Eining - 01.06.1962, Qupperneq 9

Eining - 01.06.1962, Qupperneq 9
EINING 9 Uin heitaya (flói Guð hefur talið oss maklega þess, að trúa oss fyrir fagnaðarerindinu, og því er það, að vér tölum ekki eins og þeir, sem þóknast vilja mönnum, heldur Guði, sem rannsakar hjörtu vor; því að hvorki viðhöfðum við nokkru sinni nein smjaður- yrði, eins og þér vitið, né ágirndaryfirhilmingu, — Guð er vitni þess — né leituðum vegsemdar af mönnum, hvorki af yður né öðrum, þótt vér hefð- um getað beitt myndugleika, sem postular Krists, en vér vorum mildir yðar á meðal, eins og móðir, sem hjúkrar börnum sínum. Svo vorum vér og, af kærleiksþeli til yðar, fúsir til að miðla yður, ekki einungis fagnaðarerindi Guðs, heldur og voru eigin lífi, því að þér voruð orðnir oss ástfólgnir. Því að þér munið, bræður, eftir erfiði voru og striti: vér unnum nótt og dag, til þess að vera ekki neinum yðar til þyngsla, um leið og vér pré- dikuðum fyrir yður fagnaðarerindi Guðs. Þér eruð vitni þess og Guð, hversu heilaglega, réttvíslega og ólastanlega vér hegðuðum oss hjá yður, sem trúið, eins og þér vitið, hvernig vér áminntum og upp- hvöttum og grátbændum einn og sérhvern yðar, eins og faðir börn sín, til þess að þér skylduð breyta eins og samboðið er Guði, er kallar yður til ríkis síns og dýrðar. 1. Þessaloníkubréf 2, 4-12. Viljum við, nútíðarmenn, breyta samkvæmt þessari kenningu? Vera til dæmis „ekki neinum til þyngsla . . .“ en „breyta eins og samboðið er Guði“. Bréf frá frú H. Cícfl HeatH í ágústblaði Einingar 1961 var sagt nokkuð frá heimsókn þessarar ágætu konu, sem er ein af helztu leiðtogum hins kristillega bindindisheimssam- bands kvenna — World’s Woman’s Christian Temperance Union, en það er fjölmennasti bindindisfélagsskapur í heimi. Frúin ferðast um allar álfur og öll lönd heimsins að heita má, til þess að sitja fundi og þing samtakanna, til að fræða og glæða áhugann á hverjum stað, og ná sem beztu samstarfi við önnur félagasambönd, sem efla bind- indi og andlega menningu. Koma hennar til Islands var okkur mjög kærkomin. Hvítabandskonur og fleiri lögðust á eitt um að gera henni dvölina hér ánægjulega. Strax eftir heimkomuna skrifaði hún bréf til okk- ar og átti naumast nægileg aðdáunar- orð til að lýsa þakklæti sínu fyrir mót- tökurnar og aðdáun sinni á landinu. Ritstjóri Einingar sendi henni svo það hefti blaðsins, sem segir frá komu hennar hingað, og sem svar við því er bréf hennar dagsett 26. september 1961. Það er óafsakanlegt, hve lengi blaðið hefur vanrækt að minnast á bréf hennar og einnig brot úr blaðagrein, sem hún skrifaði um komu sína til ts- lands. Frú Cicil Heath skrifar í bréfi sínu m. a. á þessa leið: „Það var andleg mögnun og dásam- leg lífsreynsla að koma til íslands og kynnast þar svo mörgum, sem líkt og þér sjálfur, leggja stund á að efla vel- ferð manna. I gærkveldi flutti ég fyrir- lestur á kvennasamkomu svo sem 25 mílur fyrir utan London, og þar var geysimikill áhugi á frásögn minni frá íslandi, og ég verð að játa það, að ég hef orðið sólgin í að kynna mér ögn meira sögu íslands, þar sem ég hef nú bætt þar við eigin reynslu, með komu minni til landsins. Það myndi vissulega hver sem helzt, sem fengið hefði líkar móttökur og orðið þeirrar góðvildar að- njótandi, er varð hlutskipti mitt hjá ykkur, óska þess að geta einhvern tíma endurtekið komuna til Islands, og því myndi ég fagna.“ I ferðasögu og skýrslu frá mörgum löndum, sem frúin skrifaði í tímarit Hvítabandsins, er langur kafli um ís- land og komu hennar hingað. Orð henn- ar um gestrisni okkar eru á þessa leið: „íslenzk gestrisni er svo einstc%, bæði að eðli og umfangi, að undrun sætir. Siíkri góðvild og rausn er ekki unnt að lýsa nákvæmlega, og slíkt ekki hægt að endurgjalda.“ Frú Heath ræðir svo um tilgang komu sinnar til Islands, sem var sá fyrst og fremst að ná á ný sambandi við konur Hvítabandsins. Hún minnist á Ólafíu Jóhannsdóttur, forustu og brautryðjendastarf þessarar gáfuðu hæfileika konu, sem heita megi einstakt hjá svo fámennri þjóð. Hún minnist á bannlögin, getur þess hversu Hvíta- bandskonurnar unnu að því að koma upp sjúkrahúsi í Reykjavík. Hún seg- ir frá heimsókn sinni í sjúkrahúsið, til einstakra manna, sem hún nafngreinir, einnig á komu sína á þing Stórstúku íslands og starf Reglunnar, hið á- nægjulega móttökukvöld í húsakynn- um KFUM, en þar hafði hún flutt er- indi á vegum Hvítabandsins og áfeng- isvarnanefndar kvenna. Þar telur hún upp nokkur þekkt nöfn, segir ennfrem- ur allítarlega frá ýmsu fólki, sem hún kynntist mest, og ýmsu sem henni gafst færi á að sjá og skoða, svo sem skól- um, háskóla, söfnum og stöðum, Þing- velli, Geysir, gróðurhúsum og fleiru. Ógleymanleg sé fegurð fjallanna, segir hún, ár og vötn og strendur landsins, en ógleymanlegust verði þó góðvild elskulega fólksins og óskin því sterkari um að eiga þar á ný samherja. Grein þessari fylgir falleg mynd af konum Hvítabandsins á 61. ársþingi þeirra 1955. -X -jc * Vísubotn I aprílblaði Einingar var lesendum blaðsins boðið að botna yfirlætislaus- an vísuhelming: Vér hræðumst myrkrið hrollkalt og svart, þar hjörtu vor óyndis kenna. Því látum vér trúarljósið hjart á lömpunum vorum ljrenna. Þannig botnar frú Anna Eiríksdótt- ir, Reykjarhóli í Fljótum, vísuna. Vilja fleiri reyna, hve nærri þeir komast rétta botninum? □ ÁFENGISNEYZLA EYKST í NORVEGI Áfengisneyzla Norðmanna er nú orðin 3,60 lítrar af 100% áfengi á hvern mann í land- inu eldri cn 15 ára. Sterka ölið er orðið þar mörgum hið mesta áliyggjuefni.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.