið and- spænis hinum venjulegu kröfum daglegs lífs, og heldur áfram að drekka, þótt drykkjuskapur hans hafi valdið erfiðleikum í hjúskaparlífi hans, starfi og umgengni við aðra. 3. Áfengisneyzlan er þriSja mesta heilbrigSisvandamál Bandarikjanna. Þar eru nú 5 milljónir ofdrykkjumanna, og 3,5 milljónir með ofdrykkjuhneigðar-veilur, alls 8,5 milljónir manna, sem þarfnast læknishjálpar. Þar að auki er aðeins um einn þriðji hluti þeirra, sem þegar hafa hlotið læknisaðstoð, í bindindi fimm ár eða lengur. Öll læknastétt Bandaríkjanna gæti ekki annazt slíkan fjölda, þótt hún vildi. Þetta mikla vandamál er enn alvarlegra sökum þess fjölda fólks, sem slasast og ferst í umferðarslysunum. Nákvæm- ustu athuganir hafa leitt í Ijós, að í blóði helmings þess fólks, sem farizt hefur með slíkum hætti, hefur verið eitt- hvert áfengismagn, þegar slysið vildi til. Hin nákvæmasta rannsókn í þessum efnum var gerð í Evanstone-borg í Illi- nois-ríkinu, og sýndi, að 4% umferðarslysa, sem meiðslum valda á mönnum, orsakast af áfengisneyzlu ökumanna. Niðurstöðutölur ónákvæmari rannsókna voru 20—30%. Samkvæmt skýrslum tryggingafélags ferðamanna (Trav- elers Insurance Company), meiddust og dóu í umferðarslys- um árið 1958 nærri 2,8 milljónir manna. Ef 20% eða einn fimmti hluti slysanna hafa verið af völdum áfengisneyzlu og ölvunar, kemur í ljós, að 560,000 manna meiddust eða létu lífið í umferðarslysum af völdum áfengis árið 1958. Hafi 40% eða tveir fimmtu hlutar meiðst eða farizt af sömu orsökum, er heildarútkoman 1,120,000. Sú tala er rúm- lega tvisvar sinnum hærri en heildartala Bandaríkjamanna, sem létu lífið á vígvellinum í seinni heimsstyrjöldinni. Dr. Harris Isbell, yfirmaður eiturlyfjasjúkrahúss heil- brigðismálaþjónustu Bandaríkjanna, hefur sagt: „Sam- kvæmt yfirlitsskýrslum er áfengið langsamlega yfirgrips- mesta deyfilyfið." Arnold J. Toynbee, einn af merkustu sagn- fræðingum vorra daga, hefur ritað í bók sinni Civilization on Trial — Menningin í hættu, sem kom út árið 1948, að ofdrykkja og kynþáttarígur séu hin tvö augljósustu hættu- merki vestrænnar menningar. f þessu sambandi ættum við að hafa hugfast, að allur drykkjuskapur og spilling, sem talað er mn í Biblíunni, og tengd eru frásögnum hnigunar og falls þjóðfélaga, áttu rót sína að rekja til öl- og vínneyzlu. Bruggun eða gerð whisky og sterkra vína hófst ekki fyrr en um 1500.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.