Eining - 01.06.1962, Síða 14

Eining - 01.06.1962, Síða 14
14 EINING Spurt og spjallað í ntvarpssal ■ini kveðskap Þótt nokkuð sé síðan að þáttur þessi var fluttur, mun hann ekki vera gleymd- ur. Þar ræddu og svöruðu spurningum fjórir þekktir menn. Ég hlustaði aðeins á framsöguávörpin og hefði getað látið mér nægja hið fyrsta, fannst það nægi- legt, sem Gunnar Dal sagði. — Efni þáttarins var aðallega órímuðu ljóðin. Það var víst Matthías Jóhannessen, sem nefndi þetta „deilu um keisarans skegg.“ Hún mun auðveldlega leysa sig sjálf, því að þetta rímlausa, sundur- lausa og oft efnislitla orðahröngl lærir enginn maður, og það sem ekki er hæft til að læra, gleymist og grefst. Margvísleg hyggindi hafa legið á vörum allrar þjóðarinnar öldum sam- an, einmitt vegna þess, að hyggindun- um var komið fyrir í ljóði, sem allir gátu lært. Ekki einu sinni vitleysan, sem jafnan er svo ákaft fagnað, heldur velli, ef hún er ekki í snyrtilegum bún- ingi. Þó að hagyrðingurinn á Sauðár- króki hefði sagt, að nú væru regndrop- arnir stórir og blotnaði því í sveitum, en taktu bara í hornið á geitinni og mundu að tvisvar tveir eru fjórir, þá hefði enginn veitt því eftirtekt, en ár- um saman söng ferðafólk um allt land vitleysu þessa, af því að hún var rím- uð: Detta úr lofti dropar stórir, dignar um í sveitinni. Tvisvar sinnum tveir eru fjórir. Taktu í horn á geitinni. Auðvitað hefðu menn verið eins vel settir, þótt þeir hefðu aldrei lært gam- anið, rímið gaf því líf. En við skulum nefna annað veg- legra dæmi. Þótt góðskáldið, Guðmund- ur Friðjónsson, hefði sagt í órímuðum setningum, að þreytt sveitakona sæi eft- ir að missa dóttur sína, sem ekki vildi una sér lengur við sveitavinnu, í kaup- túnið, þar sem saman færi táldragandi glaumur, nautnir og hrekkvísi í við- skiptum og gáleysi í lifnaðarháttum, þá hefði það ekki vakið mikla eftirtekt né orðið mönnum ræðuefni, en þegar skáldið klæðir efni þetta í glæsilegan búning, þá skín þar fögur perla, sem er eiguleg. — Takið eftir og lærið: Svefnlítil sauma-Gefn sér eftir mey í ver. Glóir í glaumbæ gullspöng, er hatar ull. Hringiðu hljómföng liylla sál, er neitt vill. Reykur, sumbl og refskák rangar lýð á húsgang. Þannig gekk skáldið frá þessu. Hví- lík snilld og efnisauðlegð! Mikið ræðu- efni í örfáum og hnitmiðuðum orðum, undir dýrum bragarhætti. Órímað mál getur verið svo haganlega flutt, að auðlært sé. Má þar t. d. nefna fjölda spakmæla. Auðvelt er að læra þetta úr Orðskviðunum: „Hurðin snýst á hjörunum og letinginn í hvílu sinni.“ „Vitrir menn munu lieiður hljóta, en heimsk- ingjar bera smán úr býtum.“ „Far til maursins, letingi! Skoða háttu hans og verð hygginn.“ „Snauður verður sá, sem með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd.“ „Eins og gullhringur í svínstrýni, svo er fríð kona, sem enga siðprýði kann.“ „Hinn vitri liyllir að sér hjörtun.“ „Margur vegur virðist greiðfær, en endar lm á helslóðum.“ „Glatt hjarta veitir góða heilsubót, en dap- urt geð skrælir beinin.“ „Sjáir þú mann vel færan í verki sínu, hann getur boðið konungum þjónustu sína.“ Af miklu er hér að taka, en allt leik- ur þetta í munni, eins og rímað stuðla- mál, er auðvelt að læra og varðveita í minni. Minna mætti á ýmislegt í Ljóða- Ijóðunum, eins og t. d. þetta: „Legg mig sem innsiglishring við hjarta þér. Sem innsiglishring við armlegg þinn. Því að elskan er sterk, eins og dauðinn, ástríðan hörð eins og hel.