Eining - 01.06.1962, Síða 11

Eining - 01.06.1962, Síða 11
EINING 11 Blaðafregnir og áfengi „Ölvun og óspektir á Akureyri. — Síðastliðna nótt var mikið um ölvun í bænum og kom til átaka á mörgum stöðum.“ — Tíminn 27. ágúst 1961. „Þjófurinn fannst að drykkju. . Þétt- fullur á veitingastofu." — Morgunblað- ið 29. ágúst. 1961. „Drukknir unglingar ráðast á heim- ilisföður. Barinn í andlit og bitinn í fingur. ... Þess skal getið, að annar hinna drukknu unglinga er 16 ára en hinn á svipuðum aldri.“ — Mbl. (dag- setning gleymst). „Borguðu nætursvallið með peningum gestsins... . Var ekið framundir morg- un í leigubíl og haft áfengi um hönd.“ Mbl. 5. sept. 1961. „Lögreglan fór þegar á stúfana og fann 16 ára pilt, slompaðan af víni. Hann var búinn að brjóta rúðu í sölu- turninum og sagðist hafa ætlað að ná sér í sælgæti." — Tíminn 6. ág. 1961. „ÖlvaSur ökuþór ekur á fjórar bif- reiðar.“ — Mbl. 21. sept. 1961. „Maður banar konu sinni í ölæöi.“ — Mbl. 3. okt. 1961. „Árásarmáli lokið.... Virðast flestir hafa verið meira eða minna undir áfeng- isáhrifum.“ — Mbl. 25. okt. 1961. „Rambaöi í sjóinn.... Hafði fengið heldur mikið í kollinn." — Mbl. 11. nóv. 1961. „Með hnefum og skóm.“ — Mbl. 15. nóv. 1961. Einnig hér var „brennivín“ í spilinu. „Stundum eru menn með drykkju- raus í kvikmyndahúsum.... en gestir mega þola læti þeirra og áreitni bóta- laust.“ — Morgunblaðið. — Segja ekki málsvarar áfengistízkunnar, að áfeng- isneyzlan sé einkamál manna. Gáfulega mælt eða hitt þó heldur. „Innbrot og þjófnaðir.“ — Mbl. 13. maí 1962. Hér er sagt frá einum sjö inn- brotum, áfengi þó ekki nefnt. „Kveiktu í sinu og slógu bóndann... Hélt fólkið, sem mun hafa verið drukk- ið, síðan för sinni áfram.“ — Mbl. 20. marz 1962. „Þrír innbrotsþjófar handteknir.... Undir áhrifum áfengis.“ — Mbl. 21. marz 1962. „Ránið á Grjótagötu upplýst. Tveir ungir piltar tóku veskið og bílinn “ Hinn rændi maður „var mjög dnckk- inn.“ — Mbl. 28. apríl 1962. Lögreglan handtekur fjóra innbrots- þjófa“....Maðurinn var undir áfeng- isáhrifum.“ — Mbl. 13. febr. 1962. Þessar 16 blaðafregnir eru frá aðeins 8 mánuðum, og auðvitað skilja allir, sem eitthvað þekkja til skemmdarverka áfengisneyzlunnar, bæði á heimilum manna og í félagslífi, að hér er aðeins um örlítið sýnishorn að ræða. Síðasta blaðafregnin um vertíðarlokin í vor sagði frá miklum drykkjuskap, og var auðskilið að hann var ekki neitt smá- ræði. Þetta er það, sem löggjafar þjóðar- innar, og að nokkru leyti í umboði meiri hlutans, leiðir yfir almenning. Á 25—30 árum vann góðtemplara- reglan á íslandi eitt hið mesta siðbótar- verk, sem unnið hefur verið í allri sögu þjóðarinnar, og þar á það sannarlega að vera skráð feitu letri, til vitnisburð- ar öllum komandi kynslóðum. Á þess- um tveim til þremur áratugum — 1884 —1915 — þurrkaði góðtemplarareglan landið, friðaöi heimilin og tæmdi fang- elsið. Þetta er söguleg og óhrekjandi sannreynd. Allur almenningur í landinu undi þessu vel, en nokkrir broddborgar- ar linntu ekki látum fyrr en þeir gátu brotið skarð í