Eining - 01.01.1964, Qupperneq 2

Eining - 01.01.1964, Qupperneq 2
2 EINING Fyrrverandi stórtemplar, Benedikt S. Bjarklind. við að láta okkur nægja í öll skipti, bæði varðandi það, sem komið var og síðar kom, hinn afmælda skammt, en hann var góður. Næst kom dálítið nýstárlegur þáttur: Raddir úr hópnum. Lásu nokkrir menn mjög stutta kafla úr ræðum látinna merkismanna, og birtir blaðið sennilega eitthvað af þeim bráðlega. Ekki verður sagt, að dregið hafi úr þrótti fundarefnisins, því að nú steig á pallinn okkar alkunni, vinsæli og Ijúf- mannlegi óperusöngvari, Guðmundur Jónsson, og honum mistókst sannarlega ekki. Söng hans var ákaft fagnað og vildu menn fá meira, en honum varð ekki umsnúið fremur en harðsvíruðum syndara. Hér lauk þá auglýstri efnisskrá. Var þá aðeins eftir, að stórtemplar las öll heillaskeytin, sem reglunni höfðu borizt, en þingtemplar mælti að síðustu nokkur orð og þakkaði öllum, sem eitthvað höfðu lagt til þess að fundurinn gæti orðið sem ánægjulegastur og minningamerkur, og mun öllum fundarmönnum þótt, að vel hafi tekizt. Var svo setzt að kaffiborð- um í báðum sölunum. Hin samfellda útvarpsdagskrá. Að kvöldi dags afmælisdaginn 10. jan- úar, lét ríkisútvarpið framkvæmda- nefnd Stórstúku íslands í té klukku- stund til að flytja samfellda dagskrá. Var hún aðallega spurningaþættir og í upphafi þeirra og á milli einsöngur, kór- söngur og barnasöngur. Hér verður birt eitthvað af svarþáttum þeirra manna, sem komu fram í þessari sam- Hús þetta er nú og hefur verið undanfama wratugi samkomuhús Akur- eyrarbxjar. Það er templarahúsið þar frá fyrri árum reglunnar og sýnir enn stórhug templa/ra á árum bjartsýninnar. Stórtemplar, Ólafur Þ. Kristjánsson. léku nokkur lög, en foringi þeirra, kenn- ari og stjómandi er Paul Pampichler, og virtist þessi sjálega hljómsveit draga öll dám af prúðmennsku og ljúfmennsku stjórnandans. Leik hljómsveitarinnar var vel fagnað og var skemmtun hennar ágæt. Ólafur Þ. Kristjánsson, skólastjóri og stórtemplar, steig þá í ræðustólinn og flutti gagnort og ágætt minni regl- unnar. Og enn komu aðfengnir góðir skemmtikraftar þar sem var kirkjukór Langholtssafnaðar. Hann söng nokkur lög undir stjórn kirkjuorgelleikarans, Mána Sigurjónssonar. Hvað eftir annað reyndum við með dynjandi og þrálátu lófataki að knýja þessa góðu skemmti- krafta til þess að snúa inn á söngpall- inn aftur, en það tókst ekki og urðum „Borgarstjórn Reykjavíkur sendir Stórstúku íslands beztu árnaðaróskir í tilefni af 80 ára afmæli góðtemplara- reglunnar á íslandi, og þakkar merk og mikilvæg störf í þágu borgarinnar“. Geir Hallgrimsson. Skeytin frá hinum háu embættis- mönnum voru öll með líku orðalagi. Reglunni eru þar þökkuð „ómetanleg“ störf í þágu þjóðmenningar, siðgæðis og félagsmála. Og er þetta allt fagur vitnisburður þessara merku manna, sem við þökkum innilega, en munum ekki miklast af, því að vel er okkur ljós van- máttur okkar og ýms vandkvæði í starfi, þótt viljinn sé góður. Afmælisfundurinn Þingstúka Reykjavíkur, sem er sam- starfsstúka allra stúknanna í borginni, efndi til afmælisfundar laugardags- kvöldið 11. janúar. Kom þá í ljós, eins og oft áður, hve brýn er þörf reglunnar á nýjum og rúmgóðum húsakynnum, því þótt salurinn í gamla Góðtemplarahús- inu sé rúmgóður og vistlegur, að þessu sinni skreyttur einnig, var hann svo þéttsetinn, að fleiri máttu vart vera, ef ekki óþægileg þrengsli áttu að vera þar. Fundinum stjórnaði þingtemplar, Indriði Indriðason, rithöfundur. Sung- inn var sálmurinn, „Þú guð ríkir hátt yfir hverfleikansstraum“. Gæti hver kirkjusöfnuður vel unað jafnhressi- legum og almennum söng. Þar næst flutti þingtemplar ávarp. Gekk svo í salinn mjög sjáleg sveit ungra sveina, 20—30 talsins. Allir báru þeir skínandi blásturshljóðfæri, sem sum virtust næstum stærri en sveinarnir er báru þau. Fallega klæddir, allir í dökkum bux- um og hvítum skyrtum og með snotran höfuðbúnað, stigu þeir á leiksviðið og

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.