“ Þetta er órímað mál, en stuðlamál og létt að læra. Hér skal svo nefnt enn dæmi úr ritningunni: „Ég vil kveða kvæði um ástvin minn, ástarkvæði um víngarð hans, Ástvinur minn átti víngarð á frjósamri hæð. Hann stakk upp garðinn og tíndi grjótið úr honum, hann gróðursetti gæða-vín- við í honum, reisti turn í honum miðj- um og hjó þar einnig út vínlagarþró; og hann vonaði að garðurinn mundi bera vínber, en hann bar muðlinga." Þetta er laust mál, en málsmeðferðin slík snilld, að kaflinn er auðlærður, framhaldið einnig, sem er raunasaga, en slíkt kemur ekki hér við sögu. Bent er á það, hve rímaða ljóðasniðið sé auðvelt til leirburðarframleiðslu, en hin svokölluðu órímuðu ljóð geta einnig verið efnislítill leirburður. Annars eru dómar manna ekki alltaf réttlátir á því, sem leirburður kallast. Eftir að Magnús Jónsson, prófessor, hafði ritað um ljóða- bók Káins og talið hann vel hlutgengan meðal ljóðskálda, orti Káinn á sína venjulega spaugilegu vísu: „Nú er ég ekki leirskáld lengur, en ljóðskáld, svona eins og gengur, af leirskáldum í landi er nóg. Sannleikur er sagnabeztur, sagði þetta Magnús prestur, fleiri vissu en þögðu þó.“ Það er ekkert smáræði, sem ort hef- ur verið af leirburði hér í landi, en skyldi nokkur geta dæmt um það, hvers virði sumt af þeim leirburði hefu." ver- ið þjóðinni öldum saman, — hafra- grauturinn er matur, engu síður en kræsingar. Til gamans skal ég geta þess, að 1917 var ég eitt sinn á gangi að kvöldi dags milli Stokkseyrar og Eyrar- bakka. Hlýtt var í veðri og rigningar- salli. Á göngu minni setti ég saman of- urlítið ljóð, auðvitað leirburð, slíkt er svo auðvelt. Ekki var ég svo hygginn að eyðileggja það nógu fljótt, en mörg- um árum síðar hitti ég íslending í fjar- lægri heimsálfu, sem gat þess við mig, hve þetta lítið vandaða ljóð hefði oft verið sér huggun og uppörfun. Hver mundi hafa trúað því, því að vissulega var ljóðið leirburður að frágangi til, en er þá það, sem orðið getur mannssál til hvatningar og huggunar, gagnslaust, þótt ekki sé um hagleik að ræða? Ég hef oft minnst þessa atviks. Þessi mað- ur hefði ekki lært þetta lélega ljóð mitt, og enga blessun af því haft, ef það hefði verið órímað, það eitt er víst. Hér dugar nú ekki að eyða meiru máli í þetta, en ég vona, að okkar rím- aða Ijóðagerð, ekki sízt hin dýra, haldi áfram að vera þjóðinni svölunarbrunn- ur og andleg mögnun um ókomnar aldir. Pétur Sigurðsson. Hnefaréttur og hópsamtök Eftir skólastjóra Hólaskóla, Gunnari Bjarnasyni, hafði eitt dagblaðanna fyrir skömmu orð á þessa leið: „í öðru lagi tel ég, að í atburðarásinni birtist afleiðingar af uppeldisvenjum þess- arar kynslóðar, þar sem drengskapur og sið- gæði eru að verða óljós hugtök meðal æsku- fólks, en hnefaréttur og hópsamtök eru orð- in mikilvægari í samskiptum manna en lög og réttur.“ Einu sinni var vakað yfir túnum á íslandi, Vökum við nú yfir þjóðlífsakrinum til þess að stugga bitvarginum frá — þeim öflum, sem mestum skemmdum valdi í þjóðarupp- eldinu? Ræktum við akurinn samvizkusam- lega?

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.