Eining - 01.06.1962, Page 10

Eining - 01.06.1962, Page 10
10 EINING ÆTTERNI Kvöldræður Magnúsar Helgasonar í Kennaraskólanum þarf að gefa út aftur og stuðla að því, að sú bók verði vinur ungu kynslóðarinnar. Þar fer allt sam- an: málsnilldin, efnisvalið, andagiftin og þrótturinn. Svo vel er þar á málum haldið, að alvörumálið verður sann- kallaður skemmtilestur. — í erindinu Landnámabók er eftirfarandi kafli um ætterni: „Það er gaman að rekja skyldleik þeirra manna, er mest ber á í sögu landsins á ýmsum öldum, og sjá, hvern- ig t. d. þeim Sturlungum kippir í kyn- ið til Snorra goða um lund og mannvit, og að þeir Haukdælir, Oddverjar, Ari fróði og Snorri Sturluson eru allir komnir af Síðu-Halli, valmenninu og spekingnum, sem allir virtu og elsk- uðu, en hann aftur af Hrollaugi Rögn- valdssyni Mærajarls, er faðir hans gaf þann vitnisburð: Hefir þú þat skap, er engin styrjöld fylgir.“ Það er ekki marklaust að hyggja að, hvernig skap- ferli og mannkostir leggjast þannig langt í ættir. Gaman þykir og mörgum að sjá, þó að í sjálfu sér sé það minna vert, hve margir Islendingar eru kon- ungbomir í ættir fram, sumir af vest- rænum konungum, aðrir af norrænum; Haukdælir náskyldir Ólafi Tryggva- syni og Oddverjar af sjálfum Haraldi hárfagra. Má vera, að einhverjum þyki gaman að rekja frændsemi sína við Vil- hjálm keisara og Georg Englakonung, þó að hún sé orðin þynnri en þrítug- asta þynning. Það gerir Landnáma all- auðvelt. — Eg tel það engan veginn lít- ilsvert, að vita glögg deili á því, af hvaða bergi íslenzka þjóðin er brotin. Ef hún væri ekki af úrvals kyni, þá væri hún varla lengur til, eftir allt, sem yfir hana hefur gengið. — Tvennt finnst mér vera mikil stoð fyrir okkur, sem trúum á manngildi Islendinga, þrátt fyrir allt, og byggjum á þeirri trú von um framtíð þjóðarinnar: Annað hinn tröllaukni þróttur í forfeðrum vorum, andlegur eigi síður en líkam- legur — og engin ein bók sýnir hann betur en Landnáma. Og hitt hinn glæsi- legi orðstír, sem íslenzkir landnemar hafa nú aftur unnið sér í Vesturheimi. Þar sýnir það sig, að þrek og manndáð lifir enn í fullu fjöri og kemur í ljós, óðara en hentug atvik knýja það fram. Hví skyldu þeir kostir ekki eins geta komið í Ijós og notið sín hér heima, þegar þjóðin er leyst úr ánauð margra alda. Þá þykir mér það ekki smáræðis fagnaðarefni, að þessi bók sýnir okkur, að forfeður okkar eru fyrstu eigendur þess lands. Ættjörð okkar hefur aldrei verið eign nokkurrar annarrar þjóðar en sjálfra okkar. Islendingar hafa aldrei hrifsað hana með ofbeldi og her- skildi af öðrum eldri eigendum. Á eign- arrétti okkar hvílir engin blóðskuld, eins og flestra annarra þjóða. Því helg- ari og dýrmætari finnst mér hann, og því innilegri og fölskvalausari finnst mér, að ættjarðarást okkar megi vera.“ Þannig flytur Magnús Helgason mál sitt í þessari úrvalsbók. Skyldi ekki gaumgæfilegur lestur hennar geta glætt hina „fölskvalausu“ ættjarðarást í brjósti ungu kynslóðarinnar? Báðar hafa nú kynslóðirnar, háh eldri og yngri, mikla þörf á, að miða ekki allt við eigin hagsmuni og stundarfeng, en setja heldur metnað sinn í það, að reynast slíkur þjóðfélagsþegn, að borið geti hinn æskilegasta ávöxt komandi kynslóðum til handa. * -jC -K (Söngur fundarsetningar barnastúku) Lag: Nú litlu vakna blómin. Til fundar glöð við göngum, hin glaöa æskusveit, til góðs vér skulum' hverju verki snúa. Og heim okkar sjálfra og hvern einn sálarreit við hreinleikans fegurð skulum búa. Þá leiðir okkur æskunnar blíða, bjarta vor á brautu allra happasælla ferða. Við stígum þá ’farsæl og stór gæfu spor, er stefna til þess, sem bezt má verða. Því fagra, sanna og góða við fórnum lífi og sál, og fögnum þakklát hverjum nýjum degi. Og helgum svo 'íslandi huga, störf og mál, en helzt því að ganga á drottins vegi. ' Pétur Sigurðsson. / lióur brehhuna 1 Reykjavík fjölgar vínstíunum, á- fengisútsölum og sullkránum (sjopp- um). Svo kvarta menn undan spellverk- um og óspektum ölvaðra ungmenna, inn- brotum og ránum fyllirafta, ölvunaraf- brotum ökumanna, svo að ekki sé fleira nefnt. Meðan þjóðir selja börnum sínum þann eiturdrykk, sem sviftir menn ráði og rænu, umsnýr þeim í villimenn, stundum í glæpamenn, slysavalda og landeyður, getur engin þjóð réttilega kallast siðmenntuð menningarþjóð né kristin þjóð, hve mikið sem þær berast á í því brölti, sem menning er kölluð, og hvað sem öllum fornum og nýjum bóka- hvað sem öllum fornum og nýjum bókaskruddum, öllu skólastagli og leik- líður. Siðferðisþroski, heilindi, heiðar- leiki og varðveizla hamingju heimila og einstaklinga, er veigameira atriði fyrir heill þjóðar, en allt hitt. Meistarinn þrumaði vægðarlausan dóm yfir útvortis fáguninni og blekk- ingum hennar, sem oft er látin hylja öll óhreinindin hið innra. Safnið saman öllum ófarnaði af völd- um áfengissölu á meðal hinna helztu menningarþjóða, aðeins eitt ár, og þið munuð standa andspænis þeirri viður- styggð og skelfingu, sem hrópar dóm yfir hverja menningu, sem umber slíkt. Það er auðvelt að skreyta sig með fallegum nöfnum: menntun, kristni, en leyfa ágimdinni að rækta hið versta í fari einstaklinga og þjóða, og spilla heill og hamingju milljóna manna. -X -K -K ÁFENGISSÝKIN í TÉKKÓSLÓVAKÍU Norska blaðið Folket skýrir frá því, sam- kvœmt AP-frétt frá Vínarborg, að sl. 10 ár hafi 35,000 áfengissjúklinga verið vistaðir á drykkjumannahælum í Tékkóslóvakiu. Þar af 15 af hundraði undir 20 ára aldri. Árið 1951 var áfengisneyzlan þar á mann 1029 norskar krónur, sem mundi þá vera töluvert á sjöunda þúsund ísl. kr. Áfengis- neyzlan var þannig 20% meiri 1961 en 1959. Af áfengiseitrun fórust 47 einstakling- ar, rúmt þúsund manns varð lífshættulega veikt vegna ofdrykkju og árið 1960 átti ölvun við akstur þátt í 3000 slæmum slys- um. Ekki nægir það eitt að flytja austur fyrir járntjaldið til þess að sleppa við áfengisböl.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.