varnarmúrinn, og svo hvert af öðru, unz áfengið flæddi aftur yfir landið. Afleiðingarnar þekkja svo allir. Fyrst hugguðu þessir menn sig við Spánarvínin, en heimtuðu brátt meira, sögðu að menn yrðu „magaveik- ir af þessu vínsulli,“ sterku drykkina yrði þjóðin að fá. Þegar þeir voru svo fengnir, þá var nauðsynlegt að rýmka enn betur um áfengissöluleyfin til þess að rekstur félagsheimila og veitinga- húsa gæti borið sig. Þessu greiddi síð- asta áfengislöggjöf okkar braut og nú fjölgar áfengisveitingastöðum og útsöl- um, unglingum og kvenfólki gengur vel að læra drykkjuskapinn og svo hrópa blöð, útvarp og aðrir aðiljar um siðleysi, svall, ölvunarhneyksli, skemmdarverk ölvaðra ungmenna, tíð innbrot, þjófnað. slys af ölvun við akstur, áflog á heim- ilum, sem draga jafnvel til dauða, og þó er frá minnstu sagt af því, sem raun- verulega gerist í hringiðu áfengissvelgs- ins. Til þess að þagga niður í vondri sam- vizku iðka svo margir þá ánægjulegu iðju að viðhalda látlausum blekkingum, rógi og níði um þá, sem vilja láta stemma stigu alls þessa ófarnaðar. Þeim er að vísu hrósað, sem vinna það lofs- verða líknarstarf, að draga skepnuna upp úr brunninum, en hinir eru níddir og gerðir hlægilegir, sem byrgja vilja brunninn. Slík hugsanaranghverfa lýs- ir dável sálarástandi manna, sem þetta aðhafast. Stjórnendur bæja og þjóðfélagsins umbera og leyfa, að upp rísi fleiri og fleiri vínstíur, og sullkrárnar í námunda við skóladyrnar, þrátt fyrir ítrekuð andmæli kennara og annarra, sem gera sér ljósa skaðsemi þessara „sjoppa.“ Mönnum leyfist að raka saman fé á sölu áfengis og annarra skaðnautna, sölu sorprita, klámbóka, glæpakvik- mynda og siðspillandi skemmtana. Póli- tískir flokkar segja löggjafanum fyrir verkum og þess vegna fáum við slíka áfengislöggjöf, sem við búum nú við og ýms leyfi, er til óheilla leiða. Hér má enn einu sinni minna á orð spámannsins: „Því að leiðtogar þessa fólks leiða það afleiðis, og þeir, sem láta leiða sig, tortímast. Fyrir því hefur drottinn enga gleði af æskumönnum." Jesaja 9, 16. Ætli manneðlið hafi ekki verið eitt- hvað svipað á dögum spámannsins og nú? En hann þorði að leiða leiðtoga þjóðarinnar fram fyrir dómstól alls réttlætis og ákæra þá fyrir að leiða ó- gæfu yfir þjóðina. Hvað hafa sumir leiðtogar þjóðanna leitt yfir þær og reyndar allt mannkyn á þessari öld? Fleira er ógæfa en styrjaldir. Frægir stjórnmálaleiðtogar stórvelda hafa tal- ið áfengisbölið verra en allar styrjaldir. Hefur íslenzka þjóðin beðið um fleiri og fleiri áfengisstíur? Eru það ekki leiðtogar þjóðarinnar, sem í þessum efnum láta að óskum ágjarnra manna? Frammi fyrir blekktum lýð, geta menn nú eins og fyrr viðhaft einhvern handa- þvott, en frammi fyrir dómstóli alls réttlætis gildir hann lítið, og hvað sagði spámaðurinn? „Leiðtogar þessa fólks leiða það afleiðis, og þeir sem láta leiða sig, tortímast. Fyrir því hefur drottinn enga gleði af æskumönnum.“ Vilja menn ekki, einnig hér á landi, hugleiða þessi síðustu orð, að vegna

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.