Eining - 01.06.1962, Side 12

Eining - 01.06.1962, Side 12
12 EINING Vorþing Umdœmisstúkunnar nr. 1 Vorþing Umdæmisstúku Suðurlands var haldið 12. maí sl. í Templarahöll- inni Fríkirkjuvegur 11, Reykjavík. Þingið var allf jölsótt og hið notalegasta. Fráfarandi umdæmistemplar, Hreið- ar Jónsson, klæðskeri, flutti skýrslu um félagsstarfið á liðnu kjörtímabili. Einn merkasti þáttur þess var hið velheppn- aða Húsafellsmót. Tvær barnastúkur höfðu verið stofnaðar í umdæminu. Þá greindi umdæmistemplar frá starfsem- inni við barnaheimilið í Skálatúni, framkvæmdum þar og breytingu á rekstri, og svo frá félagsstarfinu yfir- leitt. Aðrir embættismenn umdæmisstúk- unnar fluttu og skýrslur sínar. Ber þar mest á skýrslu umdæmisgjaldkera, Páls Kolbeins, um Barnaheimili templara að Skálatúni. Er þar gerð fullkomin grein fyrir fjárhag og rekstri heimilisins. 1 skýrslunni er og reikningur umdæmis- stúkunnar í heild. Allmiklar umræður voru á þinginu um félagsstörfin og samþykktar nokkr- ar tillögur, t. d. að framkvæmdanefnd umdæmisstúkunnar hafi samvinnu við önnur félagssamtök um, að komið verði upp heimili handa afvegaleiddum ung- um stúlkum. Þá mótmælir þingið harð- lega fjölgun áfengisveitingastaða og skorar á ríkisstjórnina að koma því í framkvæmd, að allir verði skyldaðir til þess að bera nafns- og aldursskírteini, til varnar því að unglingum sé veitt á- fengi og ólöglegur aðgangur að skemmt- unum. Aðrar tillögur hnigu aðallega að framkvæmdaatriðum umdæmisstúkunn- ar. Samþykkt var, að næst skyldi þing- staðurinn vera Hafnarfjörður. Hin árlegu mót umdæmisstúkunnar hafa verið svo fjölsótt, að ekki er talið heppilegt að hafa þau á stöðum þar sem enginn aðgangur er að húsakosti, en notast verður eingöngu við tjöld. Auk þess hefur þátttaka norðanmanna verið svo mikil, að nú þykir réttmætt að næsta mót verði í Norðurlandi, og hefur Reykjaskóli í Hrútafirði orðið fyrir valinu. Að þessu sinni skal þess eins getið, að mótið mun hefjast laugardags- kvöldið 4. ágúst nk. Munu þá loga þar glaðir varðeldar, m. a. Sunnudagsmorg- uninn fer svo fram fánahylling og því næst verður sungin messa á staðnum. Ýmislegt verður svo á dagskrá, þar á meðal dansskemmtun um kvöldið, en á mánudegi verður mótinu slitið. Framkvæmclanefnd umdæmisstúkunnar Á henni varð nokkur breyting. Sumir nefndarmannanna báðust undan endur- kjöri, þar á meðal umdæmistemplar. I hans stað var kjörinn Ólafur Jónsson, trésmiður. Aðrir í nefndinni eru: Umdæmis-kanslari, Sigurgeir Alberts- son. — varatemplar, frú Margrét Sigmunds- dóttir. — ritari, Óðin Geirdal. — gjaldkeri, Páll Kolbeins. — kapilán, Kristjana Benediktsdóttir. vondrar forustu leiðtoganna hafi drott- inn enga gleSi af æskumönnum? En það er ekki aðeins þannig ástatt um Guð. I landinu eru einnig margir for- eldrar, sem vegna áfengisflóðsins hafa ýmist of litla eða enga gleði af sonum sínum eða dætrum. Og hverjum er um að kenna, ef ekki þeim, sem gert hafa mönnum sem greiðastan aðganginn að þeim eiturlindum, sem æra menn, gera þá að umskiptingum, auðnuleysingjum, afbrotamönnum og jafnvel glæpamönn- um? Spámaðurinn lét konunginn sjálfan fella dóm yfir manninum, sem tekið hafði lamb fátæka mannsins, og benti svo fingri að honum og sagði: ,,Þú ert maðurinn.“ En snúum nú blaðinu við og hlustum á þriðja spámanninn: „Þegar konungurinn ríkir með rétt- læti og höfðingjarnir stjórna með rétt- vísi, þá verður hver þeirra sem hlé fyrir vindi og skjól fyrir skúrum. sem vatnslækir í öræfum, sem skuggi af stórum hamri í vatnslausu landi.“ Slíks virði eru réttlátir leiðtogar hverri þjóð, en hér er ræðuefni, sem ekki er unnt að gera nein skil í stuttri blaðagrein. Við höfum oft farið mildari orðum en í þessari grein, um hið mikla vandamál, en þau hafa of litlu áorkað. Verður okk- ur þá ekki að grípa til hinna? Lái okk- ur hver sem vill. ÆskulýSsclaginn 20. ágúst 1961 tóku ungtemplarar þátt í skrúðfylkingu, sem fór um göt- ur Reykjavíkur. Vagn sá, er myndin sýnir, var þeirra sýningargripur og táknaöi hann Víkingaskip Ingólfs Arnarsonar, landnámsmanns.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.