Eining - 01.06.1962, Page 4

Eining - 01.06.1962, Page 4
r 4 m % m 100 so- 3 ss M/A. berklaveik v v TUBERCULOSIS A / Sm Taflci 3. Um 1920 var aukið við hælið 70 sjúkrarúmum, og við bættist lítið hæli í Kópavogi með 24 rúm og árið eftir annað að Kristnesi með 60 rúm og 1931 hið þriðja á Reykjum með 20 rúm. Fjöldi sjúkrarúma á berklahælum jókst þannig á 11 árum um 174, og voru þau 1931 orðin 254 alls. Seinna hækkaði sú tala enn. Þetta þýðir, að síðustu árin áður en línuritið tekur að lækka, var hægt að einangra og taka til læknismeðferðar alla eða a. m. k. flesta, sem smit fannst hjá, og hefur því stórlega dregið úr smithættu. Á árunum 1927—30 var og farið að beita röntgentækni fyrir alvöru við berklarannsóknir, og eftir það fundust sjúklingar mun fyrr en áður, a. m. k. í Reykjavík og nágrenni. Loftbrjóstað- ferðinni var á þessum árum beitt hér af meiri kostgæfni en víðast annars staðar, og á það eflaust einnig þátt í að draga úr smithættunni. Framangreindar ráðstafanir, svo og framlag þeirra lækna og hjúkrunar- kvenna, sem með einstakri þolinmæði lögðu hönd á plóginn, er allt ómetanlegt og verður seint fullþakkað. Þó er vafa- samt hvort þetta, þótt mikilvægt sé, er einhlítt til að skýra þau straumhvörf, sem áttu sér stað. Hefði mátt gera ráð fyrir hægari og jafnari breytingu. Samtímis fjölgun sjúkrarúma og bættum vinnubrögðum hefur að minni hyggju átt sér stað ónæmisbreyting meðal landsmanna. Vegna síaukinnar umgengni við smit áratugum saman hefur almenningur öðlazt ónæmi, sem fer að láta til sín taka upp úr 1930. Berklaveikin var nú á undanhaldi, og til þess að reka flóttann var 1935 ráð- inn berklayfirlæknir, núverandi land- læknir. Hefur hann stjórnað þessum málum af röggsemi og árvekni, með fulltingi ágætra liðsmanna. Að tilhlut- an hans voru sett ný berklavarnalög ár- ið 1939. Þau gerðu kleift að hefja mark- vísa leit að berklasjúklingum og heim- iluðu jafnvel að beita valdi, ef svo bar undir, til að fá fólk rannsakað og lagt inn á sjúkrahús til einangrunar og lækn- inga. Þurfti þó mjög sjaldan að grípa til valdbeitingar. Berklavarnarlögin frá 1921 höfðu tryggt sérhverjum sjúklingi ókeypis sjúkravist, en með nýju lögun- um var fyrir því séð, að sjúklingar, sem voru búnir að ná sér, þyrftu ekki að búa við kjör, sem höfðu í för með sér þá hættu, að veikin tæki sig upp. 1939 hófst allsherj arberklaskoðun í landinu. Óvenju stór hundraðshluti í- búanna mætti til skoðunar, einkum í Reykjavík. Einkennandi fyrir berkla- varnirnar hér á landi er markvís leit að berklasjúklingum og eftirlit með þeim, og þar er fámennið okkur auðvitað til mikils hagræðis. Eins og annars staðar lækkar tala berklasjúklinga ekki eins ört og dánar- tala af völdum veikinnar. Þrátt fyrir hinn ágæta árangur verður sífellt að vera á verði, ekki sízt fyrir það, að hið áunna ónæmi hlýtur að minnka vegna fæðar smitbera. Áhrifarík lyf og vel heppnaðar handlæknisaðgerðir hafa á síðari árum bjargað lífi sjúklinganna eða lengt lífdaga þeirra verulega. Nokk- ur undanfarin ár hefur verið beitt hér lungnaskurðum með góðum árangri. Árið 1938 bundust berklasjúklingar samtökum og réðust í það af aðdáunar- verðum kjarki og bjartsýni, stórhug og atorku að reisa hið stóra og veglega hressingarheimili Reykjalund (90 rúm). Þetta hefur ekki aðeins skapað sjúkling- unum betri lífskjör, aukinn kjark og bjartari horfur, heldur einkum búið þá undir að taka upp dagleg störf og oft komið í veg fyrir að veikin tæki sig upp. Eins og taflan sýnir, hefur árangur

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.